Morgunblaðið - 02.04.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 02.04.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið um samningum og flytja því um 80% raftækjaúrgangs síns til þróunar- landanna. Fyrirtækin sleppa við að greiða kostnað við förgun og hættan sem fylgir tækjunum flyst úr landi. Giskað er á að um 50 milljónum tonna af raftækjum sé hent á hverju ári. Þessi úrgangur geymir ýmis hættuleg efni, svo sem blý og arsen- ik sem berst auðveldlega í loft, vatn og jarðveg. Stafar af því mikil um- hverfisógn. hagskreppuna 2008-2009. Raftækja- úrgangur er sá flokkur sorps sem hraðast eykst í heiminum eða fimm sinnum hraðar en nokkur annar úr- gangsflokkur, þar með talinn iðn- aðarúrgangur. Samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins um meðferð raftækjaúrgangs og Basel-samnings Sameinuðu þjóðanna má ekki flytja hættulegan úrgang til þróunarlanda til endurvinnslu eða förgunar. Bandaríkin eru ekki aðilar að þess- Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Nýjar tölur frá Eurostat, Hagstofu Evrópu, benda til þess að raftæk- jaúrgangur í álfunni hafi aukist um 25% á árunum 2011 til 2016. Mjög er mismunandi eftir löndum hve miklum fjölda raf- og raf- eindatækja er skilað til endur- vinnslu- og förgunarstöðva. Tölur sem byggjast á fjölda kg á hvern íbúa í löndum Evrópusambandsins, sýna að raftækjaúrgangur er mestur í Svíþjóð, 16,5 kg á íbúa, og minnstur í Rúmeníu 1,6 kg á íbúa. Meðaltalið í löndum ESB er 8,9 kg. Þegar EES- löndin eru tekin með reynist raftæk- jaúrgangur hvergi meiri en í Noregi, 19,6 kg á íbúa. Hér á landi var hann samkvæmt þessum tölum 3.925 tonn árið 2016, en það gera 11,7 kg á hvern íbúa. Það er langt yfir með- altali í Evrópulöndum. Stór heimilistæki áberandi Í frétt um málið á vef Eurostat kemur fram að meira en helmingur (55,6 %) af raftækjaúrganginum á ofannefndu tímabili voru stór heim- ilistæki. Tölvur og símar voru um 15% úrgangsins. Á hverju ári kemur gífurlegt magn raftækja á markað. Árið 2016 komu 10,1 milljón tonn af slíkum tækjum og búnaði á markaðinn í Evrópulöndunum. Stöðug aukning hefur verið frá 2014, en talsverður samdráttur varð fyrst eftir efna- Raftækjaúrgangur eykst verulega  Meiri hér á landi á hvern íbúa en að meðaltali í Evrópu Morgunblaðið/Eggert Raftæki Hér á landi er mikill raftækjaúrgangur. Greitt er sérstakt úr- vinnslugjald vegna endurvinnslu og förgunar tækjanna. Raftækjaúrgangur í Evrópu 2016 19,6 16,5 14,8 13,9 12,4 11,7 11,3 11,0 10,8 10,8 10,6 9,8 9,7 9,5 9,3 9,1 8,9 8,7 8,6 6,8 6,1 6,1 6,0 5,9 5,4 5,2 5,0 4,5 3,6 2,9 2,5 1,6 N or eg ur Sv íþ jó ð B re tla nd Li ec ht en st ei n D an m ör k Ís la nd B el gí a Fi nn la nd Ír la nd Fr ak kl an d Lú xe m bo rg Ei st la nd Au st ur rík i Þý sk al an d Kr óa tía H ol la nd ES B Té kk la nd B úl ga ría Po rt úg al Íta lía Pó lla nd U ng ve rja la nd Sl óv en ía Sp án n Sl óv ak ía G rik kl an d Li th áe n M al ta Ký pu r Le tt la nd Rú m en ía Heimild: Eurostat apríl 2019 kg á hvern íbúa, sem skilað var til úrvinnslu 3.925 tonn árið 2016 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Atlantsolía er þessa dagana að taka yfir fimm sjálfsafgreiðslu- stöðvar fyrir eldsneyti sem Olís rak til skamms tíma undir merkj- um ÓB. Vegna kaupa Haga á Olís á síðasta ári var sá áskilnaður gerð- ur af samkeppnisyfirvöldum að fyrirtækið seldi frá sér fimm stöðv- ar í Reykjavík, það er við Starengi í Grafarvogi, Kirkjustétt í Grafar- holti, Knarrarvogi, Háaleitisbraut og á Esjumelum í Grundarhverfi á Kjalarnesi. Hringnum lokað „Verkefnið er allstórt því við þurfum að skipta út öllum dælum og sjálfsölum þar sem við notumst við annan búnað en ÓB. Við þurf- um því nokkrar vikur í málið, en fyrir páska ættu allar stöðvarnar að vera komnar undir rekstur Atl- antsolíu,“ segir Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, í samtali við Morg- unblaðið. Nú þegar eru stöðvarnar við Knarrarvog og Starengi komnar undir merki Atlantsolíu og Kirkju- stétt átti að detta inn í dag, þriðju- dag. Þar voru skilti sett upp í gær. „Við sjáum ýmis tækifæri í þessu. Atlantsolía hefur til þessa ekki verið með starfsemi í Graf- arvogi og Grafarholti, fjölmennum hverfum sem þurfa þjónustu. Við getum sagt að nú séum við í raun að loka hringnum í þjónustuneti okkar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Guðrún. Á Kjalarnesi tekur Atlantsolía bæði við sjálfs- afgreiðslustöð fyrir eldsneyti og söluskála af Olís og verður stöðin undir nýjum merkjum opnuð undir lok líðandi viku. Leigja verslunina á Kjalarnesi Mun fyrirtækið sjálft hafa elds- neytissöluna með höndum en rekstur og húsnæði sjoppunnar verður leigt út til fólks sem búsett er á svæðinu. Verður Kjalnes- ingum þannig séð fyrir verslun með helstu nauðsynjar. Atlantsolía kemur í stað ÓB-stöðva  Tekur við fimm stöðvum af Olís Morgunblaðið/Sigurður Bogi Atlantsolía Unnið var að því í gær að setja upp skiltin í Grafarholti. Íslandsbanki mun hætta að gefa plast- og gjafavörur til barna- og ung- linga á vormán- uðum til að sporna við meng- un og sóun. Í til- kynningu frá bankanum segir að þetta sé liður í innleiðingu á fjórum heimsmark- miðum Sameinuðu þjóðanna. Nýr og umhverfisvænn Georg sparibaukur mun líta dagsins ljós og leysa af hólmi plastbaukinn. Í stað gjafavöru verður meiri áhersla lögð á upplifun í útibúum og í gegn- um stafrænar leiðir bankans, segir m.a. í tilkynningu Íslandsbanka. Íslandsbanki hættir að gefa börnum vörur úr plasti Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það eru engar nærtækar fyrir- myndir að þessu innan ASÍ, en það er mikilvægt að hafa í huga að þetta er ekki styrkur heldur lán með kröfu í þrotabúi og eftir atvikum í ábyrgðasjóði launa,“ segir Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til þess að stjórn Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og ASÍ tryggðu starfsfólki hins fallna flugfélags WOW air sem félagar eru í FFÍ lágmarks launa- greiðslu um sl. mánaðamót, en WOW air gat ekki staðið undir þeirri skuldbindingu sjálft. Til að fá greiðslu þarf viðkomandi starfs- maður að mæta á skrifstofu Flug- freyjufélags Íslands og framselja kröfu í þrotabú flugfélagsins. 35% félagsmanna FFÍ sagt upp „Það sem við erum að gera er í raun að aðstoða flugfreyjufélagið við að fara sömu leið og VR og fleiri félög – að flýta útgreiðslum úr ábyrgðasjóði launa í gegnum stétt- arfélagið,“ segir Drífa. Spurð hvort ASÍ sé með þessu að skapa fordæmi til framtíðar kveður Drífa nei við. „Við lítum ekki endilega á að þetta sé fordæmisgefandi heldur séu þetta mun frekar fordæmislaus- ar aðstæður sem við stöndum frammi fyrir. Með því á ég við að fall WOW er mjög stór skellur og að flugfreyjufélagið, sem er mjög einsleitt félag, stendur nú frammi fyrir því að 35% félagsmanna þeirra hefur verið sagt upp störfum. Ég veit ekki hvort það muni nokkurn tímann gerast í öðru stéttarfélagið sem á aðild að ASÍ. Í ljósi þessa og þeirrar staðreyndar að flugfreyju- félagið hefur ekki burði til að gera það sem önnur stéttarfélög hafa gert þá ákváðum við að koma því til aðstoðar,“ segir Drífa. Þak sett á ASÍ-aðstoðina Upphæð aðstoðarinnar er að há- marki 100 milljónir króna og segist Drífa eiga von á því að heildar- framlag ASÍ verði innan þess ramma. „Við lítum ekki á að þetta sé mjög áhættusamt,“ segir hún spurð hvort hún hafi einhverjar áhyggjur af því að umrædd veð skili sér ekki þegar þrotabú WOW air verður gert upp. Fordæmislausar aðstæður  Alþýðusamband Íslands segir aðstoð sína við Flugfreyjufélag Íslands ekki skapa fordæmi til framtíðar  Aðstoð ASÍ er að hámarki 100 milljónir króna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.