Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2019, Side 8
lögreglumennirnir báru á sér að
hann hafi ekki hlýtt fyrirmælum á
vettvangi og að hann hafi aug-
ljóslega verið með eitthvað í hend-
inni. Í máli Schuberts kom fram að
hegðun Clarks hefði verið ógnandi.
Í dagblaðinu Sacramento Bee er
því haldið fram að Schubert hafi lát-
ið rannsaka yfir þrjátíu mál frá
árinu 2015, þar sem lögreglumenn
hleyptu af vopnum sínum, og engu
þeirra hafi lokið með ákæru.
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu er
ekki víst að málinu sé lokið en í yf-
irlýsingu sem lögreglan í Sacra-
mento sendi frá sér í
framhaldi af til-
kynningu Schu-
berts kemur
fram að það
on Clark, 22 ára gömlum manni, að
bana í borginni í mars í fyrra. Undir
þetta sjónarmið tekur ríkissaksókn-
ari Kaliforníu, Xavier Becerra, sem
einnig skýrði mál sitt á fundi með
blaðamönnum.
Clark var staddur úti í garði við
heimili ömmu sinnar að kvöldlagi
18. mars 2018 þegar tveir lög-
reglumenn komu aðvífandi og gáfu
Þegar horft er til staðreyndaog aðstæðna spyrjum viðokkur: var glæpur framinn?
Svarið við þeirri spurningu er nei,“
sagði Anne Marie Schubert, héraðs-
saksóknari í Sacramento, á blaða-
mannafundi á dögunum, þar sem
hún gerði grein fyrir þeirri ákvörð-
un sinni að ákæra ekki lög-
reglumennina tvo sem urðu Steph-
honum fyrirmæli um að sýna hend-
urnar á sér en rannsókn leiddi í ljós
að lögreglumennirnir töldu Clark
vopnaðan. Innan við tuttugu sek-
úndum síðar hófu þeir skothríð og
hæfðu Clark átta sinnum, sam-
kvæmt krufningarskýrslu. Hann
lést af sárum sínum. Það sem lög-
reglumennirnir töldu byssu reynd-
ist vera farsími. Þeir voru á vett-
vangi til að bregðast við ábendingu
um að maður væri að mölva bílrúð-
ur í hverfinu.
Enda þótt Clark hafi verið óvopn-
aður er það niðurstaða rannsóknar
óháðs aðila að lögreglumennirnir,
Terrence Mercadal og Jared Rob-
inet, hafi verið í fullum rétti; þeir
hafi talið öryggi sínu ógnað og fyrir
vikið mátt beita vopnum sínum.
Hlýddi ekki fyrirmælum
Becerra staðfestir að Clark hafi
ítrekað komist í kast við lögin á
stuttri ævi og að hann hafi ný-
lega verið laus úr fangelsi
þegar hann var skot-
inn til bana. Þá sé
ljóst af myndum úr
myndavélum sem
komi nú til kasta alríkisins. „Núna
þegar rannsókn á dauða Stephons
Clarks er lokið á vettvangi yfirvalda
á staðnum og í ríkinu munu rík-
issaksóknari og alríkislögreglan,
FBI, í samstarfi við mannréttinda-
stofu dómsmálaráðuneytisins kanna
hvort brotið var á mannréttindum
hr. Clarks,“ segir í yfirlýsingunni.
Þar kemur einnig fram að stuðst
verði við rannsóknargögn og niður-
stöður sem þegar liggja fyrir, auk
þess sem frekari skref verða tekin ef
þurfa þykir.
Niðurstaða saksóknara hefur kall-
að á hörð viðbrögð frá fjölskyldu
Clarks og stuðningsmönnum. „Þeir
tóku son minn af lífi. Þeir tóku hann
af lífi í bakgarðinum hjá móður
minni. Þetta er ekki rétt,“ sagði Se-
’Quette Clark, móðir hins látna, við
blaðamenn eftir að niðurstaðan lá
fyrir.
Athygli vakti að Schubert vitnaði
í símaskilaboð og tölvupósta Clarks
og fleira persónulegt á blaðamanna-
fundinum til að sýna fram á að hann
hefði verið í ójafnvægi dagana áður
en hann lést. Talsmenn fjölskyld-
unnar hafa gagnrýnt þetta og talað
um „karaktermorð“ í því sambandi.
„Hún kom aldrei inn á það sem lög-
reglumennirnir hennar gerðu en fór
í staðinn í ófrægingarherferð gegn
syni mínum til að réttlæta það sem
átti sér stað. Myndin sem hún dró
upp af syni mínum er hennar skoð-
un,“ sagði Se’Quette Clark við
NPR.
Dr. Flojaune Cofer hjá samtök-
unum Public Health Advocates tók í
sama streng. „Ég hlýddi á rök-
stuðning fyrir því hvers vegna þessi
maður átti skilið að deyja. Og það
sem truflaði mig mest var að ekki
var minnst á sambærilega rannsókn
á lögreglumönnunum.“
Hörð mótmæli fóru fram í Sacra-
mento eftir að Clark lést og mót-
mælendur tóku upp þráðinn í vik-
unni. Mikill fjöldi marseraði um
götur Sacramento undir merkjum
Black Lives Matter-hreyfingarinnar
á þriðjudaginn og voru um áttatíu
manns teknir höndum. Daginn eftir
trufluðu mótmælendur svo fund
borgarstjórnar og kröfðust meðal
annars skýringa á handtökunum.
Frekari mótmæli eru fyrirhuguð.
Mótmælendur hafa farið
mikinn á götum Sacra-
mento undanfarna daga.
AFP
Var glæpur framinn? Nei!
Lögreglumennirnir tveir sem skutu ungan
blökkumann, Stephon Clark, til bana í Sacra-
mento í Bandaríkjunum fyrir tæpu ári verða ekki
sóttir til saka. Þetta staðfesta bæði héraðssaksókn-
ari í Sacramento og ríkissaksóknari Kaliforníu.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Stephon Clark var 22 ára þegar hann lést. Hér er hann ásamt sonum sínum.
Xavier Becerra
ríkissaksóknari
á blaðamanna-
fundi í vikunni.
AFP
HEIMURINN
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2019
NÁNAR Á
URVALUTSYN.IS
TALAÐU VIÐ FERÐARÁÐGJAFA
Í SÍMA 585 4000
SUÐUR-ENGLAND
Á VIT GÓÐRA VINA
7.–14. OKTÓBER
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS
FYRSTA
FERÐIN
SELDIST
UPP