Morgunblaðið - 26.03.2019, Blaðsíða 25
Atvinnuauglýsingar
Vantar meiraprófsbílstjóra
í fullt starf og sumarafleysingar.
Íslenska er skilyrði
og hreint sakavottorð.
Sendið umsóknir ásamt ferilskrá
á sendibilarrvk@simnet.is
Bílstjórar óskast
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Nýsköpun í atvinnulífinu
Þórlindur Kjartansson, fyrrverandi formaður
SUS, verður gestur á hádegisfundi SES á
morgun, miðvikudaginn 27. mars kl. 12:00, í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 og mun þar ræða
um nýsköpun í atvinnulífinu.
Húsið opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi,
1000 krónur.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Stólajóga kl. 9.30.
Gönguferð kl. 10.15. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13, með
leiðbeinanda. Vatnslitun kl. 13 með leiðbeinanda, kostar ekkert. Bíó í
miðrými kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Leshringur með Heiðrúnu kl. 11. Brids kl.
13-16. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með
leiðbeinanda kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS fræðslu- og
félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535 2700.
Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld kl. 20 í Dal, neðra safnaðarheimili
kirkjunnar. Allir velkomnir, Safnaðarfélag Áskirkju, Vesturbrún 30.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og
Arnhildar organista. Boðið upp á súpu og brauð eftir stundina á vægu
verði. Félagstarfið byrjar kl. 13. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson fjallar
um hamingjuna. Spilum, prjónum, spjöllum og eigum góða samveru
saman. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Allir eru velkomnir.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Myndlist hjá Margréti kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10. Leikfimi
kl. 10-10.45. Spekingar og spaugarar kl. 10.45-11.45. Hádegismatur kl.
11.30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 13. Brids kl. 13-16. Leiðbeiningar á
tölvu kl. 13.10. Enskunámskeið kl. 13-15. Síðdegiskaffi kl. 14.30. U3A
kl. 16.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í s. 411 2790.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Kl. 11 stólaleikfimi. Kl. 13 opin hand-
verksstofa. Kl. 14.50 landið skoðað með nútímatækni. Kl. 14.30 kaffi-
veitingar. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bútasaumshópur kl. 9-12, hópþjálfun
með sjúkraþjálfara kl. 10.30-11.15, bókband kl. 13-17, frjáls spilamenn-
ska 13-16.30, handavinna með leiðbeinanda í handverkstofu kl. 13, í
dag verður farið í silkimálun, ókeypis og opið öllum. Opið kaffihús frá
kl. 14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg, síminn er 411 9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Tréskurður/smíði í Smiðju kl. 9/13.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik
málun kl. 9-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Jóga kl.
10.30-11.30. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið
kl. 10.30. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna,
kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og
jafnvægisæfingar.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju
kl. 13 til 16 alla þriðjudaga. Fyrir opna húsið er helgi- og fyrirbæna-
stund kl. 12 þar sem öllum er frjálst að mæta í og er súpa og brauð í
boði fyrir vægt gjald þar á eftir. Hér er fjölbreytt dagskrá þar sem allir
ættu að geta fundið eitthvað við hæfi.
Grensáskirkja Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Verið velkomin.
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm-/silfurmíði /
kanasta /tréskurður kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30, 1340 kr. mánuðurinn, allir
velkomnir og kostar ekkert að prufa. Hádegismatur kl. 11.30. Bónus-
bíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl 13, notaleg og skemmtileg samvera
þar sem allir eru velkomnir. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hraunsel Kl. 9 dansleikfimi, kl. 10 Qi-gong, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og
hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, kaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Listmálun í Borgum kl. 9, botsía í Borgum kl. 10 og 16 í
dag. HELGISTUND KL. 10.30 Í Borgum. Leifkimishópur Korpúlfa í
Egilshöll kl. 11, Ársæll Guðjónsson leiðbeinir. Sundleikfimi kl. 13.30 í
Grafarvogssundlaug og heimanámskennsla í Borgum kl. 16.30 í dag.
Minnum á spennandi og skemmtilegan félagsfund Korpúlfa í Borgum
kl. 13, sýndar Korpúlfamyndir frá kl. 12.30. Kaffi á könnunni og margt
skemmtilegt,
Neskirkja Krossgötur kl. 13. Guðbjörn Sigurmundsson, kennari:
Föðurlandið í ættjarðarsöngvum. Söngur, kaffi og kruðerí.
Seljakirkja Menningarvaka eldri borgara verður í kvöld kl. 18.
Ragnar Önundarson og Raggi Bjarna sjá um dagskrána. Matur á eftir.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 567 0110.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Helgistund, dagskrá og veitingar í
kirkjunni í dag kl. 14. Ómar Ragnarsson verður gestur dagsins og
mun hann fara út um víðan völl. Allir velkomnir. Karlakaffi í safnaðar-
heimilinu kl. 14.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka-
bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Skák kl. 13. Allir velkomnir í hópinn
Félagslíf
EDDA 6019032619 III
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Bátar
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019
Fimmtudaginn 6.
mars fékk ég skelfi-
legt símtal frá elsku
systur minni og var
hún að láta mig vita að Davíð
væri dáinn, hann hefði látist af
slysförum.
Ég trúði ekki mínum eigin
eyrum, Davíð farinn og ég sem
var fyrir svo stuttu að jarða
manninn minn. Hvað er að ger-
ast? Ég bara trúi ekki að Davíð,
þessi ljúfi og heilbrigði maður, sé
farinn og tekinn allt of fljótt frá
fjölskyldu sinni og ástvinum. Við
vorum jafnaldrar, hann fæddur
16. mars og ég 24. mars 1962.
Þá fer hugurinn á flug og
minningar um þennan fallega,
hjartahlýja, góða mann koma í
hrönnum upp í hugann.
Ég veit ekki um neinn sem
elskaði hestamennskuna svona
mikið eins og hann, nema
kannski hann föður minn. Hún
var honum allt, eins og hann
sagði alltaf sjálfur: ég elska að
vera með hestum og allt sem
hestamennskunni fylgir - útiver-
an, félagsskapurinn, umhirðan -
bara allt, og Davíð var manneskj-
an sem spurði alltaf þegar hann
kíkti á mig: hvernig hefur þú það,
Anna mín? og hrósaði mér fyrir
hvað ég væri sterk vegna fráfalls
Gunnars míns.
Spurði hvort ég væri örugg-
lega ekki að gera eitthvað fyrir
sjálfa mig því það skipti svo
miklu máli, og vera dugleg að
fara út að labba, það væri það
Davíð Sigurðsson
✝ Davíð Sigurðs-son fæddist 16.
mars 1962. Hann
lést af slysförum 6.
mars 2019.
Útför Davíðs fór
fram 15. mars
2019.
besta sem til væri
fyrir skrokkinn og
hugann. Svo sagði
hann alltaf: þú ættir
bara að fara til
Stellu minnar, þið
hafið svo gott af því
að vera saman og
gera eitthvað
saman. Þú ert alltaf
velkomin í okkar
hús, Anna mín.
Davíð var þessi
maður sem hvatti mann áfram í
að fara út fyrir kassann og aldrei
mátti hann neitt aumt sjá hjá
neinum - ef hann gat hjálpað þá
hjálpaði hann. Ljúfari mann og
traustari er erfitt að finna, mann-
gæskan og hjartahlýjan var
endalaus.
Elsku Davíð, takk fyrir að hafa
komið inn í líf mitt, takk fyrir all-
ar heimsóknirnar, takk fyrir allar
góðu leiðbeiningarnar. Þín verð-
ur sárt saknað, elsku Davíð minn.
Megi góður guð blessa fjölskyldu
þína og gefa henni styrk í sorg-
inni.
Elsku Stella mín, þú átt alla
mína samúð og börnin ykkar
fimm, Eva Dögg, Gaukur, Nói,
Aníta og Jósua.
Ég veit hvað er framundan hjá
ykkur en þið eruð svo samheldin
og heil, það er svo gott í þessu
öllu.
Blessuð sé minning um virki-
lega góðan mann.
Með sorg í hjarta ég kveð þig kæri
vinur.
Þú ljósið bjart í lífi okkar allra.
Vertu sæll, vertu sæll, þú yndislegi
maður.
Með brostið hjarta og tár á kinn
ég kveð þig í sólarlandið bjarta.
Kær kveðja,
Anna Guðjónsdóttir
og fjölskylda.
Genginn er á vit
feðra sinna félagi
minn og vinur
Gunnar Oddsson í
Flatatungu. Sem
unglingar kynntumst við lítið en ég
heyrði oft rætt um þennan efnilega
dreng, sem væri að vaxa upp í
Flatatungu.
En það var svo föstudaginn 13.
apríl 1956 að ég var á ferð suður í
Borgarfirði með Ásmundi Jónssyni
(1907-1974) og Ingólfi Kristjáns-
syni (1940-2001) á Hólum. Ás-
mundur hafði lagt miðstöð í íbúðar-
húsið í Flatatungu og Gunnar verið
handlangari hjá honum um tíma.
Dag þennan hafði Ásmundur verið
að heimsækja vini og kunningja í
Borgarfirði og ekki kom annað til
greina en að líta til Gunnars, sem
þá var nemandi í framhaldsdeild-
inni á Hvanneyri. Við hittum hann
úti við, gengum með honum stétt-
ina frá Skólastjórahúsinu að
heimavist, upp á herbergi og röbb-
uðum þar við hann góða stund. Mér
varð þá ljóst að hér fór drengur,
sem mikið var í spunnið.
Gunnar var ágætis námsmaður,
líkaði vel vistin á Hvanneyri og
eignaðist þar marga vini til lífstíð-
ar. Hann var gleðskaparmaður,
tónvís, hafði yndi af söng og vísna-
gerð og var góður hagyrðingur.
Eftir að hafa lokið kandídats-
prófi í búfræði var hann ráðunaut-
ur hjá Búnaðarsambandi Skagfirð-
inga á árunum 1957 til 1959 en þá
sneri hann sér að búskap í Flata-
tungu. Gunnar var bóndi af lífi og
sál, bráðglöggur á skepnur og hinn
besti fjár- og fjárræktarmaður.
Er tímar liðu varð samferða-
Gunnar Oddsson
✝ Gunnar Odds-son fæddist 11.
mars 1934. Hann
lést 10. mars 2019.
Útför Gunnars
fór fram 16. mars
2019.
mönnum ljóst að
bóndinn í Flata-
tungu var til margra
hluta fær og kusu
hann til ýmissa fé-
lagsmálastarfa.
Hann haslaði sér
snemma völl meðal
samvinnumanna og
vann á þeim vett-
vangi af mikilli ósér-
hlífni og trú-
mennsku meðan
heilsa leyfði. Sérstaklega vil ég
nefna störf hans fyrir Kaupfélag
Skagfirðinga, sem voru félaginu
og héraðinu mjög verðmæt. Þá
sat hann Búnaðarþing, var þar
góður liðsmaður og landverndar-
mál lét hann sig miklu varða.
Hann var hreinskilinn og heiðar-
legur í öllum sínum gerðum.
Það var gott að vinna með
Gunnari, hann sá þau atriði, sem
skiptu mestu og átti auðvelt með
að færa rök fyrir máli sínu á
glöggan og skilvirkan hátt. Hann
gat verið harður á meiningu sinni,
sérstaklega ef um var að ræða
hag lands og þjóðar. Fullveldi
þjóðarinnar var honum heilagt
mál. Hann fylgdist alla tíð mjög
vel með þjóðmálum og lagði þar
orð í belg, bæði í ræðu og riti, svo
eftir var tekið.
Gunnar trúði því að hverjum og
einum væri skammtaður tími hér
á jörðu af máttarvöldum æðri
okkur mönnunum. Hans tími er
nú liðinn og verkefni bíða hans á
öðru tilverusviði.
Ég vil að leiðarlokum þakka
Gunnari samfylgdina og alúð hans
og vináttu í minn garð, sem aldrei
bar skugga á. Góður drengur er
genginn en minningin lifir og ylj-
ar okkur, sem eftir stöndum, um
ókomin ár. Guð blessi minningu
hans og styrki og leiði hans ágætu
fjölskyldu.
Sigtryggur Jón Björnsson
frá Framnesi.