Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 31

Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019 Þrátt fyrir tvær veigamiklarmannabreytingar á aug-lýstri dagskrá vegna for-falla, þ.e. einsöngvarans (í Canteloube) og stjórnandans í stað Anne Sofie von Otters og Torte- liers, lét aðsóknin samt ekki að sér hæða á ,grænu‘ tónleikum SÍ sl. fimmtudag. Hún reyndist nefnilega í bezta standi og kom manni m.a.s. til að vona að þrátt fyrir dæmigert stjörnudekur okkar tíma þyki við- fangsefnin (tónverkin!) enn hafa svolítið að segja. Þau voru líka allrar athygli verð. Því jafnvel þótt ,þyngri og merki- legri‘ klassískir ópusar einkenni oftar áskriftartónleika hljómsveitar allra landsmanna, þá gat að þessu sinni að heyra skemmtileg dæmi um verk er höfðað gætu til breiðari hlustendahóps án þess endilega að dekra við ríkjandi markaðs- samnefnara. Snöggt upp talið fóru hér fyrst afar persónuleg en jafnframt ærslafull ástarjátning Atla Heimis Sveinssonar til undrabarns allra undrabarna, þá náttúruljúfar út- setningar Canteloubes á hjarð- söngvum Auvergnebúa í seiðandi nútímalegalegri orkestrun – og loks sjaldheyrð æskusinfónía Car- men-meistarans Bizets, er geislaði af gallískum þokka og glitrandi snerpu í sópandi snarpri útfærslu Bjarna Frímanns og hljómsveitar. Í Alla turca og svo framvegis frá 250. fæðingarári Wolfgangs 2006 sagði tónleikaskrá Atla Heimi „mæta klassíska stílnum og kanna þær slóðir er liggja milli Mozarts og okkar eigin tíma“. Hljómsveitar- útsetningin á alþekktum Rondó- þætti Píanósónötu K331 í A var nú endurflutt í fyrsta sinn frá frum- flutningi Rumons Gamba 2007. Hún hélt sig fyrstu þrjár mín- úturnar á skikkanlegri mottu ef svo má segja, þar sem Einar Jóhanns- son og SÍ skiluðu frumverkinu samvizkusamlega. En svo tók held- ur betur að kárna, og virtist áður en varði engu líkara en að glaðví- maður unglingahópur hefði tekið völdin og ætlaði að umturna öllu sem umturnað varð – ekki aðeins Rondóinu heldur ýmsu öðru úr tón- fórum snillingsins, þ. á m. úr Töfra- flautunni og stórbrotnum lokaþætti Júpítersinfóníunnar – sem er reyndar fyrir e.k. „cross-over“ milli barokk-pólýfóníu og afþreyjandi Vínarklassíkur og því sjálfgefið til- efni til frekari stílblöndu er ,kame- ljón íslenzkrar nútímatónlistar‘ nýtti sér í botn. Og með bros á vör. Chants d‘Auvergne – þekktasta verk franska þjóðlagasafnarans Marie-Joseph Canteloubes (1879- 1957) samanstendur af útsetn- ingum á þjóðlögum héraðsins fyrir hljómsveit og mezzosópran og er misjafnt hvað flutt eru mörg lög saman í syrpu, þó oftast sé byrjað á Baïlero. Yndislega einfaldar mel- ódíur á Languedoc-tungu trúba- dúra, en á móti meistaralega út- settar af vellandi impressjónískri litadýrð sem staðizt hefur tímans tönn. Kannast ugglaust margir við frábæra útgáfu Antonios de Al- meida með Fredericu von Stade frá 9. áratug, þótt fleiri hafi síðan bætzt við, t.a.m. með söng Kiri te Kanawa. Miðað við fyrri hljómplötuupplif- anir olli þessi fyrsta lifandi reynsla manns því miður nokkrum von- brigðum; einkum fyrir hvað neðra tónsvið söngsins barst illa um sal. Að vísu er aldrei auðvelt að hlaupa í forfallaskarð með stuttum fyr- irvara, fyrir utan hve styrkrænt samvægi er vandfengið í viðamikilli orkestrun – og það í sal sem ekki er sérhannaður fyrir söng. En miðað við hvað einsöngvarar í La traviata skiluðu sér þó vel fyrir skömmu, má skrifa jafnvægisvandann að hluta á hljómsveitarstjórann er hefði hugsanlega mátt gæta ýtrara aðhalds í hljómsveitarstyrk. Charlotte Hellekant stóð sig að öðru leyti með prýði og var for- kunnarvel tekið, jafnvel þótt undirritaður þættist stundum kenna vott af lafandi tónhæð – og laustitruðum fókus, er vill ágerast í erfiðum húsum. Bjarni Frímann rak þó rækilega af sér alla slyðru í lokaatriði tón- leikanna, 1. sinfóníu hins aðeins 17 ára gamla Georges Bizet frá 1855 er síðan vildi sem minnst af vita – e.t.v. af ímynduðum ótta við að vera borinn saman við fyrirmynd hans og læriföður Gounod, eins og Árni Heimir Ingólfsson ýjaði að í tónleikaskrá. Fór hér hreint út sagt makalaus smíð. Ekki sízt í samanburði við ýmsa eldri og þroskaðri tónhöf- unda 19. aldar eins og Schumann (hvað þá í orkestrun!) sem, án þess í sjálfu sér að vera neins staðar átakanlega ,frumleg‘, yppti geð guma í æðsta veldi af fisléttu yfir- borði í neistasnarpri útreið Bjarna og meðreiðarsveina & -meyja. Gladdi þar eyrað geysimargt. Þ. á m. faldafeykjandi can can yfir- bragð I. þáttar, kristalstært spíg- sporandi strengjafúgató II., sprettfjörug alla caccia veiði- mennskan í III. – og eldvakur lokaþátturinn, er tifaði eftir ofur- nákvæmri skeiðklukku handan jarðnesks þyngdarafls – líkt og skjaldaður væri cavorite-málmi H.G. Wells. Í minningu Lenny Bernsteins heitins, er haslaði sér varanlegan stjórnandavöll með því að hlaupa í forfallaskarð Brunos Walter 1943, mátti því ósjálfrátt spyrja hvort annað eins hefði nú gerzt um Bjarna Frímann Bjarnason? Það á væntanlega eftir að koma í ljós … Íslenzkur Bernstein? Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjórnandinn „Bjarni Frímann rak þó rækilega af sér alla slyðru í loka- atriði tónleikanna,“ segir rýnir um frammistöðu íhlaupastjórnandans unga. Eldborg í Hörpu Sinfóníutónleikarbbbnn Atli Heimir Sveinsson / W.A. Mozart: Alla turca og svo framvegis.* Cante- loube: Söngvar frá Auvergne.** Bizet: Sinfónía í C. Einar Jóhannesson klar.,* Charlotte Hellekant MS.** Sinfón- íuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason. Fimmtudaginn 21.3. kl. 19.30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Bresk-bandaríska söngvaskáldið og upptökustjórinn Scott Walker er lát- inn, 76 ára aldri. Leið Walker í tón- listinni var óvenjuleg; hann sló í gegn sem dægurlagastjarna á sjö- unda áratugnum en varð síðan þekktastur fyrir tilraunakennda- og framúrstefnulega tónlist sem naut ekki síst mikillar hylli í röðum ann- arra listamanna, og þá einkum á Bretlandi. Í heimildarkvikmyndinni 30 Cent- ury Man sem gerð var um Walker árið 2006 má heyra stjörnur á borð við David Bowie, sem framleiddi myndina, Jarvis Cocker, Damon Al- barn og Brian Eno tala um aðdáun sína á verkum hans. Thom Yorke, söngvari Radiohead, var einn þeirra sem minntust Walkers í gær. Hann tísti um áhrif hans á Radiohead og sjálfan sig og sagði Walker hafa kannt sér að fara með rödd sína og orð. Hinn raddfagri Walker komst fyrst í sviðsljósið á miðjum sjöunda áratugnum með hljómsveitinni The Walker Brothers en sendi síðan frá sér röð marglofaðra sólóskífa sem þykja hafa þanið út mörk dægur- tónlistar síns tíma. Á seinni árum samdi hann meðal annars tónlist fyr- ir nokkrar kvikmyndir. Scott Walker látinn Áhrifamikill Ýmsar stjörnur voru meðal aðdáenda Scotts Walkers. „Með kærleiks- meiningar vin- mælum“: Sátta- nefndir og lausn deilumála á 19. öld er heiti fyrirlesturs sem Vilhelm Vil- helmsson sagn- fræðingur flyt- ur í hádeginu í dag í fyrir- lestrasal Þjóð- minjasafns Íslands. Sagnfræðinga- félag Íslands skipuleggur hádegisfyrirlesturinn í samvinnu við Þjóðminjasafnið og er hann hluti af fyrirlestraröðinni „Saga réttarfars og refsinga“. Vilhelm er forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og með doktorspróf í sagnfræði frá Há- skóla Íslands. Sáttanefndir og lausn deilumála Vilhelm Vilhelmsson Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 31/3 kl. 13:00 Sun 28/4 kl. 16:00 Sun 19/5 kl. 13:00 Sun 31/3 kl. 16:00 Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 19/5 kl. 16:00 Sun 7/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Sun 7/4 kl. 16:00 Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 2/6 kl. 13:00 Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Lau 8/6 kl. 13:00 Sun 14/4 kl. 16:00 Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas. Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 29/3 kl. 19:30 Lau 13/4 kl. 19:30 Fös 5/4 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30 Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 Lau 6/4 kl. 19:30 Fös 3/5 kl. 19:30 Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 29/3 kl. 18:00 Aukas. Fös 5/4 kl. 18:00 Aukas. Lau 13/4 kl. 15:00 Lau 30/3 kl. 15:00 Lau 6/4 kl. 15:00 Lau 13/4 kl. 17:00 Sun 31/3 kl. 15:00 Sun 7/4 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 15:00 Sun 31/3 kl. 17:00 Sun 7/4 kl. 17:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 17:00 Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas. Mið 24/4 kl. 19:30 Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas. Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor Loddarinn (Stóra Sviðið) Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið) Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 28/3 kl. 21:00 Fös 29/3 kl. 22:00 Lau 30/3 kl. 22:00 Fös 29/3 kl. 19:30 Lau 30/3 kl. 19:30 Dimmalimm (Brúðuloftið) Lau 30/3 kl. 14:00 Lau 6/4 kl. 14:00 Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Fös 3/5 kl. 19:00 aukas. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Frumsýning 15. mars. Elly (Stóra sviðið) Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Ríkharður III (Stóra sviðið) Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas. Síðustu sýningar komnar í sölu. Kvenfólk (Nýja sviðið) Lau 30/3 kl. 20:00 45. s Lau 6/4 kl. 20:00 46. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Club Romantica (Nýja sviðið) Fim 28/3 kl. 20:00 7. s Fös 5/4 kl. 20:00 8. s Hvað varð um konuna? Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 aukas. Aukasýning komin í sölu. Bæng! (Nýja sviðið) Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s Alltof mikið testósterón Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.