Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Side 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2019 Fagnaðu áfanganum í Hörpu Veislurými af öllum stærðum og gerðum Nánar á harpa.is/veislur 9 DAGA HAUSTFERÐIR TAMPA ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS VERÐ FRÁ 196.900 KR. INNIFALIÐ: FLUG, GISTING & MORGUNVERÐUR NÁNAR Á UU.IS SÉRTILBOÐ! Allar götur frá því um alda-mót hefur Evrópusam-bandið verið að varða leið- ina inn á markaðinn með rafmagn sem vöru. Samkvæmt fyrstu vörð- unum var raforkuiðnaðurinn bút- aður niður í einingar, meðal ann- ars með því að aðskilja framleiðslu, flutning, dreifingu og sölu. Síðan voru stigin skref til að láta þessar einingar haga sér á markaðsvísu og með síðustu vörð- unni, 3. orkupakkanum, er stefnt að því að láta hinn nýja markað starfa á samræmdan hátt við innri markað Evrópusambandsins (ESB) fyrir raforku. Á þessari þróun verður enn hert með 4. orkupakkanum sem er búinn að vera í umsagnarferli. Þarna leiðir eitt af öðru. Smám saman taka reglur fjórfrelsisins – um frjálst flæði vöru, vinnuafls, þjónustu og fjármagns – yfir. Þær eru lokamarkið, grunnreglurnar sem varða veginn. Þegar upp verður staðið mun ekkert stað- bundið lýðræði verða við lýði. Lögmál markaðarins munu ein ráða. Frá þeim verða engin frávik leyfð nema um þau sé sérstaklega samið á sameiginlegum vettvangi ESB og Evrópska efnahagssvæð- isins (EES). Þessu hafa Íslendingar fengið að kynnast með evrópsku mat- vælalöggjöfinni. Þar stóðu menn í þeirri trú að við gætum innleitt hana en síðan bundið í íslensk lög ýmsa fyrirvara. Þeir fyrirvarar – íslensku lagaákvæðin – hafa nú verið dæmdir ólöglegir, brjóta gegn „fjórfrelsi“ ESB/EES, nokk- uð sem hefur valdið því að nauð- synlegt væri að taka málið upp frá grunni gagnvart Evrópusamband- inu og það á algerlega nýjum og breyttum forsendum, vildu menn á annað borð standa á sínu. Og það á að sjálfsögðu að gera. En nú vill ríkisstjórnin fara með orkuna í sama farveg og tapaðist með matvælalögunum! Samþykkja pakkann en freista þess síðan að festa fyrirvara í íslensk lög. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með umræðu um þessa leið á Alþingi. Guðlaugur Þór utanríkis- ráðherra og Þórdís Gylfadóttir orkumálaráðherra segja þetta ekki vera neitt tiltökumál enda fjalli þetta ekki um annað en markaðs- væðingu rafmagnsins! Og varð- andi áhyggjur manna af þvingaðri tengingu við Evrópu þá muni okk- ar forræði tryggt með eigin laga- fyrirvörum og skilningsríku sím- tali við Brussel. Framsóknarflokkurinn hefur að mestu leyti þagað og er það von- andi góðs viti en óneitanlega kem- ur afstaða VG á óvart, fullkomin kúvending frá öllu sem flokkurinn hefur sagt til þessa! Ari Trausti, talsmaður flokksins við umræðuna, fór þannig lofsam- legum orðum um fyrsta og annan orkupakka og sagði engar hættur stafa af hinum þriðja. Við hefðum fullt forræði yfir málinu, ekki að- eins varðandi hugsanlegan sæ- streng heldur um sjálfa orku- framleiðsluna. Sagðist hann ekki hafa séð neitt í orkupakkanum sem skerti forræði íslenskra stjórnvalda. Annar þingmaður VG, Ólafur Þór, dásamaði að „sjálf- stæði“ Orkustofnunar skyldi styrkt gagnvart markaðsaðilum og viti menn „stjórnvöldum“. Þetta er orðalagið þegar höggvið skal á hinn lýðræðislega naflastreng! Öðru vísi mér áður brá. Menn rýna í lagatexta og binda vonir við fyrirvara. Því miður er ástæða til að ætla að annar og naprari veruleiki eigi eftir að koma í ljós. Nú er einfaldlega ver- ið að stilla upp á skákborðinu með því að þoka orkugeiranum enn lengra yfir á markaðsgrunn. Þeg- ar stillt hefur verið upp á for- sendum fjórfrelsis ESB/EES verða markaðsöflin látin taka yfir og ná sínu fram í gegnum dóm- stóla eins og jafnan áður. Hvað gera dómstólarnir þegar fjárfestar segjast vilja leggja sæ- streng á eigin kostnað til að ná í „vöru“ sem komin er undir reglur „fjórfrelsisins?“ Ekki nóg með það, ráðist hafi verið í mikinn rannsóknarkostnað í góðri trú og verði að fást skaðabætur ef ís- lensk stjórnvöld ætli að standa í vegi fyrir verslun með vöru sem heyri undir „fjórfrelsið“. Þá mun reyna á heimalagaðan og hraðsoð- inn fyrirvara Alþingis fyrir ESA og EFTA-dómstólnum. Minnumst þess að ekki eru liðn- ir margir mánuðir síðan íslenskir skattgreiðendur voru þvingaðir með dómi til að borga Högum og öðrum verslunarrekendum þrjá milljarða í skaðabætur af völdum laga sem Alþingi Íslendinga hafði sett en þóttu brjóta gegn „fjór- frelsi“ ESB/EES. Hver hefði trú- að þessu að óreyndu? Almenningur veit að þegar orkugeirinn hefur verið markaðs- væddur mun hann fyrr eða síðar hafna í klóm fjárfesta sem eru staðráðnir í að færa þann hagnað sem nú rennur til samfélagsins í eigin vasa. Og við munum engu ráða um það hvort hingað verður lagður sæstrengur. Líklegt má heita að það yrði knúið fram með dómsvaldi og við látin borga brús- ann með hærra orkuverði. Annar aflgjafi verður síðan græðgin sem mun stöðugt knýja á um meiri virkjanir. Þennan veg viljum við varla láta vísa okkur með íslenska náttúru. Guðlaugur Þór og Ari Trausti vísi ekki veginn ’ Almenningur veit aðþegar orkugeirinnhefur verið markaðs-væddur mun hann fyrr eða síðar hafna í klóm fjárfesta sem eru stað- ráðnir í að færa þann hagnað sem nú rennur til samfélagsins í eigin vasa. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@- ogmundur.is Guðlaugur Þór Þórðarson Ari Trausti Guðmundsson Meðvitund um umhverfismáler að aukast í samfélag-inu. Við vitum margt í dag sem við vissum ekki í gær. Við vitum að plastmagnið í heiminum er orðið svo óheyrilegt að við fáum í okkur plastagnir með mat og drykk. Við vitum að hitastig í heiminum er að hækka svo hratt að við höfum aðeins um áratug til að draga stórkostlega úr losun gróðurhúsalofttegunda ef ekki á illa að fara. Við vitum að líf- fræðilegur fjölbreytileiki er í mikilli hættu og að dýr sem við treystum á fyrir afkomu mannkyns eru í útrým- ingarhættu svo sem hunangsflugur. Nú þegar við erum orðin meðvituð um þetta þá er spurningin hvernig við bregðumst við. Margar leiðin- legar tilfinningar fara á flug þegar við lesum um og lærum um þessi mál. Tilfinningar eins og kvíði, sam- viskubit, vonleysi, hjálparleysi og reiði. Við skömmumst út í aðra; hvers vegna eru aðrir ekki að hugsa um þetta líka, hvers vegna sagði mér þetta enginn fyrr, hvers vegna hafa yfirvöld ekki gert eitthvað, hvers vegna … Við reynum að leita auð- veldra lausna, einhvers eins sem hef- ur stór áhrif. Það ætti að banna að: panta af netinu, kaupa vörur frá As- íu, henda mat, borða kjöt. Oft viljum við að samfélagið hætti að gera það sem við erum ekki að gera nú þegar, því það krefst sem minnst af okkur. Við viljum gera allt fullkomið og viljum gjarnan bíða með að taka af skarið fyrr en við vitum að það sem við gerum sé algjörlega rétt og þess virði að gera það. Við höldum oft að okkur höndum í stað þess að fram- kvæma ef ske kynni að þetta yrði enn eitt „Brúneggjamálið“. Það myndi gera okkur gott að átta okkur á þessu, það er að við erum mannleg, staðan er ekki góð og sannleikurinn er erfiður. Þegar eitt- hvað er erfitt og vekur með okkur ótta viljum við gjarnan benda á aðra, við viljum að aðrir geri eitthvað stór- tækt í málunum því okkur finnst okkar framlag lítils virði. Við reyn- um að bægja frá okkur tilfinning- unum, hver þarf á því að halda að láta bæta ofan á óöryggi og sam- viskubit í daglegu lífi? Það er víst nægt fyrir. Þess vegna þurfum við að átta okkur á því að við erum ekki og verðum ekki fullkomin yfir nótt, hvorki sem einstaklingar né sem samfélag. Samfélagið þarf og mun breytast hratt á næstu árum og við munum uppgötva að einhverjar að- gerðir sem farið var í af góðum hug virkuðu ekki sem skyldi en það þýðir ekki að það sé betra að halda að sér höndum. Til að komast í átt að sjálf- bæru samfélagi þurfum við að fara ótroðna slóð, slóð sem enginn hefur farið áður. Við munum þurfa að vera meðvituð á leið okkar og horfa fram veginn og þegar við sjáum að leiðin sem við völdum endar í ógöngum þurfum við að snúa við og finna nýja leið. Það eru ekki mistök heldur hluti af ferðalaginu. Ef við viður- kennum það í upphafi mun gangan verða betri en annars hefði orðið. Sleppum skömminni og fullkomn- unaráráttunni, það þyngir bara bak- pokann. Við berum ekki sök á því hvernig samfélagi við erum alin upp í, við getum ekkert gert að því að hafa ekki vitað betur. En við berum ábyrgð á því hvernig við högum okk- ur núna þegar við vitum betur. En hvað þýðir það? Þurfa allir þá að hætta að fljúga, keyra og kaupa? Nei. Góður byrjunarpunktur er að skoða sig. Hvernig líður þér með þetta allt? Trúir þú því að þitt fram- lag skipti máli? Hvað vekur áhuga þinn? Hvernig kemur þín þekking og reynsla þarna inn? Með þann leiðarvísi er hægt að leggja af stað í gönguna, skoða, hlusta, læra. Tökum dæmi. Ertu fag- eða áhugamanneskja um elda- mennsku? Hvernig er hægt að nýta mat betur, hvaða matur hefur um- hverfisáhrif og hvernig? Ertu í byggingarvinnu? Hvaða byggingar- efni hafa minnst umhverfisspor? Hvernig minnkar maður sóun á nýti- legu byggingarefni? Hvernig er best að farga byggingarúrgangi? Þannig má heimfæra spurningar upp á líf okkar. Vafalaust muntu komast að alls konar hlutum sem vekja leiðin- legar tilfinningar en mundu að við ætlum að skoða þetta án samvisku- bits og fullkomnunaráráttu. Við ætl- um að beita forvitni. Við ætlum að skoða þetta með áhuga og forvitni. Vera opin fyrir breytingum og fara í gönguna, eitt skref í einu. Sjálfbærnigangan – eitt skref í einu Í átt að sjálf- bærni dr. Snjólaug Ólafsdóttir snjolaug@andrymi.is ’ Við berum ekki sök áþví hvernig samfélagivið erum alin upp í, viðgetum ekkert gert að því að hafa ekki vitað betur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.