Morgunblaðið - 02.04.2019, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert í góðu skapi í dag, enda
ástæða til. Leyfðu öðrum að njóta sann-
mælis. Þú færð atvinnutilboð sem þú
ættir að íhuga.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert með óþarfa áhyggjur af fjár-
hagnum, því hann er ekki eins slæmur og
þú heldur. Styrkur þinn mun leiða þig
áfram og ryðja öllum hindrunum úr vegi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Finndu leið til að koma hug-
myndum þínum á framfæri og gættu
þess að misskilningur skemmi ekki fyrir.
Taktu gjöfum lífsins með þakklæti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú færð einstakt tækifæri í dag
til að hrinda hugmyndum þínum í fram-
kvæmd. Rólegar stundir í einveru gefa
þér orku til að takast á við lífið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér hættir til að leita langt yfir
skammt og það á við í máli sem þú þarft
að fást við. Gakktu ótrauð/ur til verks og
mundu að hálfnað er verk þá hafið er.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Allir bera ábyrgð á sínum eigin
gjörðum. Þér er margt til lista lagt. Taktu
frá tíma hvern dag til að slaka á.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gefðu þér tíma til þess í dag að
hugsa um það hvert þú stefnir. Enginn er
fullkominn og heimurinn ferst ekki þótt
eitthvað þurfi að bíða.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú færir út kvíarnar og eign-
ast nýja vini. Ekki ögra makanum og gára
vatnið bara af því að þér leiðist. Allt fell-
ur í ljúfa löð varðandi unglinginn á heim-
ilinu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur unnið vel að undan-
förnu og mátt vera ánægð/ur með
sjálfa/n þig. Farðu varlega að öðrum og
sýndu fólki einlægan áhuga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er erfiðara að finna jafn-
vægið á milli ástar og vinnu en að leið-
rétta fjárlagahallann. Taktu lítið skref í
einu í áttina að því hvernig þú vilt lifa líf-
inu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að fást við þýðingar-
mikið mál í dag. Hlustaðu á hjartað og þá
fer allt vel.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er auðvelt að gagnrýna fólk
úr fjarlægð, sérstaklega þá sem hafa
mikil völd og virðast misnota þau. Sam-
starf þitt við aðra byggist á því að þú
getir breytt til.
Sigurlín Hermannsdóttir skrifaðiá Leirinn á laugardag að enn
fór hún í Borgarfjörðinn að leita að
vorinu. Enn bólar ekkert á því:
Ösla fönn í fari djúpu
finna þrái merki um vor
fótspor lít þar refs og rjúpu
og raunar einnig músaspor.
Frostið bítur fast í kinn
feykist snjór um gættir.
Engir fuglar enn um sinn
að utan virðast mættir.
Daginn áður hafði Pétur Stef-
ánsson skrifað:
Þó hér sé mikið vol og væl
og veröld full af trúðum,
taktu lífi létt með stæl
og láttu vaða á súðum.
Það var bjart yfir Ingólfi Ómari:
„Það gengur á ýmsu hér á Fróni en
þó dugar ekkert minna en að vera
bjartsýnn og jákvæður.“
Oft þó vilji hrella hug
harmkvæli og gremja
vísa skaltu böli á bug
og bjartsýni þér temja.
Og Davíð Hjálmar í Davíðshaga
sagði: „Ég er alltaf bjartsýnn.“
Sést í heiði sólin blíða,
syngur fugl og hvítnar brok
þegar verður hætt að hríða
hérna fyrir ágústlok.
Góður vinur minn benti mér á, að
í ritgerð Kjartans Ólafssonar fyrr-
verandi alþingismanns og ritstjóra
Þjóðviljans, sem birtist í nýjasta
Ársriti Sögufélags Ísfirðinga, er að
finna þessa vísu hins fræga manns
Sigurðar Jóhannssonar, Sigurðar
skurðar. Vísuna orti hann til al-
þýðuskáldsins Magnúsar Hjaltason-
ar vinar síns:
Heyrðu kæri Magnús minn
mér finnst aukin gleðin
fyrir skýran skáldskap þinn
af skjóma runni kveðinn.
– „Skjóma (sverð) runnur“ er
kenning fyrir hermann eða mann.
Sigtryggur Jónsson er vel að sér
í gamla tímatalinu. Hann skrifaði á
þriðjudag: „Í gær lauk góu með
góuþræl. Í dag hefst einmánuður“:
Vetri hallar, vaknar líf
og vor í einmánuði.
Á vængjum inn í vorið svíf,
vosbúð frá og puði.
Bjarni Gunnlaugur Bjarnason
skrifar sem athugasemd við vísu
um viskurýrar vísur á Boðnarmiði:
Viska mín er varla nein
þar vísur lítt úr bæta.
En mér finnst gott ef ein og ein
einhvern nær að kæta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorleit og auðvitað bjartsýni
„GETUM VIÐ SLEPPT HASARNUM?” „ég fékk loksins frídag!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... umhyggja.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
STUNDUM GET ÉG EKKI
HÆTT AÐ BROSA
ÉG SAGÐI
„stundum”
HVERNIG
ER
BÓKIN?
FRÁBÆR, AFBRAGÐS,
AFBURÐA, FRAMÚRSKARANDI,
ÓVIÐJAFNANLEG, GLÆSILEG,
SNILLDARLEG!
SAM-HEITI
Öll þekkjum við Steve McQueen,Steve Harris og Steve McMan-
aman. En hver er hann þessi Steve
Sunnanátt sem veðurfræðingarnir
eru alltaf að tala um í sjónvarpinu?
Svo eiga þeir félagar nafna sem er
alltaf að þvælast í kringum kjara-
viðræður – Steve Samningalota.
x x x
Það snjóaði duglega á höfuðborg-arsvæðinu í gærmorgun og
Víkverji var, eins og margir, ríflega
helmingi lengur á leiðinni í vinn-
una. Svo hægt gekk umferðin á
löngum kafla. Víkverji þurfti meira
að segja að nema staðar einu sinni
til að berja af klaka sem safnast
hafði saman á rúðuþurrkunum. Það
hefur ekki gerst fyrr á þessum
vetri, sem hefur þrátt fyrir allt ver-
ið frekar snjóléttur. Eða er það
ekki?
x x x
Eftir átján daga hlé tóku leik-menn enska úrvalsdeild-
arfélagsins Arsenal loksins fram
skóna í gærkvöldi. Það þýðir að
þrjár helgar liðu án þess að stuðn-
ingsmenn liðsins sæju það leika
keppnisleik. Víkverji hefur ekki
framkvæmt rannsókn á málinu en
gæti eigi að síður best trúað því að
það sé einsdæmi á þessum árstíma.
x x x
Þetta hvimleiða hlé helgaðist afþví að fyrstu helgina voru
bikarleikir á Englandi og Arsenal
hafði áður stimplað sig út úr þeirri
ágætu keppni; síðan kom lands-
leikjahlé og loks féll leikur Arsenal
gegn Newcastle í úrvalsdeildinni á
mánudagskvöld.
Af þessum ástæðum lék Arsenal
aðeins tvo deildarleiki í mars sem
hlýtur að vera sárasjaldgæft.
Mögulega einsdæmi.
x x x
Ekki svo að skilja að leikmennArsenal hafi verið með fæturna
upp í loft allan þennan tíma. Sumir
fóru til liðs við landslið sín og léku
með þeim; aðrir skelltu sér til
Dubai að skoða hallir auðmanna og
leika æfingaleik. Já, æfingaleik í
mars. Hugsanlega enn eitt eins-
dæmið. vikverji@mbl.is
Víkverji
Innan skamms mun heimurinn ekki
sjá mig framar. Þér munuð sjá mig
því ég lifi og þér munuð lifa.
(Jóh. 14.19)
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
• Neðri hæð með sér garði
• Efri hæð með sér þakverönd
• 2 svefnherbergi – 2 baðherbergi
• Sameiginlegur sundlaugargarður
• Frábær staðsetning
• Göngufæri í verslanir og veitingastaði
Verð frá 24.100.000 Ikr.
(177.000 evrur, gengi 1evra/136Ikr.)
TILBOÐ: Húsgögn að eigin vali
fyrir Ikr. 500.000 fylg ja öllum
íbúðum keyptum í apríl og maí.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
DONA PEPA – COSTA BLANCA
VANDAÐAR OG FALLEGAR ÍBÚÐIR – GOTT VEÐUR ALLT ÁRIÐ