Morgunblaðið - 02.04.2019, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2019
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
alnabaer.is
Þrjár gerðir: þunnar, með sólarvörn og myrkvunar.
Henta mjög vel í skáglugga og þakglugga.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
Zuzana Caputova verður fyrst
kvenna til að gegna embætti forseta
Slóvakíu eftir sigur í síðari umferð
forsetakosninga sem fór fram um
helgina þegar kosið var á milli henn-
ar og frambjóðanda stærsta
stjórnarflokks landsins. Caputova
fékk 58,4% atkvæðanna og bar sigur-
orð af Maros Sefcovic, forsetaefni
Smer-SD, vinstriflokks sem hefur
hneigst til þjóðernishyggju og er
íhaldssamur í samfélagsmálum.
Caputova er frjálslyndur lögfræð-
ingur og vakti fyrst athygli fyrir ára-
langa baráttu sína gegn ólöglegri
landfyllingu í heimabæ sínum, Pez-
inok. Hún var einnig á meðal tuga
þúsunda manna sem tóku þátt í mót-
mælum gegn spillingu í landinu eftir
að rannsóknarblaðamaðurinn Jan
Kuciak og unnusta hans voru skotin
til bana fyrir rúmu ári þegar hann
var að undirbúa grein um meint
tengsl ráðamanna í Slóvakíu við
ítölsku mafíuna. Morðið varð til þess
að leiðtogi Smer-SD, Robert Fico,
sagði af sér embætti forsætisráð-
herra og einn helstu bandamanna
hans tók við því.
Hlynnt móttöku flóttafólks
Caputova lagði áherslu á baráttu
sína gegn spillingu fyrir kosning-
arnar og lofaði einnig aukinni um-
hverfisvernd og bættri stöðu aldr-
aðra. Hún kvaðst vera hlynnt því að
að heimila hjónabönd samkyn-
hneigðra para og sagði að Slóvakía
ætti að koma grannríkjum sínum í
Evrópu til hjálpar með því að taka
við flóttafólki. Smer-SD hefur hins
vegar verið andvígur flóttamanna-
kvótum Evrópusambandsins og lofað
því að „hleypa ekki einum einasta
múslíma inn í Slóvakíu“, eins og Fico
orðaði það. Í kosningabaráttunni
lagði Sefcovic áherslu á „hefðbundin
kristileg fjölskyldugildi“ og kvaðst
reiða sig á stuðning „þeirra sem vilja
að Slóvakía verði áfram kristið land“.
Slóvakar hafa verið íhaldssamir í
samfélagsmálum eins og margar
fleiri þjóðir í Mið- og Austur-Evrópu.
Forseti Slóvakíu hefur takmörkuð
völd en hann gegnir m.a. því hlut-
verki að staðfesta alþjóðasáttmála, er
æðsti yfirmaður hersins og getur
beitt synjunarvaldi gegn lögum sem
þingið samþykkir og gegn tilnefn-
ingum í mikilvæg dómaraembætti.
Konur í leiðtogaembættum í Evrópu
Heimild: Guide toWomen Leaders. Myndir: AFP
Dalia
Grybauskaite
forseti
Litháens
Marie-Louise
Coleiro Preca
forseti
Möltu
Theresa
May
forsætisráðherra
Bretlands
Erna
Solberg
forsætis-
ráðherra
Noregs
Kolinda
Grabar-Kitarovic
forseti
Króatíu
AngelaMerkel
kanslari
Þýskalands
Viorica
Dancila
forsætis-
ráðherra
Rúmeníu
Ana Brnabic
forsætisráðherra
Serbíu
Kersti Kaljulaid
forseti
Eistlands
Katrín
Jakobsdóttir
forsætisráðherra
Íslands
Zuzana Caputova
næsti forseti
Slóvakíu
Frjálslynd baráttukona
kjörin forseti Slóvakíu
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Neðri deild breska þingsins hafnaði
fjórum tillögum, sem bornar voru
undir atkvæði í gærkvöldi til að
reyna að leysa deilurnar um brexit,
m.a. tillögu um að Bretland yrði í
tollabandalagi Evrópusambandsins
og annarri um að landið fengi aðild
að Evrópska efnahagsvæðinu. Áður
hafði þingdeildin þrisvar hafnað
brexit-samningi stjórnar Theresu
May forsætisráðherra við Evrópu-
sambandið.
Tillaga íhaldsmannsins Kens
Clarke um að Bretland yrði í tolla-
bandalagi ESB var felld með aðeins
þriggja atkvæða mun, 276 gegn 273.
Tillögu íhaldsmannsins Nicks Boles
um að Bretland yrði í innri markaði
ESB var hafnað með 282 atkvæðum
gegn 261. Boles sagði eftir atkvæða-
greiðsluna að hann hygðist segja sig
úr Íhaldsflokknum vegna þess að
þingmenn hans hefðu sýnt að þeir
vildu ekki leysa brexit-deilurnar með
tilslökunum. Tillaga Boles fól í sér að
Bretland segði skilið við ESB en
gengi í Fríverslunarsamtök Evrópu,
EFTA, og Evrópska efnahagssvæð-
ið og fengi þar með aðgang að innri
markaði ESB, eins og EFTA-ríkin
Ísland, Liechtenstein og Noregur.
Tillaga tveggja þingmanna Verka-
mannaflokksins um að efnt yrði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um hvers
konar útgöngusamning sem gerður
yrði við ESB var felld með 292 at-
kvæðum gegn 280. Tillaga þing-
manns Skoska þjóðarflokksins um
að þingið fengi vald til að koma í veg
fyrir útgöngu án samnings var felld
með 292 atkvæðum gegn 191.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, hafði skrifað þing-
mönnum hans bréf þar sem hann
hvatti þá til að styðja tillögurnar um
að Bretland yrði í tollabandalagi
ESB og Evrópska efnahagssvæðinu.
Þingmenn Íhaldsflokksins voru
leystir undan flokksaga í atkvæða-
greiðslunum.
Stjórnin klofin
Þingdeildin greiddi atkvæði um
tillögur sem forseti hennar, John
Bercow, valdi af átta tillögum sem
lagðar höfðu verið fram. Hann valdi
ekki tillögu um að Bretar áskildu sér
rétt til að geta sagt upp umdeildu
ákvæði um írsku landamærin í
brexit-samningnum við ESB hvenær
sem þeir vildu án samþykkis
Evrópusambandsins, tillögu um að
Bretland gengi úr ESB 12. apríl án
samnings, tillögu um að efnt yrði til
þjóðaratkvæðagreiðslu ef ekki næð-
ist samkomulag um útgönguna og
tillögu um að Bretland gengi í EFTA
sem fyrst.
Ríkisstjórn Íhaldsflokksins hefur
verið klofin í deilunni um hvort leita
eigi eftir mildari útgáfu af brexit en
gert er ráð fyrir í útgöngusamningn-
um við ESB. Deilan verður rædd á
fundi stjórnarinnar í dag.
Breska þingið
hafnar fjór-
um kostum
Tillaga um aðild að tollabandalagi
ESB felld með þriggja atkvæða mun
AFP
Þjark Andstæðingar brexit mót-
mæla fyrir utan þinghúsið í London.
Alexej Vlasov, 28 ára gamall ránfuglatemjari, heldur á tuttugu ára göml-
um gáshauk, einum af tólf ránfuglum sem verja byggingar rússneskra
stjórnvalda í Kreml. Stofnun, sem annast öryggisgæslu í Kreml, stofnaði
sérstaka ránfugladeild árið 1984 til að flæma burt krákur. „Þær geta breitt
út sjúkdóma, sem stefna hugsanlega heilsu manna í hættu, og skemmt
gylltu hvolfþökin með því að rispa þau eða drita á þau,“ segir Vlasov.
AFP
Ránfuglar verja Kreml
Stjórnarflokkur Tyrklands, AKP, beið ósigur í borgar-
stjórakosningum í tveimur stærstu borgum landsins, Ist-
anbúl og höfuðborginni Ankara, og í Antalya, áttundu
stærstu borginni, samkvæmt kjörtölum sem birtar voru í
gær. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafði
beitt sér mjög í kosningabaráttunni og ósigrarnir í borg-
unum þremur eru álitnir mikið áfall fyrir hann. Stjórn-
málaskýrendur rekja ósigrana m.a. til efnahagssam-
dráttar í landinu. Flokkurinn hefur véfengt úrslitin, sagt
að kjörstjórnir í borgunum hafi ógilt tugi þúsunda at-
kvæða og krafist þess að þau verði úrskurðuð gild.
TYRKLAND
Flokkur Erdogans forseta beið ósigur
Erdogan