Morgunblaðið - 02.04.2019, Síða 25
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Stofnun heilbrigðis- og líftækniklasa
Þorkell Sigurlaugsson, viðskiptafræðingur
og formaður velferðarnefndar
Sjálfstæðisflokksins, verður gestur á
hádegisfundi SES miðvikudaginn 3. apríl kl.
12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1 og mun þar
fjalla um um stofnun íslenska heilbrigðis- og
líftækniklasans.
Húsið opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi,
1000 krónur.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Tilboð/útboð
Orkuveita Reykjavíkur
Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Fax 516 630 • Sími 516 6100
www.or.is/utbod
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum
„ORIK-2019-05 Leiga á veiðirétti fyrir landi Nesjavalla
- Þorsteinsvík“
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á útboðsvef
Orkuveitunnar frá miðvikudeginum 03.04.2019:
https://in-tendhost.co.uk/reykjavikenergy/aspx/Home
Tilboð verða opnuð á útboðsvef Orkuveitunnar,
miðvikudaginn 24.04.2019 kl. 11:00.
ORIK-2019-05 30.03.2019
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum
í útboðsverkefnið:
LEIGA Á VEIÐIRÉTTI
FYRIR LANDI
NESJAVALLA - ÞORSTEINSVÍK
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Gönguferð kl. 10.15.
Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13 með leiðbeinanda. Vatnslitun
kl. 13 með leiðbeinanda, kostar ekkert. Bíó í miðrými kl. 13. Kaffi kl.
14.30-15.20.
Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-
16. Botsía með Guðmundi kl. 10-11. Brids kl. 12.30. Bónusbíllinn fer frá
Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16.
Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið
fyrir innipútt. Bingó á fimmtudag. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffi-
sala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 13. Brids og kanasta kl. 13.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð eftir stund-
ina. Sigurbjörn Þorkellsson rithöfundur og ljóðskáld er gestur okkar í
dag. Hefðbundið starf að öðru leyti. Allir velkomnir.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Myndlistarnámskeið hjá Margréti kl. 9-12. Thai chi kl.
9-10. Leikfimi kl. 10-10.45. Spekingar og spaugarar kl. 10.45-11.45.
Hádegimatur kl. 11.30. Kríurnar kl. 13. Brids kl. 13-16. Enskunámskeið
kl. 13-15. Síðdegiskaffi kl. 14.30. U3A kl. 16.30. Allir velkomnir óháð
aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30 / 14.30. Tréskurður / smíði í Smiðju kl. 9 / 13.
Félagsvist í Jónshúsi kl. 20.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl.
9-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl 13-16. Jóga kl. 10.30-11.30.
Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna,
kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og
jafnvægisæfingar.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju
kl. 13 til 16 alla þriðjudaga. Fyrir opna húsið er helgi- og fyrirbæna-
stund kl. 12 þar sem öllum er frjálst að mæta í og er súpa og brauð í
boði fyrir vægt gjald þar á eftir. Hér er fjölbreytt dagskrá þar sem allir
ættu að geta fundið eitthvað við hæfi.
Grensáskirkja Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Verið velkomin.
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm-/silfursmiði
/kanasta kl. 13. Leshópur kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30, 1340 kr. mánuðurinn, allir
velkomnir og kostar ekkert að prufa. Hádegismatur kl. 11.30. Bónus-
bíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl. 13, notaleg og skemmtileg samvera
þar sem allir eru velkomnir. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hraunsel Kl. 9 dansleikfimi, kl 10 qi-gong, kl. 13 brids Sólvangs-
vegur 1, kl. 9 handmennt Hjallabraut 33, kl. 13 Fjölstofan.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, helgistund
kl. 14 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Listmálun kl. 9. í Borgum. Botsía í dag í Borgum kl. 10 og
kl. 16. Helgistund kl. 10.30 og leikfimishópur í Egilshöll kl. 11. Ársæll
leiðbeinir. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13.30 og heima-
námskennsla í Borgum kl. 16.30 í dag.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja mrð
leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, tölvukennsla kl.
16. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.30. Kaffispjall í krókn-
um kl.10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl.
11.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Lomber á Skólabraut kl. 13.30.
BINGÓ Í GOLFSKÁLANUM kl. 14. Sætaferðir frá Skólabraut frá kl.
13.30. Karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14. Ath. nk. fimmtu-
dag verður félagsvist Vörðunnar í salnum á Skólabraut kl. 19.30.
Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir í hópinn.
Félagslíf
EDDA 6019040219 I
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Bátar
Bílar
38" Toyota Land Cuiser 150
til sölu
Ekinn 120 þ.km, nýskráður 06.15 og
skoðaður 2021. Fox fjöðrun, loft-
læsingar, aukatankur, led kastarar,
stuðaragrind, kraftkubbur o.fl.
Verð 9.7 m. kr. Uppl. 6609970.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
200 mílur
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
og bar virðingu fyrir og hlust-
aði á sjónarmið annarra. Hann
talaði vel um flesta og ekki illa
um neinn.
Hann hafði yndi af sígildri
tónlist, söng lengi með karla-
kórnum Stefni og átti gott safn
af geisladiskum sem hann
hlustaði mikið á. Hann var
einnig afar fróður og vel lesinn
og einstaklega minnugur. Hann
fylgdist vel með fréttum og
þjóðmálaumræðu en hafði líka
mikinn áhuga á gömlum þjóð-
legum fróðleik og vísum. Við
sátum oft og spjölluðum um
heima og geima, það var aldrei
komið að tómum kofanum hjá
honum. Hann sagði mér frá
mörgu frá liðinni tíð og hafði
alltaf svör á reiðum höndum, ég
átti eftir að spyrja hann um svo
ótal margt en þannig týnist víst
tíminn.
Honum var mjög annt um
fjölskylduna sína, fylgdist vel
með öllum barnabörnunum og
hafði yndi af að hitta langafa-
börnin sín.
Það sást líka vel síðustu vik-
urnar hvað barnabörnin voru
dugleg að koma og sitja hjá afa
sínum og endurgjalda honum
þann kærleik sem hann hafði
sýnt þeim alla tíð.
Undir það síðasta var Skúli
orðinn mikið veikur og þreyttur
og farinn að þrá hvíldina.
Hólmfríður annaðist hann
heima eins lengi og hægt var,
af kærleika og umhyggju sem
við hin getum lært mikið af.
Síðustu vikuna sat hún hjá hon-
um allar nætur þar til yfir lauk.
Hún á mikinn heiður skilinn
fyrir.
Ég kveð góðan vin með
þakklæti fyrir liðnar stundir.
Ylfa.
Nú er Skúli farinn frá okkur,
og skilur eftir sig stórt skarð í
tilverunni sem erfitt verður að
fylla.
Hann kom snemma inn í líf
mitt þegar hann gekk mér og
Gumma bróður í föður stað
þegar við vorum aðeins tveggja
og þriggja ára gamlir. Þetta
föðurhlutverk rækti hann af al-
úð og ól okkur upp með
mömmu eins og eigin syni.
Skúli var góður maður, hann
var heiðarlegur, opinskár og lá
ekki á skoðunum sínum þannig
að menn þurftu ekkert að
velkjast í vafa um hvar þeir
höfðu hann. Þetta gerði það að
verkum að hann valdist gjarna
til forystu í félagsstörfum í
sveitinni okkar, og oftar en
ekki þegar hann var að heiman
var það vegna fundarsetu í
stjórnum eða nefndum.
Hann hafði sterkar skoðanir,
á stjórnmálum sem öðru en
þröngvaði þeim ekki upp á
aðra. Þó var hann mikið fyrir
rökræður, var rökfastur og
ákveðinn þegar hann ræddi
málefni og minnist ég stunda í
eldhúsinu heima þegar gesti
bar að garði sem voru á önd-
verðum meiði í pólitík að það
var talað hátt og fast kveðið að
orði. Þetta voru stundir sem
maður vildi ekki missa af og
var fast setið í eldhúsinu, hlust-
að á hvert orð og dáðst að mál-
flutningi Skúla, því að sjálf-
sögðu fannst manni að hann
hefði algerlega rétt fyrir sér í
þessum rökræðum.
Hann hafði sterka og fallega
rödd, lá oft hátt rómur og
stundum voru krakkar sem
komu til okkar í sveitina pínu
smeyk við hann til að byrja
með. Það hvarf hins vegar um
leið og þau kynntust honum
betur því hann var hið mesta
ljúfmenni.
Hjarta hans var alltaf í sveit-
inni, honum þótti mikið vænt
um kindurnar sínar og þekkti
hverja einustu þeirra með
nafni. Hann var afar fjárglögg-
ur og gat þekkt lömb af for-
eldrum þeirra og sá ættarsvip
með fé ekki síður en fólki. Bú-
skaparárin í Kjósinni voru
frekar erfið, það var kalt í veðri
og vætutíð þannig að heyskap-
ur gekk brösulega og brugðu
foreldrar mínir búi 1984 og
fluttu til Hafnarfjarðar. Það
var greinilegt að hann saknaði
þessara ára og seinni árin eftir
að sumrin urðu hlýrri og þurr-
ari talaði hann stundum um að
það hefði nú verið munur að
eiga við heyskap núna.
Hann sagði þó aldrei alveg
skilið við kindurnar sínar, hafði
áfram nokkrar kindur á Írafelli
sem færðust síðan í hendur
Þorbjargar dóttur hans, en
hann fylgdist með þeim búskap
af áhuga fram til dauðadags.
Gangur lífsins er gjarnan
þannig að framan af styðja for-
eldrar börn sín, hjálpa þeim og
hughreysta ef þarf. Síðan
myndast jafnvægi eftir að
börnin komast á fullorðinsár,
en á efri árum foreldranna snú-
ast gjarnan hlutverkin við og
var okkar samband engin und-
antekning hvað þetta varðaði.
Á dánarbeði Skúla komst ég
þó að því að þessi hlutverka-
skipting getur breyst hratt, því
þar sem ég sat einn með hon-
um, hann orðinn svo máttfarinn
að hann gat ekki lengur talað,
ég eins og lítill drengur með
tár í augum að þakka honum
uppeldið og segja honum að ég
myndi sakna hans, þá brosti
hann hughreystandi og hvíslaði
einhverju sem ég skildi ekki en
voru örugglega einhver hugg-
unarorð.
Þannig var hann, alltaf til
taks fyrir sitt fólk svo lengi
sem hann dró andann.
Blessuð sé minning hans.
Vilhjálmur.
Elsku afi.
Það var ótrúlega sárt að sjá
þig kveðja okkur, en við trúum
að þú sért á fallegum stað. Það
var notalegt að koma til ykkar
ömmu á Álfaskeiðið, þegar við
vorum litlar heyrðum við flaut-
ið þitt úr herberginu. Á seinni
árum komstu alltaf fram í stofu
þegar við komum, sagðir okkur
sögur úr sveitinni og vildir ekki
missa af spjallinu. Þegar við
fórum, kreistirðu alltaf hend-
urnar okkar þéttingsfast og
örugglega. Við vissum alveg
hvaða hug þú barst til okkar
þótt það hafi ekki alltaf verið
sagt í orðum. Þér fannst rosa-
lega gaman að barnabarna-
börnunum og varst alltaf svo
glaður þegar þau kíktu við.
Þú varst yndislegur í alla
staði og við eigum svo margar
minningar af þér brosandi og
hlæjandi. Við efumst ekkert um
að þú sért syngjandi og að
njóta náttúrunnar þarna hinu-
megin. Með hjörtun full af
söknuði kveðjum við þig í
hinsta sinn.
Dagmar, Hrönn og Íris.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2019
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar