Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2019, Síða 28
Hann var myndarlegur,óræður, hættulegur ogumkomulaus. Stúlkur
vildu vera með honum og mæður
taka utan um hann, líkt og James
Dean í gamla daga. Feðurnir vildu
á hinn bóginn ekkert með hann
hafa. Mér er ljóst að ég kalla
örugglega yfir mig hellidembu
með þessari samlíkingu en stað-
reyndin er eigi að síður sú að fyr-
irmyndin að hinum dularfulla Dyl-
an McKay, sem Luke Perry lék í
upprunalegu útgáfunni af hinum
feykivinsælu dramaþáttum Bev-
erly Hills 90210, var augljóslega
James Dean, eða öllu heldur kar-
akterarnir sem goðsögnin lék á
sínum allt of stutta ferli. Þegar
blöðum er flett nú að Perry
gengnum ber flestum eftirmæl-
endum saman um það.
Eins og gengur og gerist með
unglingadrama lék Perry all-
Guð minn,
Luke upp
gleðihliðum
Luke Perry, hjartaknúsarinn úr Beverly Hills
90210, lést í vikunni af völdum heilablóðfalls, 52
ára að aldri. Hans er minnst af hlýju, ekki síst fyrir
framlag sitt til unglingamenningar seinni tíma.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Luke Perry eins og hann birtist okkur í þáttunum vinsælu Beverly Hills 90210.
Snap/REX/Shutterstock
MÁLMUR Færeyska þjóðlagamálmbandið
Týr sendi fyrir helgi frá sér áttundu breið-
skífu sína, Hel. Sex ár eru frá síðustu plötu,
Valkyrju, og hefur aldrei liðið svo langur tími
milli platna hjá Tý. „Við nálguðumst þessa
plötu öðruvísi en áður vegna þess að ég
komst að því að myndi ég gera plötur með
sama hætti og fram að þessu myndi ég deyja
úr hjartaáfalli fyrir fimmtugt,“ hefur málm-
síðan Blabbermouth eftir söngvara Týs, Hera
Joensen. „Það er ein ástæðan fyrir því að við
breyttum um kúrs og gáfum okkur svona
góðan tíma með þessa plötu.“ Nýr maður
lemur nú húðir hjá Tý, Tadeusz Rieckmann.
Vill ekki fá hjartaáfall fyrir fimmtugt
Týsarar njóta mikilla vinsælda hér um slóðir.
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2019
LESBÓK
KVIKMYNDIR Leikkonan Maggie Gyllenhaal er sér-
staklega stolt af nýjustu mynd sinni, The Kindergarten Teac-
her, en að gerð hennar stóðu nær eingöngu konur. Myndin
fjallar um leikskólakennara sem binst fimm ára gömlu
undrabarni sterkum böndum. Í samtali við breska blaðið The
Independent segir Gyllenhaal listamenn og menninguna
yfir höfuð hreyfast hraðar en fjármagn og enda þótt
konur séu óðum að taka að sér fleiri hlutverk við gerð
kvikmynda hafi þær alls ekki haft úr nægu fé að moða
við gerð The Kindergarten Teacher. „Ekkert mál, við
bjuggumst aldrei við því að hafa nægt fé, við erum
vanar því, þannig að við gerum þetta bara svona og
látum verða af þessu,“ segir leikkonan, sem er hæst-
ánægð með útkomuna.
Gerum þetta bara svona
Maggie
Gyllenhaal. AFP
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Skinnhúfa kr. 19.800
Vargur kr. 37.000
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Hálsmen kr. 13.900
Bíldshöfði 9
Smáratorg 1
He 1 1lluhraun 6- 8
Fiskislóð 1
Við eru
í þínu
hverfi
m
Bera Hendrix á
höndum sér
Jimi heitinn
Hendrix.
MINNING Hálf öld verður á næsta
ári liðin frá andláti Jimi Hendrix. Því
fer þó fjarri að gítargoðsögnin sé
gleymd; það staðfestir meðal annars
sýning sem hrundið var af stokk-
unum í Bandaríkjunum um liðna
helgi og mun standa fram í apríl og
kallast einfaldlega „Experience
Hendrix“. Fram kom samtímagít-
arséní á borð við Dave Mustaine, Joe
Satriani, Zakk Wylde, Eric Johnson,
Jonny Lang og Dweezil Zappa en
fyrir mannskapnum fer félagi Hend-
rix í Band of Gypsies, Billy Cox. „Það
er mikill heiður að fá að taka þátt í
þessu,“ sagði Dave Mustaine, kennd-
ur við málmbandið Megadeth, við
hlaðvarpið The Opus. „Jimi hefur
verið viðmiðið allt mitt líf. Í dag er
ég sjálfur skilgreindur sem goðsögn
en mér finnst Jimi samt standa mér
mun framar. Ég dýrka goðsögnina
og fólkið sem heldur utan um hana.“