Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2019, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2019, Side 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2019 A ugu þeirra mættust á dansgólf- inu eins og í rómantískri skáld- sögu einn góðan veðurdag í miðri danskeppni í London árið 2016. Pétur Fannar Gunnarsson ákvað að stíga skrefið og nálgaðist Polinu Poddr frá Úkraínu og kynnti sig. Það reyndist gæfuspor því stuttu síðar voru þau orðin dans- par og ekki leið á löngu þar til ástin kviknaði. Þrjú ár í röð, 2016, 2017 og 2018 urðu þau heimsmeistarar í latíndönsum undir 21 árs en eru nú farin að keppa í flokki fullorðinna. Óhætt er að segja að þau hafi smollið saman en þrotlaus vinna skilaði þeim á verðlaunapallinn í þrígang. Á köldum og fallegum marsdegi settist dansparið unga niður með blaðamanni og leiddi hann í allan sannleikann um hinn töfrandi en jafnframt krefjandi heim dansara. Ástin kviknaði á dansgólfinu Stuttu eftir fyrstu kynnin bað Pétur Polinu að verða dansfélagi hans. „Oft í lífinu þarf maður að ganga hreint til verks og spyrja bara,“ segir hann og brosir. Hún tók tilboðinu eftir smá hik og leið þeirra sem dansara hefur legið upp á við frá þeirri stundu. „Okkur gekk mjög vel frá upphafi; strax í annarri keppni okkar, sem var í Blackpool í Englandi, náðum við fimmta sætinu. Áður var ég í 48. sætinu þannig að þetta var stórt stökk fyrir mig,“ segir Pétur. „Við dönsuðum saman og vorum saman all- an daginn þannig að ástin kviknaði fljótt,“ seg- ir Polina og Pétur viðurkennir að hann hafi fljótt orðið skotinn í þessari fallegu stúlku frá Úkraínu. „Við byrjuðum að dansa og smullum bara saman. Rómantík á dansgólfinu,“ segir hann og brosir. Þau skötuhjú búa nánast í ferðatösku en eiga athvarf bæði á Íslandi og í Úkraínu hjá foreldrum Polinu. „Svo ferðumst við mikið, bæði á keppnir og eins til þess að æfa með þjálfurum okkar,“ segir Pétur. Polina segist hafa æft dans nánast daglega frá sex ára aldri og lærði hún að dansa bæði standard-dansa og latíndansa, en fimmtán ára gömul fór hún að einbeita sér eingöngu að lat- índönsum eða suðuramerískum dönsum sem eru fimm talsins; cha-cha-cha, samba, rumba, paso doble og jive. Svokallaðir standard dans- ar, stundum nefndir ballroom-dansar, eru vals, tangó, vínarvals, foxtrot og quickstep. „Það er meiri tilfinning í latíndansi og ég get tjáð mig meira,“ segir Polinu og Pétur tekur undir það. Hann segir klæðnaðinn frjálslegri í latíndansinum. „Karlinn er með skyrtuna opna og konan er í styttri kjólum og þetta er meira eins og partíklæðnaður,“ segir hann. Lærði sporin þriggja ára Pétur var ekki hár í loftinu þegar hann byrjaði að dansa, aðeins þriggja ára gamall. „Mamma og pabbi voru sjálf í danskennslu og leist svo vel á þetta þannig að þau settu eldri bróður minn Alex í dans, en hann er fimm árum eldri en ég. Þannig að eftir að ég fæddist var ég alltaf uppi í dansskóla,“ segir hann og þess má geta að Alex er í dag dansari og býr í Hong Kong. „Hann er í ballroom-dansi þannig að við er- um ekki að keppa á móti hvor öðrum; það er bara ást á milli okkar,“ segir hann brosandi. „En sem smábarn var ég alltaf á hliðarlín- unni og fylgdist með bróður mínum og var allt- af búinn að læra öll sporin. Ég fékk svo mikinn áhuga og þegar ég var orðinn þriggja ára var ég loks orðinn nógu gamall til þess að fara í hóptíma með litlu krökkunum,“ segir Pétur og það varð ekki aftur snúið. Fyrstu dansskrefin voru tekin í dansskóla Sigurðar Hákonarsonar en í dag eru þau í dansskóla Jóns Péturs og Köru og æfa þar daglega þegar þau eru á landinu. Þau eru með tvo erlenda þjálfara sem þau hitta reglulega utan landsteinanna og er annar þeirra fjórtán- faldur heimsmeistari í dansi. Pétur sér ekki eftir því að hafa byrjað í dansinum. „Ég hef alltaf verið ánægður í dans- inum og það er svo gaman þegar maður nær árangri. Svo kynnist maður svo mörgu fólki og það hefur hjálpað mér varðandi að hafa sam- skipti við fólk. Í dansinum er maður svo vanur að tala við bæði stelpur og stráka og maður verður svo opinn,“ segir hann. „Mér finnst að allir ættu að læra að dansa, þetta er svo gott fyrir líkama og sál. Dansinn veitir manni hamingju og ég tel að allir geti dansað. Svo læra krakkar svo góða framkomu og kurteisi í dansinum.“ Dansinn er lífsstíll Skiptar skoðanir hafa verið uppi um hvort dans sé íþrótt eða list og sem íþrótt hafi dans- inn ekki oft verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Pétur segir það hafa breyst mikið síðustu árin en þó mætti gera betur. Þau hafa til að mynda ekki oft komist í fjölmiðla, þrátt fyrir fram- úrskarandi árangur og þrjá heimsmeist- aratitla. Pétur segist telja dansinn bæði vera íþrótt og list. „Ég sé báðar hliðarnar; þetta er list en ég horfi líka á dansinn sem íþrótt. Við erum að þjálfa og keppa og förum á stór mót, eins og gert er í öðrum íþróttum. Svo sé ég hina hliðina, að þetta sé list. Það er oft ekki hægt að útskýra listina; það er bara einhver tilfinning, þetta er svo mikil tjáning við tónlistina og samhæfing. Það er kannski mesti vandinn, samhæfing tveggja manneskja á dansgólfinu,“ segir hann. Spurð um hvað sé erfiðast við dansinn svar- ar Polina: „Þetta er bara lífsstíll; við elskum þetta svo mikið. Við hugsum ekkert um hvað sé erfitt.“ Dagarnir hjá Pétri og Polinu snúast um að æfa. Daglega dansa þau fjóra til fimm tíma á dag og á milli þess stunda þau annars konar líkamsrækt. „Stundum æfum við dans meira en fimm tíma á dag,“ segir hún. „Oft förum við á morgnana og tökum svo hlé og æfum svo aftur á kvöldin,“ segir hann. „Svo ef við eigum frítíma reynum við að hitta vini og fjölskyldu,“ segir Pétur og nefnir að þau séu mikið áhugafólk um kvikmyndir, myndlist og tónlist. „Við fáum innblástur úr öðrum listgreinum. Við njótum þess að fara á söfn, á tónleika, í leikhús eða í bíó. Svo finnst mér bara gaman að fylgjast með fólkinu á götunni; hvernig það hagar sér. Þannig að við tökum mikið frá menningu og listum og notum það í dansinum. Varðandi tónlist, þá hlustum við á allt; rapp, djass, óperu og að sjálfsögðu latíntónlist,“ seg- ir hann. „En ef við heyrum latíntónlist viljum við strax fara í stúdíóið að æfa dans þannig að við reynum að setja þá tónlist ekki á heima,“ segir Polina og hlær. „Já, þá förum við alltaf að spá í sporin. Heima reynum við að gera annað en að dansa,“ segir hann. Þau viðurkenna bæði að dansinn smjúgi oft inn í drauma hjá þeim. „Þegar maður æfir svona mikið dreymir mann dans,“ segir hún hlæjandi. „Stundum vakna ég á nóttunni með andfæl- um og Polina vaknar og spyr hvað sé að. Þá hef ég verið að klúðra sporunum í danskeppni í draumi.“ Dansað fram á nótt „Dansinn er 100% vinna hjá okkur,“ segir Pét- ur og segir þau lifa á styrkjum frá góðu fólki. Nú er Pétur orðinn 21 árs og hætta þau því að keppa í keppnum fyrir undir 21 árs. Við tekur að keppa í flokki fullorðna áhugamanna og að nokkrum árum liðnum geta þau keppt í at- vinnumannaflokki fullorðna. Þau ferðast mikið vegna dansins og sem dæmi má nefna að allan janúar voru þau á ferð og flugi. „Við vorum hér um áramót en strax annan janúar fórum við til Ítalíu í æfingabúðir og þaðan fórum við til Englands að æfa og kepptum þar á stórmóti. Þaðan fórum við í vikufrí til Úkraínu og svo beint í æfingabúðir til Spánar. Þetta er bara janúar. Nú þessa dag- ana erum við hér ein heima að æfa sjálf og ger- um það sem okkur finnst við þurfum að gera. Okkur finnst mjög gott að vera á Íslandi og Polinu finnst svo mikið frelsi hér. Við erum með svo góða aðstöðu hjá henni Köru og erum bara með lykil. Við getum farið snemma á morgnana og jafnvel æft þar fram á nótt. Oft reynum við að æfa á erfiðum tímum fyrir stór- mót en ég er meiri kvöldmanneskja en hún morgunmanneskja. Á stórmótum er nefnilega oft dansað mjög seint og eitt sinn var dansað til tvö um nóttina. Þá var maður búinn að keppa með hléum í fjórtán tíma. Þannig að við æfum stundum viljandi á skrítnum tímum.“ „Þetta er eins og spretthlaup og maður gef- ur allt í þetta. Þegar maður er búinn að dansa svífur maður út af dansgólfinu í leiðslu,“ segir Pétur Gunnarsson en hann og Polina Poddr hafa þrisvar hampað heimsmeistaratitlinum í latíndansi. Rómantík á dansgólfinu Pétur Fannar Gunnarsson og Polina Poddr eru sam- stiga á dansgólfinu sem og í lífinu. Þessir þreföldu heimsmeistarar í latíndönsum stefna á fleiri sigra í framtíðinni og leggja allt í sölurnar. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Það var ólýsanleg tilfinning að standa á verð- launapalli með gull um hálsinn að sögn þeirra Péturs og Polinu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.