Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 10
T
inna er 14 ára nemandi í
Hagaskóla sem býr með
móður sinni Áslaugu Björt
og kettinum Sæmundi í
Skerjafirðinum. Tinna
syngur mikið og er í Stúlknakór
Reykjavíkur. Er einnig virk í fé-
lagsstörfum, er í stjórn femínista-
félagsins Ronju í Hagaskóla og í
Ungmennaráði Vesturbæjar,
Miðborgar og Hlíða svo
dæmi séu tekin. Tinna mun
fermast borgaralega hjá
Siðmennt þann 31. mars
og til stendur að fagna
áfanganum með fjöl-
skyldu og vinum í há-
degisverði á eftir.
Pláss fyrir það sem
gefur gleði
Hvernig lýsið þið míni-
malískum lífsstíl?
„Fólk leggur eflaust mis-
munandi skilning í hugtakið
mínimalískur lífsstíll. Í stuttu máli
má segja að hann snúist um að ein-
falda líf sitt þannig að maður búi til
meira pláss fyrir það sem gefur
manni raunverulega gleði og
ánægju, hvort sem það eru hlutir
eða upplifanir. Mínimalískur lífsstíll
er í rauninni svar við efnishyggju og
óhóflegri neyslu sem ekki aðeins er
á kostnað umhverfisins heldur einn-
ig persónulegs frelsis, innri friðar,
tíma og peninga. Það sem hann þýð-
ir til dæmis fyrir okkur er að við vilj-
um aðeins hafa í kringum okkur á
heimilinu hluti sem hafa tilfinn-
ingalegt gildi eða veita okkur
ánægju. Tími er dýrmætur og það er
mikilvægt að reyna að haga lífinu
þannig að hann fari ekki allur í ein-
hverja sókn eftir vindi, að umgjörðin
sem maður hefur búið sér sé ekki
svo frek á tíma og peninga að ekkert
svigrúm sé til að njóta þess bara að
því góða fólki sem tilheyrir lífi
Tinnu. Hún á stóra fjölskyldu –
pabba, stjúpmömmu, mörg systkini
og stjúpsystkini og að öllu þessu
fólki standa margir sem verður
mikið gaman að fá alla saman
þennan dag. Þetta var aðal-
atriðið þegar farið var að
skipuleggja daginn. Þetta
verður nokkuð mannmargt
og því ekki hægt að halda
veisluna heima, en okkur
fannst mikilvægast að ná
öllum saman og njóta dags-
ins,“ segir Áslaug og Tinna
tekur við: „Ég vil ekki að við
missum okkur í að allt þurfi að
vera flott og fullkomið, það þarf til
dæmis ekki endilega ný föt og
reyndar langar mig mest að finna
notuð fermingarföt, en flest mín föt
kaupi ég í búðum sem selja þannig
föt. Ég ætla ekki í hárgreiðslu, ætla
að sjá um það sjálf, ég vil hafa tau-
servéttur í veislunni og ekki kaupa
allskonar einnota skraut og dót sem
endar svo bara í ruslinu eftir dag-
inn.“
Minimalsimi minnkar stressið
„Mér finnst mikilvægast að njóta
þess að vera með allri fjölskyldunni,
borða saman góðan mat og hafa
gaman. Við kaupum bara þann mat
sem við borðum á staðnum svo mat-
arsóun verður í lágmarki og mamma
ætlar að baka franska súkkulaði-
köku, sem er uppáhaldið mitt,“ segir
Tinna.
Hafið þið alltaf aðhyllst mínimal-
ískan lífsstíl?
„Þessi hugmyndafræði hefur allt-
af höfðað til mín en einnig höfum við
í auknum mæli orðið meðvitaðri um
mikilvægi þess að virða jörðina og
gera okkur grein fyrir þeim áhrifum
sem lífsstíll okkar hefur á hana.
Tinna er afar meðvituð um um-
hverfismál og það er því auðvelt að
vinna saman að því að gera það sem í
okkar valdi stendur til að bera virð-
ingu fyrir umhverfinu. Síðustu ár
höfum við smám saman einfaldað líf-
ið mikið og það hefur ótrúlega já-
kvæð áhrif á tilveruna að minnka all-
an óþarfa, stress og sóun,“ segir
Áslaug.
Tinna segir lífsstílinn hafa breytt
ýmsu fyrir þær. „Ég hugsa allt öðru-
vísi um það hvað ég kaupi og hvað
mig vantar. Nú vil ég frekar kaupa
notuð föt og áður en ég kaupi flík
hugsa ég hvort mig raunverulega
vanti hana eða langi í hana. Við vilj-
um líka gera okkar besta til að
vernda umhverfið, flokkum rusl, gef-
um frekar upplifanir en hluti þegar
við veljum gjafir og margt fleira.“
Áslaug segir þessar áherslur birt-
ast í mörgu við heimilishaldið. „Við
notum til dæmis hvorki mýkingar-
efni né hefðbundið þvottaefni, erum
hættar að nota sjampó í plast-
brúsum, hendum ekki mat og nýtum
alla afganga, kaupum eins og hægt
er vörur sem eru ekki í plast-
umbúðum og svona mætti lengi
telja. Við eigum aðeins sængurföt til
skiptanna, ekki nema fjögur hand-
klæði, bara þann borðbúnað sem við
notum o.s.frv. Við eigum ekki marga
hluti, en erum ánægðar með það
sem við eigum. Bækurnar eru lík-
lega stærsta áskorunin, en ég á tals-
vert af bókum. Á síðustu árum hef
ég þó takmarkað mig við ákveðið
hillupláss fyrir þær og þegar fer að
flóa út fyrir, gef ég einhverjar til að
rýma til.“
Mínimalískar veitingar
minnka matarsóun
Hvernig eru mínimalískar veit-
ingar?
„Einfalt er alltaf best og mínimal-
ískar veitingar eru líklega þannig að
nýting sé sem best og að mat sé ekki
sóað. Í fermingarveislunni kaupum
við reyndar veitingar á veitinga-
staðnum þar sem veislan verður
haldin, en þar er það fagfólk sem
áætlar veitingarnar miðað við fjölda
svo líklega þarf ekki að hafa áhyggj-
ur af því að mikið fari til spillis.“
Hvað misskilur fólk oft við lífsstíl-
inn?
„Það sem sennilega er algengasti
misskilningurinn er að þessi lífsstíll
snúist um að maður eigi ekkert, það
sé allt tómt inni hjá manni o.s.frv.
Aðalmálið er meðvitund um hvað
maður vill hafa í kringum sig og
hvernig maður hagar sinni neyslu og
hagar sér sem neytandi almennt.
Einnig er grundvallaratriði að mað-
ur byrji á réttum enda, þ.e.a.s. að
maður ákveði fyrst hvað skipti mann
mestu máli í lífinu og sníði svo lífs-
stílinn að þeim áherslum, en ekki
öfugt,“ segir Áslaug.
Einfalt en gott
Tinna segir þær mæðgur trúaðar,
en að þær vilji ekki skilgreina sig
undir einhver ákveðin trúarbrögð.
„Ég tók þess vegna þá ákvörðun að
fermast borgaralega. Þar er lögð
áhersla á siðferði, ábyrgð, mannrétt-
indi og margt fleira sem skiptir máli
við að vera upplýstur og virkur í
mannlegu samfélagi. Mér finnst það
mikilvægt.“
Tinna segir að þegar hún var
yngri hafi hún séð fyrir sér að ferm-
ingardagurinn yrði rosalega stór
dagur og langaði hana að hafa allt
mjög flott. „En núna þegar að þessu
er komið er ég alveg róleg yfir þessu
og langar bara að hafa þetta einfalt.
Það er alltaf verið að búa til svo
mikla neyslu í kringum allt, en það
þarf ekki að neysluvæða það að eitt-
hvað stórt sé að gerast í lífinu. Dag-
urinn er jafn hátíðlegur og góður
þótt það sé ekki verið að kaupa alls-
konar dót sem skiptir engu máli.“
Fermingar að hætti mínimalista
Tinna Kjartansdóttir og
Áslaug Björt Guð-
mundsdóttir segja míni-
malíska fermingu mjög
innihaldsríka. Þær not-
ast við tausérvéttur.
Gestir panta einvörð-
ungu það sem þeir
borða og matarsóun er
því í lágmarki.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Lifandi blóm eru algeng í veislum minimalista og tau
sérvéttur. Ekki er keypt óþarfa dót.
Veislur að hætti mínimalista eru einfaldar en
mjög innihaldsríkar að margra mati.
Áslaug og Tinna aðhyllast mínimal-
ískan lífsstíl og ætla að halda ferm-
ingu í þeim anda.
vera til með þeim sem manni þykir
vænt um. Áreitið í umhverfinu er of-
boðslegt og einhvern veginn gera
markaðsöflin alltaf út á það að mann
vanti eitthvað, að maður sé ófull-
kominn eins og maður er. Þetta vilj-
um við vera meðvitaðar um og hafa
sjálfar á hreinu hvernig við viljum
hafa hlutina í stað þess að hlaupa
eftir því sem einhverjir aðrir hafa
ákveðið að sé nauðsynlegt,“ segja
þær.
Hvernig gerir maður mínimalíska
fermingarveislu?
„Á fermingardaginn langar okkur
helst að njóta þess að vera með öllu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
fabrikku-
borgarinn
Í Brioche brauði
með bræddum osti og
Fabrikkusósu.
Fabrikkusmá-
borgararnir
slá í gegn í
öllum veislum.
30 borgarar á
hverjum bakka!
6 gómsætar
tegundir í boði!
Ferköntuð
fermingarveisla
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR
Það er mjög gaman að velta
fyrir sér möguleikunum
sem í boði eru þegar
kemur að mínimalískri
nálgun á fermingar.
Kaka í anda mínimalista
er einföld og oft á tíðum
er forðast að nota sykur
eða önnur efni sem þykja
ekki góð fyrir líkamann.
Mínimalistar skreyta með lifandi
blómum og gefa oft gestunum
blómin með heim. Fatnaður í
anda mínimalista er ýmist tíma-
bilsfatnaður eða jafnvel fatnaður
sem búinn er til úr gæðaefnum
og endist (e. Slow Fashion). Allir
skargripir eru einfaldir og stand-
ast tímans tönn. Það er greini-
lega ekki leiðinlegt að vera míni-
malisti enda er hugsunin sem býr
að baki að minna sé meira.
Mínimalískar hugmyndir
Fatnaður í anda mínimalista er oft látlaus
fatnaður úr góðum efnum sem endist.
Kross í anda
mínimalista.
Lifandi blóm á sykurlausri köku
sem er í anda mínimalista.
Kaka skreytt í
anda mínimalista.