Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Blaðsíða 4
HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2019 Eru Börsung- ar í Messi? Þetta er lélegasta Barcelona-liðsem ég hef séð lengi,“ fullyrtiskeleggur sparkskýrandi, ættaður úr Húnaþingi, við mig í vik- unni, eftir að hafa séð þá Börsunga leggja Manchester United í Leik- húsi draumanna í Meistaradeild Evrópu. „Sko,“ hélt hann áfram. „Rakitić og Arthur. Það eru menn- irnir sem eru komnir í staðinn fyrir Iniesta og Xavi – og standa þeim langt að baki.“ „Alveg sammála. Og skilja ekki Barcelona-hugmyndafræðina ná- lægt því eins vel,“ bætti annar skel- eggur sparkskýrandi við, ættaður úr Breiðholtinu. „Svo er Suárez ekki sami maður- inn og hann var; orðinn gamall. Hafi Barcelona einhvern tíma verið eins- manns-lið, þá er það núna,“ gall þá í málshefjanda. Og þá var hann ekki að tala um Sergio Busquets. Með fullri virðingu fyrir þeim ágæta manni. Og öllu hans fólki. Eflaust taka ýmsir undir með þessum spekingum. Skarð Neymars hefur aldrei verið fyllt í einni ógur- legustu framherjaþrennu heims- sparksins. Svo má rifja upp liðið, þar sem hinn fjallhressi Samuel Eto’o og Thierry Henry léku við hlið Lionels Messi. Og svo var þar um tíma Ron- ald nokkur -inho. Er nokkur búinn að gleyma honum? Gætu unnið þrefalt En rykkjum nú aðeins í dragbeislin. Þetta „lélega“ lið þeirra Börsunga vann góðan sigur á United í átta liða úrslitum meistaradeildarinnar og mun að óbreyttu krúsa áfram í und- anúrslit. Nema Óli Gunnar eigi þá aðra kanínu í hatti sínum; úr sama goti og þá sem hann sýndi heiminum í París í síðustu umferð. Það er eng- in leið að lesa í sólskinsbrosið á Norðmanninum. Og hvernig er staðan heima fyr- ir? Jú, Börsungar eru með ellefu stiga forskot á Atlético Madrid á toppi deildarinnar, þegar aðeins sjö leikir eru óleiknir, á tímabili þar sem erkifjendurnir í Real Madrid hafa verið með allt lóðbeint niðrum sig. Börsungar ruddu Real einmitt úr vegi á leið sinni í úrslit Konungsbikarsins, þar sem Valencia bíður þeirra lok maí. Þrennan er því vel í kortunum ennþá. Já, svona getur knattspyrnan ver- ið skrýtin skepna. Lionel Messi. Leiðin liggur víst aðeins upp á við úr þessu. Eða hvað? AFP Allt leikur í lyndi hjá hinu víðfræga knattspyrnu- liði Barcelona sem er þungvopnað á þrennum vígstöðvum á þessu vori. Ekki er sveitin þó að heilla alla sparkspekinga með framgöngu sinni. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ég hef alltaf átt dýr. Býsna marga ketti ogeinu sinni átti ég meira að segja hund.Ég hef þá kenningu að gæludýr geri fólk betra og jafnvel mest óþolandi fólk hefur fengið prik í minni bók ef það á gæludýr. Sérstaklega ketti. Ég held að við hjónin höfum mest átt fjóra ketti í einu og fannst það fullkomlega eðlilegt ástand. Kettir eru nefnilega svo meiriháttar dýr. Þeir eru sérstakir. Stundum glaðir og gæfir en stundum sérlundaðir og félagsfælnir. Alveg eins og fólk. Það er sennilega það sem er skemmtilegast við þá. Þeir hafa sinn sérstaka karakter. Litlikisi er þannig. Við fengum hann óvart, eftir að dætur okkar ráfuðu inní íbúð á Dalvík fyrir sex árum og gengu þar inná læðu með kettlinga sem hún hafði gotið nokkrum dögum fyrr. Þær féllu strax fyrir þeim eina ljósa í hópnum og við sömdum um að við myndum fá hann þegar hann væri tilbúinn. Svo kom hann. Pínulítill og úfinn. Upphófust hinar hefðbundnu umræður um nafn. Sumar hugmyndirnar voru dálítið undarlegar. Dóttir okkar var hörð á að hann ætti að heita Jón Hólm Bergmann. Við hættum reyndar við það þegar við áttuðum okkur á að hann myndi sennilega alltaf verða kallaður Jón HB. Þannig að hann var bara kallaðir litli kisi, til aðgrein- ingar frá hinum ketti heimilisins. Svo bara fest- ist það við hann. Hann týndist þegar hann hafði verið hjá okk- ur í nokkrar vikur. Óð út, eins og hann væri heimsborgari, fríkaði út og endaði uppí Katt- holti. Kom svo heim næsta dag með skottið milli lappanna, í orðsins fyllstu merkingu og fór varla útúr húsi eftir það. Ég held að ég geti fullyrt að síðan hafi hann ekki farið lengra en tíu metra frá húsinu, og þá bara ef Svanhildur var úti með honum. Yfirleitt lét hann sér nægja að reka trýnið útum gluggann og þefa af heiminum. Svo er hann náttúrlega stórundarlegur. Sefur helst alltaf ofan á ástkærri eiginkonu minni, frekjast í fangið á henni þegar hún er að vinna og drekkur helst bara úr baðkarinu. Annars reynir hann helst að ná átján tíma svefni til að geta staðið undir þessum vöktum í stofuglugg- anum. Þar situr hann og horfir á fólkið og fuglana. Það er sennilega aðalstarf hans. En nú er hann týndur aftur. Og það er hræði- legt. Við höfum leitað útum allt. Dreift aulýs- ingum, gengið um götur um allan bæ með harð- fisk í poka, kallandi á hann. Það er mögulega ekkert sérlega svalt að ganga kallandi um göt- ur, lyktandi eins og Kolaportið en það skiptir ekki máli. Við verðum að finna hann. Við höfum fengið mikla hjálp frá fólki sem gerir sér grein fyrir því að það er stórmál að týna ketti. Allir eru boðnir og búnir að hjálpa til, líta inní bílskúra og opna kjallara. En það hefur engu skilað. Ég hef misnotað samfélagsmiðla, logið mig inní Facebook-hópa til að getað birt auglýsingar og talað um þetta í útvarpsþættinum mínum. Og ég er ekki hættur! Það er mögulega að renna uppfyrir ykkur núna að ég er algjörlega samviskulaus þegar um hagsmuni kattanna minna er að tefla. Þetta er semsagt í raun bara ein stór auglýsing um týndan kött. Og þetta er mynd af honum. Ég skammast mín ekki neitt! ’Það er mögulega ekkert sér-lega svalt að ganga kallandium götur, lyktandi eins og Kola-portið en það skiptir ekki máli. Við verðum að finna hann. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Leitin að Litlakisa SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.