Morgunblaðið - 02.04.2019, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2019
✝ Sveinn Jóns-son fæddist á
Sólvangi í Hafn-
arfirði 13. ágúst
1951. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans 23.
mars 2019.
Foreldrar hans
voru Jón Páll
Ágústsson, f. 23.
október 1919, d.
13. júní 1999, og
Svandís Guðmundsdóttir, f. 6.
september 1924, d. 25. júlí
2005.
Sveinn eignaðist tvo syni, þá
Magnús Björn, f. 30. nóvember
1959; og Sigríður, f. 10. janúar
1958.
Sveinn kvæntist Írisi Högna-
dóttur 19. maí 2007. Foreldrar
hennar eru Högni Felixson, f.
29. október 1931, d. 11. júlí
2015, og Þyrí Ragnheiður S.
Björgvinsdóttir, f. 15. janúar
1932. Börn Írisar og fóst-
urbörn Sveins eru Jón Halldór
Jónsson, f. 18. janúar 1981,
Elvar Örn Jónsson f. 9. janúar
1985, Lovísa Jónsdóttir, f. 14.
nóvember 1989, Högni Þór
Jónsson, f. 19. október 1993,
og Vera Helgadóttir f. 17. nóv-
ember 1999. Sonur Jóns Hall-
dórs er Alexander Vilmar, f.
28. febrúar 2004.
Útförin fer fram frá Víði-
staðakirkju í dag, 2. apríl
2019, klukkan 15.
1972, og Jón Pál,
f. 2. nóvember
1973. Jón Páll á
tvö börn með
maka sínum, Bi-
öncu Elisabeth
Treffer, f. 28.
mars 1973, dætur
þeirra eru Svandís
Rós, f. 17. sept-
ember 2002, og
Heiðdís Fjóla, f. 2.
desember 2008.
Systkini Sveins eru Björn, f.
1944, maki Kerstin Wallquist
Jonnson, f. 1954; Eyþór G., f.
3. desember 1949, maki Bryn-
dís Gísladóttir, f. 5. október
„Elsku pabbi minn, ég skil
ekki hvað lífið er ósanngjarnt.
Ég hlakkaði svo til að eyða kom-
andi tímum með þér og þú hlakk-
aðir líka til, en þú þurftir að
kveðja allt of snemma.
Fyrir hálfu ári, rétt áður en þú
greindist, vorum við tvö að plana
þessa svakalegu útskriftarferð til
útlanda, þar sem ég útskrifast
með stúdentspróf í maí næst-
komandi og var ég of upptekin að
komast í síðustu ferð með þér.
Ég sé eftir því.
Þú barðist eins og hetja, alltaf
svo jákvæður og góður. Þú
komst inn í líf mitt þegar ég var
aðeins sex ára gömul og þú tókst
mér strax sem þinni eigin dóttur,
ég mun aldrei hætta að vera
þakklát fyrir það. Ég er svo
þakklát fyrir allt sem þú gerðir
fyrir mig og gafst mér, fyrir allar
þær stundir sem við áttum og all-
ar þær minningar sem ég varð-
veiti.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
fengið 14 ár með þér.
Elsku besti pabbi minn. Fyrir
nákvæmlega ári vorum við stödd
á Tenerife að njóta lífsins, skrítið
hvað tímarnir breytast. Þú varst
alltaf fyrsta manneskjan sem ég
heilsaði upp á á morgnana og það
er svo skrítið að vakna og fara
fram í stofu og sjá þig ekki við
borðstofuborðið að lesa Frétta-
blaðið og bjóða góðan daginn, ég
mun aldrei venjast því. Það fór
enginn eins jákvæður inn í dag-
inn og þú. Ég er aðeins tvítug og
ég á allt lífið eftir án þín, það er
það sem ég syrgi mest að hafa
fengið of lítinn tíma með þér.
Það er mikil sorgsem fylgir
okkur nánustu, en þakklæti líka.
Ég er svo ævinlega þakklát fyrir
þig og stolt af þér, ég er svo stolt
að vera dóttir þín. Hvíldu í friði,
elsku pabbi minn. Ég elska þig
mest í heiminum, að eilífu.
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum okk-
ar hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og
góðleg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og lítur
okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það
ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú
á braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig
sem förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um landið
út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Guðrún Sigurbjörnsdóttir)
Vera Helgadóttir.
Elsku Sveinn minn, þú varst
besti pabbi í heimi, ég á fullt af
fallegum og góðum minningum
af þér. Þú varst svo góður og
skemmtilegur og fyndinn og frá-
bær.
Þú varst traustur eins og
klettur, maður gat alltaf leitað til
þín. Þú gerðir alltaf allt til að
hjálpa manni. Ég sakna þín og
mun sakna þín alltaf. Ég elska
þig pabbi minn.
Þín stjúpdóttir,
Lovísa.
Kær vinur okkar hjóna,
Sveinn Jónsson, hefur nú kvatt
þetta líf og er farinn til fundar
við frelsarann Jesú Krist. Sveinn
var gull af manni,og góður vinur
og traustur. Það er varla hægt að
nefna Svein án þess að nefna Ír-
isi konu hans. Þau tvö voru
glæsilegt par og maður fann að
þau stóðu saman í öllu. Við vor-
um saman í bænahópi í nokkur
ár og voru það góðar stundir.
Sveinn var afar laghentur
maður og vandvirkur. Hann inn-
réttaði fyrir okkur sumarbústað-
inn okkar og ber hann fagurt
vitni um vinnubrögð Sveins. Við
erum þakklát fyrir það sem hann
gerði fyrir okkur.
Nú er vinur okkar farinn til
fundar við Drottin okkar og
frelsara. Veit að hann fær góða
heimkomu, þar sem hann átti
einlæga trú á frelsarann Jesú
Krist. Við biðjum drottinn að
styðja Írisi og fjölskylduna alla
og kveðjum Svein Jónsson með
virðingu og þökk.
Ásgeir Þorvaldsson
og Halldóra Ásgeirsdóttir.
Kynni okkar Sveins urðu því
miður ekki löng. Leiðir okkar
lágu fyrst saman þegar við geng-
um báðir til liðs við Karlakór
Grafarvogs við stofnun kórsins
haustið 2011, hvar við höfum
starfað saman síðan.
Sveinn sýndi strax hve mikið
var í hann spunnið í söng. Hann
var tónviss með afbrigðum og
hafði háa og bjarta tenórrödd.
Hann hafði líka mikinn vilja til að
bæta sig á þessu sviði og lagði
stund á söngnám við Söngskól-
ann í Reykjavík.
Þar naut hann leiðsagnar Ír-
isar Erlingsdóttur söngkennara
sem einnig er stofnandi og
stjórnandi Karlakórs Grafar-
vogs. Árangur hans og skjótar
framfarir voru með miklum
ágætum og okkur kórfélögum
hans hvatning til að standa okk-
ur í stykkinu. Sveinn varð fljót-
lega leiðandi í 1. tenór kórsins og
söng oftsinnis einsöng með kórn-
um, bæði á tónleikum við frábær-
ar undirtektir, en einnig í guðs-
þjónustum í Grafarvogskirkju,
þegar kórinn var kallaður til
messusöngs.
Sveinn var ákaflega skemmti-
legur maður, með mikla kímni-
gáfu, glaðvær, hláturmildur og
glettinn. Við sátum saman í
stjórn karlakórsins í nokkur ár
og hafði Sveinn með peningamál
kórsins að gera. Þar komu í ljós
aðrir eiginleikar sem hann hafði
til að bera í ríkum mæli; ráð-
vendni, nákvæmni og heiðarleiki
og ekki síður velvild í garð kór-
félaga sinna og ríkur vilji til þess
að leysa hvern þann vanda sem
upp kom. Enda fórst honum
þetta verkefni ákaflega vel úr
hendi.
Á skemmtunum kórsins var
Sveinn hrókur alls fagnaðar og
hafði gjarnan frumkvæði að
ýmsu sprelli og uppákomum.
Fastur liður í árlegum æfinga-
búðum kórsins var að hann
dröslaði undirrituðum með sér
upp á svið til að syngja „Skála og
syngja Skagfirðingar“ fyrir fé-
lagana sem jafnan gerðu góðan
róm að framlagi Sveins, þótt
minna hafi farið fyrir aðdáun á
söngfélaganum.
Við félagarnir söknuðum vinar
í stað í æfingabúðum kórsins í
byrjun mars sl. Ég hitti Svein
síðast á kóræfingu seinnihluta
febrúarmánaðar, en þá beið hans
síðar í vikunni að gangast undir
aðgerð þar sem freista átti þess
að vinna bug á meini sem hann
hafði greinst með. Hann var þá
hress í bragði og bjartsýnn á
góðan árangur og óskaði okkur
góðs gengis í æfingabúðunum og
kvaðst búast við að hitta okkur
aftur á æfingu fljótlega í mars.
Kvöddumst við með kærleik og
óskuðum við honum alls hins
besta í komandi átökum.
Það var okkur kórfélögum
hans gríðarlegt áfall þegar okkur
barst sú harmafregn að Sveinn
hefði látist 23. mars síðastliðinn.
Við sjáum nú á bak indælum vini
og afskaplega góðum söngmanni
sem var óumdeilanlega leiðtogi
sinnar raddar og ekki síður frá-
bærum félaga. Það skarð sem
hann skilur eftir sig verður vand-
fyllt og verður hans sárt saknað.
Þótt missir okkar í Karlakór
Grafarvogs sé bæði sár og mikill,
þá er hann ekkert í líkingu við
þann mikla og ótímabæra missi
sem fjölskylda hans tekst nú á
við. Ég veit að ég tala fyrir munn
okkar allra félaganna í Karlakór
Grafarvogs, að hugur okkar er
hjá fjölskyldu Sveins og öðrum
aðstandendum á þessu erfiðu
tímum. Við vottum þeim okkar
innilegustu samúð og biðjum
þeim allrar blessunar.
Ólafur E. Jóhannsson.
Það var okkur félögum í
Karlakór Grafarvogs mikil
harmafregn þegar við fréttum af
andláti Sveins Jónssonar, kór-
félaga okkar og vinar. Sumir
okkar höfðu þekkt hann um langt
árabil, aðrir skemur. En það
breytti því ekki að allir fundum
við fyrir miklum missi, enda
vandfyllt það skarð sem höggvið
hefur verið í okkar raðir við frá-
fall hans.
Svenni var stofnfélagi í Karla-
kór Grafarvogs og einn af
máttarstólpum hans alla tíð.
Hann söng í fyrsta tenór, en það
er ekki á neinn hallað þótt fullyrt
sé að hann hafi jafnframt verið
okkar fremsti tenór. Svenni var
alltaf boðinn og búinn til að
hjálpa og leiðbeina þeim okkar
sem minna kunnum fyrir okkur í
söng. Það var líka auðvelt að leita
til hans því hann hafði einstak-
lega ljúfa og þægilega nærveru.
Hugur okkar kórfélaga er hjá
fjölskyldu Svenna sem við send-
um okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Fallinn er frá góður
drengur sem við söknum mikið.
Hvíl í friði, kæri félagi.
Sæmundur Sæmundsson,
formaður Karlakórs Grafar-
vogs.
Okkur langar til að minnast
vinar okkar Sveins Jónssonar
hestamanns í örfáum orðum. Það
má segja að við Sveinn höfum
kynnst fyrir tilviljun en samt þó
ekki.
Dóttir okkar hafði þegar hún
var ung alveg brennandi áhuga á
öllu er viðkom hestum, dag einn
ákváðum við að keyra upp í hest-
húsahverfið fyrir ofan Hafnar-
fjörð og þá römbuðum við á hest-
hús sem Sveinn var með og þar
með var þessi vinátta hafin sem
hefur varað æ síðan. Sveinn var
leitandi maður og hann leitaði til
okkar þegar hann var að velta
Guði og eilífðarmálunum fyrir
sér og málin þróuðust síðan
þannig að við sóttum á tímabili
sömu kirkju og síðar vorum við
samherjar í Gídeonfélaginu og
Sveinn tók virkan þátt í dreifingu
Nýja testamentisins og stóð sig
vel í því.
Sveinn var mikill söngmaður
og söng með Karlakór Grafar-
vogs og það vakti athygli okkar
að hann söng einsöng með þeim
kór. Það var gott að eiga Svein að
vini og við Gídeonfélagar í
Hafnarfirði eigum eftir að sakna
hans.
Góða Sveinsins söknum við
sárlega ber þess vott.
Vinur kæri kveðjum þig
að kynnast þér var gott.
(PÁ)
Innilegar samúðarkveðjur
sendum við Írisi og fjölskyldu.
Pétur Ásgeirsson og Hend-
rikka Jónína Alfreðsdóttir.
Sveinn Jónsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Okkar ástkæri,
STEINAR KRISTBJÖRNSSON,
Ninni,
trésmiður,
Krosshömrum 6, Reykjavík,
andaðist 22. mars.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að leyfa
Hollvinasamtökum Grensásdeildar að njóta þess.
Elín Anna Antonsdóttir
Ólafur Svavar Steinarsson
Steinunn Steinarsdóttir
Anton Karl Ingason Hjördís Stefánsdóttir
Auður Kara og Elín Stella
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐMUNDA SIGURBORG
EINARSDÓTTIR,
Munda,
áður til heimilis að Háukinn 3,
Hafnarfirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 5. apríl
klukkan 11.
Sigmar K.S. Sigurbjörnsson Helga Hansdóttir
Einar Magnús Sigurbjörnss. Ráðhildur Sigurðardóttir
Björn F.I. Sigurbjörnsson
Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir Ólafur Guðjónsson
Sigurbjörn A. Sigurbjörnss. Helga Óskarsdóttir
Kristjana Sigurbjörnsdóttir Þorvarður Jónsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Kær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INDRÍÐUR EFEMÍA INDRIÐADÓTTIR
ferðaþjónustubóndi
í Lauftúni, Skagafirði,
er látin.
Útför hennar fer fram frá Löngumýrarkapellu föstudaginn
5. apríl klukkan 14.
Jarðsett verður í Víðimýrarkirkjugarði.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag
Skagafjarðar.
Felix Jósafatsson Baldvina G. Valdimarsdóttir
Indriði Jósafatsson Hrönn Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐJÓN G.S. KARLSSON,
fv. húsvörður hjá Icelandair,
lést miðvikudaginn 27. mars.
Útför hans verður frá Grensáskirkju
föstudaginn 5. apríl klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á góðgerðarfélög.
Viljum þakka yndislega og fallega umönnun á
Hjúkrunarheimilinu Mörk.
Sigurður Guðjónsson Edda Thors
Bryndís Guðjónsdóttir Ágúst Harðarson
Karl Ingi Guðjónsson Katrín Westlund
Steinn Guðjónsson Brynja Guðmundsdóttir
afabörn og langafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir, tengdafaðir og tengdasonur,
ÞÓRÐUR ERLINGSSON,
Skövde,
Svíþjóð,
lést sunnudaginn 24. mars.
Útförin fer fram í Skövde miðvikudaginn
3. apríl. Minningarathöfn á Íslandi verður auglýst síðar.
Guðbjörg Rósa Ísólfsdóttir
Áslaug María Patrik
Ingibjörg Móa
Ástrós Saga
María Guðmundsdóttir Sigurður Hansen
og aðrir aðstandendur
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar