Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Fylgist með á facebook
Skipholti 29b • S. 551 4422
Litríkur vorfatnaður
E
va María segir að það hafi
margt breyst tengt ferm-
ingarkökum á liðnum ár-
um. Eva er mikil áhuga-
manneskja um
eldamennsku og veit fátt betra en að
elda og borða góðan mat.
Átti í fyrstu eina
hrærivél og bakarofn
Hefurðu alltaf haft áhuga á
kökum?
„Bakstursáhuginn byrjaði ekki
fyrr en ég varð móðir fyrir 10 árum.
Ætli ég geti ekki sagt að hann hafi
síðan aukist samhliða afmælum hjá
syni mínum. Hugmyndin að Sætum
syndum varð til fyrir rétt rúmlega
sex árum en ég byrjaði bara með litla
Kitchenaid-hrærivél sem ég átti og
lítinn heimilisbakarofn.“
Á þessum tíma langaði Evu Maríu
að prófa sig áfram og sjá hvort hún
gæti verið með sitt eigið fyrirtæki á
þessu sviði. „Ég hugsaði með mér að í
versta falli færi ég þá bara aftur að
vinna fyrir aðra.“
Fyrirtækið hefur gengið vel þótt
hún geti ekki sagt að þetta hafi verið
leikur einn. „Blóð, sviti og tár hafa
komið fyrirtækinu á þann stað sem
það er á í dag.
Langur vinnudagur, engin frí og
lítil laun var það sem þurfti til að láta
þetta ganga fyrstu árin.“
Gat ekki átt annað barn
og stofnaði þá fyrirtækið
Hún segir Sætar syndir annað
barnið sitt, en hún á soninn Hilmi
og ætlaði sér alltaf að eignast fleiri
börn. „Hilmir sonur minn kom
löngu fyrir tímann í heiminn. Ég
fékk mikla meðgöngueitrun. Hann
átti að fæðast í byrjun september
en var tekinn með bráðakeisara í
lok júní. Það gekk svo illa að ná
blóðþrýstingnum hjá mér niður að
ég þurfti að vera inni á spítala í
tvær vikur eftir keisarann. Hár
blóðþrýstingur er eitt af einkenn-
um meðgöngueitrunar. Eftir með-
gönguna var mér ráðlagt að eign-
ast ekki fleiri börn þar sem það
þótti líklegt að ég fengi með-
göngueitrun aftur.
Mig langaði alltaf í fleiri börn en
varð að sætta mig við að fyrirtækið
yrði eins og mitt annað barn.“
Eva María segir að stundum
hafi læðst að sér spurningin hvað
hún væri búin að koma sér í.
Þurfti að hringja í frænku fyrst
„Við erum tíu konur sem
vinnum í fyrirtækinu í dag, sumar í
fullri vinnu og aðrar í hlutastarfi.
Við erum allar mjög góðar vinkon-
ur og andinn hjá okkur er góður.“
Eva María segir að frænka sín
sé búin að gera mikið grín að sér
þar sem í fyrstu hafi hún hringt í
hana og spurt hvernig ætti að gera
skúffuköku!
Hvað er í tísku tengt kökum í
fermingu?
„Marmaraáferð á kökum er vin-
sæl sem og „drip“-kökur. Rósagull,
gull og silfur svo ekki sé gleymt að
minnast á pastellitina.“
Hún segir hringlaga kökur á
hæðum algjörlega búnar að taka við
af kassalaga kökum.
„Þegar ég byrjaði fyrir sex árum
voru kassalaga fermingartertur
vinsælar og gömlu góðu sálmabæk-
urnar. Þessar kökur eru sjaldséðar
á veisluborðum í dag þótt auðvitað
komi ein og ein slík pöntun reglu-
lega inn á borð til okkar.“
Mikið fyrir einfaldar kökur sjálf
Evu Maríu finnst sjálfri einfald-
leikinn oft fallegastur þegar kemur
að kökum.
„Naktar kökur með lifandi blóm-
um eða „drip“-kökur í fallegum lit-
um finnst mér yfirleitt fallegustu
kökurnar.“
Áttu ráð fyrir þá sem eru að
undirbúa ferminguna?
„Ég mæli með að fólk hafi veisl-
una alla, skreytingar, veitingar og
kökurnar, bara eftir eigin smekk.
Tískan kemur og fer og skiptir ekki
öllu máli. Að setja eigin stíl á veisl-
una ætti alltaf að vera í forgrunni.“
Kleinuhringir það nýjasta
Sérðu eitthvað alveg nýtt um
þessar mundir?
„Kleinuhringir og makkarónur
hafa vaxið í vinsældum. Við bjóðum
upp á yfir 25 bragðtegundir af
makkarónum. Síðan vorum við að
hefja framleiðslu á okkar eigin
kleinuhringjum sem eru dásamlega
bragðgóðir og auðvitað fallegir líka.
Punkturinn yfir i-ið er að setja
Kleinuhringir og makkarónur vin-
sælt góðgæti í fermingarveislum
Eva María er eigandi Sætra synda. Hún stofnaði
fyrirtækið fyrir sex árum með eina hrærivél og heim-
ilisofn. Síðan þá hefur það stækkað hægt og rólega.
Í viðtalinu segir hún okkur allt það nýjasta um kökur
og önnur sætindi í fermingarveisluna.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litlar bollakökur og makkarónur í fallegum þema litum fermingarinnar gera mikið fyrir veisluborðið.
Eva María hefur þróað hæfni sína í bakstri heilmikið á undanförnum árum. SJÁ SÍÐU 44