Morgunblaðið - 26.03.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.03.2019, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019 ✝ Inga RagnaHoldø var fædd á Akureyri 12. desember 1942. Hún lést á heimili sínu, Grænumörk 3 á Selfossi, 16. mars 2019. Inga Ragna var dóttir Mörtu Þór- eyjar Nilsen Holdø, f. 9.1. 1926, d. 15.1. 1999, og Hans Olai Holdø, f. 7.1. 1921, d. 28.8. 1943. Inga Ragna giftist Sigurði Þorsteini Guðmundssyni, f. 13.12. 1940, d. 27.5. 1999, árið 1961. Börn þeirra eru: Marta Rut, f. 14.9. 1963, fyrrverandi eiginmaður hennar er Viðar Pét- ursson, f. 10.5. 1961, og eiga þau tvo syni, Pétur, f. 26.7. 1982, og Sigurð Má, f. 13.8. 1986. Núver- andi eiginmaður hennar er Stef- án Heiðar Vilbergsson, f. 30.6. 1969, og eiga þau þrjá syni, Andra Dag, f. 10.1. 1994, Vilberg Davíð, f. 23.4. 1997, og Hlyn Loga, f. 31.7. 1998. Barnabörn Mörtu eru þrjú, Fannar Daði, Snæþór Ingi og Ásmundur Hrafn. Dagný María, f. 24.9. 1965, fyrrverandi eiginmaður er Jón Ragna hóf sambúð með Sigurði í Reykjavík og bjuggu þau fyrstu árin í Miðtúni og síðar á Vífils- götu. Þá bjuggu þau í Lyng- brekku í Kópavogi. Inga Ragna og Sigurður fengu umboð fyrirsnyrtivör- urnar Oriflame og unnu við það í nokkur ár. Þá fluttu þau til Breiðdalsvíkur og síðan á Selfoss þar sem Sigurður starfaði sem útgerðarstjóri. Inga starfaði sem handavinnukennari á Breið- dalsvík. Inga Ragna og Gísli bjuggu saman á Selfossi þar sem þau höfðu umboð fyrir snyrtivör- urnar Arbonne sem þau störfuðu við saman í nokkur ár. Þá ráku þau heimagistingu í ein 10 ár. Saman ráku þau einnig kjör- dæmablaðið Þjóðólf á Suður- landi í nokkur ár. Þá starfaði Inga við ýmsar hannyrðir, hélt námskeið og rak gallerí. Föðurfjölskylda Ingu Rögnu er frá Noregi en faðir hennar var orrustuflugmaður sem féll í heimsstyrjöldinni síðari. Móðir hennar flutti til Noregs og giftist bróður barnsföður síns, Arne Holdø, og bjó þar stærsta hluta ævinnar. Arne-Erik, f. 3.9. 1950, er stjúpbróðir hennar. Inga átti ávallt sterka tengingu við Noreg. Útför Ingu Rögnu fer fram frá Selfosskirkju í dag, 26. mars 2019, og hefst athöfnin kl. 13.30. Stefán Þórðarson, f. 31.5. 1963, og eignuðust þau fimm börn: Drengur, f. 13.2. 1984, d. 14.2. 1984, Sigurður Bergur, f. 7.6. 1985, Elín Inga, f. 2.10. 1986, Gabríel, f. 13.5. 1989, d. 5.11. 1989, og Marinó, f. 13.5. 1989. Barna- börn Dagnýjar eru fimm, Viktor Berg, Soffía Krist- ey, Dagný Mist, Alex Nói og Kar- ítas Lilja. Guðmundur, f. 20.5. 1972, eig- inkona er Helga Sigríður Eiríks- dóttir, f. 16.3. 1972, og eiga þau þrjú börn, Júlíus Inga, f. 2.1. 1997, Jason Mána, f. 6.12. 2002, og Díönu Ástu, f. 29.1. 2006. Inga Ragna giftist Gísla Sig- urðssyni framhaldsskólakenn- ara, f. 23.11. 1931, árið 1979, þau slitu samvistum árið 2002. Gísli á þrjár dætur frá fyrra hjóna- bandi, Katrínu, Sigríði Georgínu og Christine og stjúpsoninn Stefán. Inga Ragna gekk í grunnskól- ann á Akureyri en síðar sótti hún nám í Húsmæðraskólanum í Lillehammer í Noregi. Inga Elskuleg móðir mín er fallin frá aðeins 77 ára gömul. Mamma átti viðburðaríka ævi, hún hafði ýmsa hæfileika og tókst á við margar gleði- og sorgarstundir í lífinu. Hún þekkti ekki föður sinn sem dó í seinni heimsstyrjöldinni og var því alin upp af móður sinni á Akureyri. Ég minnist móður minnar sem mikils húmorista, skap- góðrar og ávallt var hún tilbúin að veita ráð og aðstoð þegar til hennar var leitað. Hún starfaði í kringum sölu á snyrtivörum og auglýsingum lengst af um ævina og náði hún mjög góðum árangri í þeim störfum. Ég minnist þess að hafa unnið við að taka til pantanir á snyrtivörum og þá dró hún mig inn á kynningarfund með snyrtifræðingum og þar var ég litgreindur með öllum kúnstar- innar reglum sem síðbúið vor. Hún var afar hugmyndarík og hæfileikarík í ýmiss konar hannyrðum og sköpun, hafði m.a. mikla ánægju af því að spila á píanó. Ég hóf minn tónlistarferil á því að læra á trompet, í seinni tíð hef ég gaman af því að minnast þess þegar hún bað mig vinsamlegast um að skipta yfir í píanó til að hæfileikar mínir myndu betur njóta sín. Held reyndar að fyrst og fremst hafi hún gefist upp á að hlusta á byrjanda blása í trompet. Börnin mín þrjú hafa haft gaman af því að heimsækja hana í gegnum árin sem veitti bæði henni og þeim mikla gleði. Kvöldið sem móðir mín lést kallaði dóttir mín á okkur til að skoða mjög falleg og áberandi norðurljós út um svefnher- bergisgluggann hennar. Það að sjá norðurljósin mjög skýrt í Reykjavík er ekki algengt. Skömmu síðar fékk ég í símtali fréttir um andlát mömmu. Daginn eftir segir dóttir mín við okkur að norðurljósin hljóti að hafa verið amma að kveðja okkur en þetta gerist á sama tíma og hún fellur frá. Takk fyrir allt, elsku mamma mín, og ég veit að þú ert komin á góðan stað. Guðmundur Sigurðsson. Í dag kveð ég elskulega tengdamóður mína, Ingu Rögnu Holdø, sem lést á af- mælisdaginn minn 16. mars síð- astliðinn. Ég kynntist Ingu haustið 1991 þegar ég fór að venja komur mínar í Heiðmörkina til að hitta son hennar þar sem hún bjó ásamt Gísla manni sín- um. Það var alltaf gott að koma til þeirra og tóku Inga og Gísli alltaf vel á móti mér og létu mér líða eins og einni af fjöl- skyldunni. Nú þegar kemur að kveðju- stund og ég rifja upp hvernig Inga kom mér fyrir sjónir þá finnst mér einkennandi fyrir hana að hún lá aldrei á skoð- unum sínum og sagði hlutina bara eins og þeir voru. Stund- um dáðist ég að henni að geta sagt eitthvað sem ég hefði ekki lagt í að segja en stundum fannst mér hún segja hlutina of hreint út en þannig var Inga bara. Hún var einstaklega lagin við hannyrðir og sérstaklega út- saum. Voru börnin mín það heppin að njóta leiðsagnar hennar með hvers konar út- saum þegar við komum í heim- sókn og naut hún þess að að- stoða þau með slík verkefni í gegnum árin. Einnig var hún alltaf þolinmóð og skilningsrík við þau þegar þau fengu að glamra á píanóið hjá henni sem iðulega var rifist um að spila á, okkur foreldrunum til mismik- illar gleði. Inga var glæsileg kona og því erfitt að horfa upp á heilsu hennar hraka hratt á síðustu árum. Þó svo að það sé alltaf erfitt að kveðja ástvini sína veit ég Inga er komin á góðan stað þar sem henni líður vel og ég er þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman í gegnum árin. Blessuð sé minning hennar. Helga Sigríður Eiríksdóttir. Inga Ragna Holdø Það er ekki auð- velt að orða það sem bærist manni í brjósti á stundu sem þessari. Ég var það heppinn að Guðrún var frænka mín, en hún var samt svo miklu meira en bara það. Guðrún var nefnilega mamma númer tvö fyrir mig, ein- hvers konar varamamma. Guðrún Guðmundsdóttir ✝ Guðrún Guð-mundsdóttir fæddist 20. ágúst 1954. Hún lést 9. mars 2019. Útför Guðrúnar var gerð 15. mars 2019. Minningar mínar úr æsku með Guð- rúnu, Óskari og fjöl- skyldu eru of marg- ar til að hægt sé að telja þær upp í stuttu máli. Allt eru þetta ánægjulegar minningar tengdar samveru og mikið af ferðalögum. Mér fannst alltaf gott að vera heima hjá Guðrúnu, Óskari og fjöl- skyldu og njóta nærveru þeirra og umhyggju. Þegar ég hugsa til baka um Guðrúnu er góð- mennska og væntumþykja gagn- vart mér það sem stendur upp úr. Guðrún var alltaf svo góð við mig, en gott dæmi um það er að á mínum yngri árum var Guðrún sú eina sem kom til greina þegar fjarlægja þurfti flís úr putta. Guðrún frænka var einfaldlega langbest í því og sú eina sem ég treysti í verkið. Það þurfti því að alltaf að fara í heimsókn til hennar þegar slíka framkvæmd þurfti. Það hefur ávallt verið mikill samgangur og samvera á milli fjölskyldna okkar og voru sam- eiginlegar útilegur og sumarbú- staðaferðir mjög tíðar. Ég og Kolla vorum þar af leiðandi mjög góðir vinir á okkar yngri árum og eru tengsl okkar ennþá mjög sterk þó að samgangur sé ekki jafn tíður. Síðan þegar Arnar Freyr fæddist varð hann mér, og er enn, að miklu leyti eins og litli bróðirinn sem ég eignaðist aldrei. Þær voru ófáar næturnar sem ég gisti heima hjá Guðrúnu og Óskari. Fyrst var ég sjálfur þar í pössun en síðar var ég sjálfur far- inn að passa fyrir þau eftir að Arnar Freyr fæddist. Til að forða unglingnum mér frá algjöru að- gerðaleysi eitt sumarið réði Guð- rún mig til að sækja Arnar Frey á leikskóla og passa þar til hún kom heim úr vinnu, en einnig sá ég líka um garðslátt og hin ýmsu smáverk í garðinum. Síðar þegar ég þurfti ekki lengur á því að halda að vera sendur í pössun eyddi ég engu að síður talsverðum tíma heima hjá Guðrúnu og Óskari. Allar þær stundir eru mér ómetanlegar og ég á Guðrúnu mikið að þakka, enda var samband okkar alltaf gott og átti ég auðvelt með að tala við hana um það sem ég gat ekki endilega talað um við mömmu. Elsku Óskar og fjölskylda, ég votta ykkur mínar dýpstu samúð á þessari erfiðu stundu. Sævar Már Þórisson. Síðast hitti ég Runólf Valdimars- son viku áður en að hann lést á hjarta- deild Landspítalans. Hann var fölur og rómurinn var enn lægri en venjulega. Ég var með tíma- ritsgrein til hans, þar sem sagt er frá sveitunga hans og nafna. Runólfur sagði tvíræðar sögur um persónur í greininni. Lítið benti til að þessi sterki maður væri að kveðja. Frekar bjóst ég við að hann útskrifaði sig sjálf- ur eins og hann hafði gert áður. Hann sagðist hafa bjargað lífi sínu síðastliðið sumar með sjálfsútskrift. Runólfur var ekki aðdáandi sjúkrastofnana. Á þeirri afstöðu varð nýlega breyting. Eftir áramótin byrj- aði hann í dagvist á Hrafnistu í Reykjavík. Fæðið var gott og á nokkrum vikum fann hann auk- inn styrk. Útlitið var bjart, heilsan hafði ekki verið svona góð í langan tíma. En tveimur vikum fyrir andlátið, þegar hann var á leið í dagvistunina, datt hann í snjóruðningi, sem kominn var upp á stétt við hús- ið hans í Breiðholti. Hann var lagður inn á spítala og fékk son sinn og mig til þess að ljós- mynda skaflinn, því hann ætlaði að sækja rétt sinn til bæjar- félagsins. Á okkar síðasta fundi sýndi ég honum myndirnar, teknar með GPS-stimpli, svo að ekki væri hægt að véfengja stað og stund. Runólfur gladdist og sagði „hér áður fyrr voru þessir hlutir hafðir í lagi“ – og nefndi borgarstjórann. Ég kynntist Runólfi, þegar ég hóf störf á Raunvísinda- stofnun Háskólans 1995. Hann hafði starfað þar í 15 ár á verk- stæði stofnunarinnar. Við Runólfur Valdimarsson ✝ Runólfur fædd-ist 23. nóvem- ber 1929. Hann lést 23. febrúar 2019. Runólfur var jarðsunginn 4. mars 2019. vorum samtímis í fimm ár, eða þar til hann hætti vegna aldurs í árslok 1999. Runólfur var húmoristinn, sjálf- stæður maður með uppihangandi dagatöl í stíl, sem tíðkast á vélaverk- stæðum og hafði alltaf tíma til að ræða málin. Það var eftir að hann var hættur sem við urðum enn meiri vinir. Hann tók að sér að gera við Daihatsu Feroza-jeppa, sem ég á. Um árabil voru viðgerðirnar í hans höndum, en síðan vorum við saman í þessu. Þá kynntist ég verkgáfu hans, innsæi við að greina vandamálin. Enn gat hann borað út fastan smábolta í rökkri, nærri blindur á öðru auga, álíka fínmekanik og hjá tannlækni að bora í tönn, sem þó hefur betri aðgang og lýs- ingu. Mér varð hugsað til þess, að Runólfur hefði orðið góður beinalæknir með sitt ofurnæmi á mekanískt samhengi. Að lok- um dæmdi Runólfur bílinn með frægu orðatiltæki sínu „game over“ – síðast í draumi mínum 2-3 dögum fyrir andlát Runólfs. Hann var sagnamaður, grúskari, samfélagsrýnir, sem sá í gegnum félagsmálin. Frá- sögnin hnyttin og merkingin ekki auðskilin í fyrstu. Hann sagði frá löngu liðnum atburð- um eins og um líðandi stund væri að ræða; Kambsránið, Kambsholts-Móra – sá var Skaftfellingur eins og hann – og frá sínum manni, góða dátanum Sveijk. Ekki veit ég, hvort það er siður Skaftfellinga, en þegar Runólfur átti erindi á bæ norð- ur í landi, kom roskin kona til dyra. Honum var ekki boðið inn umsvifalaust, ekki fyrr en hún vissi, hvaðan hann væri. „Nú, þú ert að heiman!“ Í samtalinu skýrðist, að ættfólk konunnar hafði flúið norður í Skaftáreld- um 1783 og búið þar alla tíð síðan. Ingi Þorleifur Bjarnason. Hrefna Daníels- dóttir lést 11. mars. Mér barst sú óvænta frétt yfir hafið en Hrefna lést eftir mjög stutta sjúkdómslegu. Hrefnu kynnist ég á Kópavogs- hæli skömmu fyrir aldamótin síð- Hrefna Daníelsdóttir ✝ Hrefna Daní-elsdóttir fædd- ist 19. janúar 1942. Hún lést 11. mars 2019. Hún var jarð- sungin 18. mars 2019. ustu þegar ég fór að vinna á heimili henn- ar á hælinu. Þar hafði Hrefna búið frá táningsaldri eins og títt var með fólk með skerðingar á þeim árum. Lífs- gleði, viljastyrkur og reglusemi voru sterk persónuein- kenni Hrefnu. Við urðum fljótt góðir vinir, markmið okkar var að Hrefna fengi að flytja á sambýli. Hrefna fluttist á herbergja- sambýli 2002. Ég naut þeirrar gæfu að vera ráðinn þar til for- stöðu, ýmsir höfðu efasemdir um að kona sem hafði búið á Kópa- vogshæli yfir 40 ár myndi nýta sér það frelsi sem fylgdi því að flytja þaðan. Hrefna afsannaði það svo um munaði. Hún var fljót að mynda sér nýja rútínu, fór fljót- lega að vinna á hæfingarstöðinni Iðjubergi. Alla daga hlakkaði Hrefna til að fara í vinnu og fannst rauðir dagar í miðri viku óþarfir frídagar. Þegar hún átti frí vildi hún gera eitthvað skemmtilegt, þó að ekki væri nema að fara í Kringluna, fá sér kaffi og horfa á lífið, já og kaupa garn. Hrefna hafði lært að sauma hjá Ingibjörgu mágkonu sinni og var það hennar helsta dægradvöl. Hún var listræn mjög og bjó til einstök verk. Sýndi þau eitt sinn á samsýningu á vegum Listar án landamæra. Annað sem Hrefna naut var ut- anlandsferðir og eftir að hún flutti á sambýli og gat farið að lifa sjálf- stæðu lífi gat hún veitt sér þá ánægju. Hún fór um árabil til Kanarí í dimmasta skammdeginu eins margir á hennar aldri. Eina slíka ferð fór ég með henni og gaman þótti mér að sjá hve hún naut þess í botn. Samferð okkar Hrefnu varði í rúma tvo áratugi og Hrefna kenndi mér jafnmikið og ég henni. Ég er stoltur af vinnu minni með Hrefnu og þakklátur henni fyrir að leyfa mér að vera þátttakandi í lífi hennar. Frænkum Hrefnu, Ástu, Dag- nýju og Silvíu og þeirra fjölskyld- um sendi ég samúðarkveðjur. Þóroddur. Ástkær bróðir minn, mágur og frændi okkar, ÞORFINNUR PÉTURSSON, Njálsgötu 65, sem lést föstudaginn 8. mars, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 29. mars klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Unicef á Íslandi. Sveinn Tómasson Guðlaug Pálsdóttir Andri Sveinsson Andrea Baldursdóttir Tómas Sveinsson Þórdís V. Þórhallsdóttir Eva Guðrún Sveinsdóttir Ágúst Sverrir Daníelsson Erna Svanhvít Sveinsdóttir Guðgeir Sturluson og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR DÓROTHEA ÁRNADÓTTIR, Mánabraut 22, Vík í Mýrdal, lést á dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík laugardaginn 16. mars. Útförin mun fara fram í Víkurkirkju föstudaginn 29. mars klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasjóð Hjallatúns, rn. 0317-13-300530, kt. 430206-1410. Gunnar Bragi Jónsson Árni Gunnarsson Guðlaug Þorvaldsdóttir Solveig Sigríður Gunnarsdóttir Guðmundur Kristján Ragnarsson Hanna Arnardóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.