Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Page 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2019
Fagnaðu
áfanganum
í Hörpu
Veislurými af öllum stærðum og gerðum
Nánar á harpa.is/veislur
9 DAGA HAUSTFERÐIR
TAMPA
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS
VERÐ FRÁ 196.900 KR.
INNIFALIÐ: FLUG, GISTING & MORGUNVERÐUR
NÁNAR Á UU.IS
SÉRTILBOÐ!
Allar götur frá því um alda-mót hefur Evrópusam-bandið verið að varða leið-
ina inn á markaðinn með rafmagn
sem vöru. Samkvæmt fyrstu vörð-
unum var raforkuiðnaðurinn bút-
aður niður í einingar, meðal ann-
ars með því að aðskilja
framleiðslu, flutning, dreifingu og
sölu. Síðan voru stigin skref til að
láta þessar einingar haga sér á
markaðsvísu og með síðustu vörð-
unni, 3. orkupakkanum, er stefnt
að því að láta hinn nýja markað
starfa á samræmdan hátt við innri
markað Evrópusambandsins
(ESB) fyrir raforku.
Á þessari þróun verður enn
hert með 4. orkupakkanum sem
er búinn að vera í umsagnarferli.
Þarna leiðir eitt af öðru. Smám
saman taka reglur fjórfrelsisins –
um frjálst flæði vöru, vinnuafls,
þjónustu og fjármagns – yfir. Þær
eru lokamarkið, grunnreglurnar
sem varða veginn. Þegar upp
verður staðið mun ekkert stað-
bundið lýðræði verða við lýði.
Lögmál markaðarins munu ein
ráða.
Frá þeim verða engin frávik
leyfð nema um þau sé sérstaklega
samið á sameiginlegum vettvangi
ESB og Evrópska efnahagssvæð-
isins (EES).
Þessu hafa Íslendingar fengið
að kynnast með evrópsku mat-
vælalöggjöfinni. Þar stóðu menn í
þeirri trú að við gætum innleitt
hana en síðan bundið í íslensk lög
ýmsa fyrirvara. Þeir fyrirvarar –
íslensku lagaákvæðin – hafa nú
verið dæmdir ólöglegir, brjóta
gegn „fjórfrelsi“ ESB/EES, nokk-
uð sem hefur valdið því að nauð-
synlegt væri að taka málið upp frá
grunni gagnvart Evrópusamband-
inu og það á algerlega nýjum og
breyttum forsendum, vildu menn á
annað borð standa á sínu. Og það
á að sjálfsögðu að gera.
En nú vill ríkisstjórnin fara með
orkuna í sama farveg og tapaðist
með matvælalögunum! Samþykkja
pakkann en freista þess síðan að
festa fyrirvara í íslensk lög.
Það hefur verið fróðlegt að
fylgjast með umræðu um þessa
leið á Alþingi.
Guðlaugur Þór utanríkis-
ráðherra og Þórdís Gylfadóttir
orkumálaráðherra segja þetta ekki
vera neitt tiltökumál enda fjalli
þetta ekki um annað en markaðs-
væðingu rafmagnsins! Og varð-
andi áhyggjur manna af þvingaðri
tengingu við Evrópu þá muni okk-
ar forræði tryggt með eigin laga-
fyrirvörum og skilningsríku sím-
tali við Brussel.
Framsóknarflokkurinn hefur að
mestu leyti þagað og er það von-
andi góðs viti en óneitanlega kem-
ur afstaða VG á óvart, fullkomin
kúvending frá öllu sem flokkurinn
hefur sagt til þessa!
Ari Trausti, talsmaður flokksins
við umræðuna, fór þannig lofsam-
legum orðum um fyrsta og annan
orkupakka og sagði engar hættur
stafa af hinum þriðja. Við hefðum
fullt forræði yfir málinu, ekki að-
eins varðandi hugsanlegan sæ-
streng heldur um sjálfa orku-
framleiðsluna. Sagðist hann ekki
hafa séð neitt í orkupakkanum
sem skerti forræði íslenskra
stjórnvalda. Annar þingmaður VG,
Ólafur Þór, dásamaði að „sjálf-
stæði“ Orkustofnunar skyldi
styrkt gagnvart markaðsaðilum og
viti menn „stjórnvöldum“. Þetta er
orðalagið þegar höggvið skal á
hinn lýðræðislega naflastreng!
Öðru vísi mér áður brá.
Menn rýna í lagatexta og binda
vonir við fyrirvara. Því miður er
ástæða til að ætla að annar og
naprari veruleiki eigi eftir að
koma í ljós. Nú er einfaldlega ver-
ið að stilla upp á skákborðinu með
því að þoka orkugeiranum enn
lengra yfir á markaðsgrunn. Þeg-
ar stillt hefur verið upp á for-
sendum fjórfrelsis ESB/EES
verða markaðsöflin látin taka yfir
og ná sínu fram í gegnum dóm-
stóla eins og jafnan áður.
Hvað gera dómstólarnir þegar
fjárfestar segjast vilja leggja sæ-
streng á eigin kostnað til að ná í
„vöru“ sem komin er undir reglur
„fjórfrelsisins?“ Ekki nóg með
það, ráðist hafi verið í mikinn
rannsóknarkostnað í góðri trú og
verði að fást skaðabætur ef ís-
lensk stjórnvöld ætli að standa í
vegi fyrir verslun með vöru sem
heyri undir „fjórfrelsið“. Þá mun
reyna á heimalagaðan og hraðsoð-
inn fyrirvara Alþingis fyrir ESA
og EFTA-dómstólnum.
Minnumst þess að ekki eru liðn-
ir margir mánuðir síðan íslenskir
skattgreiðendur voru þvingaðir
með dómi til að borga Högum og
öðrum verslunarrekendum þrjá
milljarða í skaðabætur af völdum
laga sem Alþingi Íslendinga hafði
sett en þóttu brjóta gegn „fjór-
frelsi“ ESB/EES. Hver hefði trú-
að þessu að óreyndu?
Almenningur veit að þegar
orkugeirinn hefur verið markaðs-
væddur mun hann fyrr eða síðar
hafna í klóm fjárfesta sem eru
staðráðnir í að færa þann hagnað
sem nú rennur til samfélagsins í
eigin vasa. Og við munum engu
ráða um það hvort hingað verður
lagður sæstrengur. Líklegt má
heita að það yrði knúið fram með
dómsvaldi og við látin borga brús-
ann með hærra orkuverði. Annar
aflgjafi verður síðan græðgin sem
mun stöðugt knýja á um meiri
virkjanir.
Þennan veg viljum við varla láta
vísa okkur með íslenska náttúru.
Guðlaugur Þór og Ari Trausti vísi ekki veginn
’ Almenningur veit aðþegar orkugeirinnhefur verið markaðs-væddur mun hann fyrr
eða síðar hafna í klóm
fjárfesta sem eru stað-
ráðnir í að færa þann
hagnað sem nú rennur til
samfélagsins í eigin vasa.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@-
ogmundur.is
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Ari Trausti
Guðmundsson
Meðvitund um umhverfismáler að aukast í samfélag-inu. Við vitum margt í dag
sem við vissum ekki í gær. Við vitum
að plastmagnið í heiminum er orðið
svo óheyrilegt að við fáum í okkur
plastagnir með mat og drykk. Við
vitum að hitastig í heiminum er að
hækka svo hratt að við höfum aðeins
um áratug til að draga stórkostlega
úr losun gróðurhúsalofttegunda ef
ekki á illa að fara. Við vitum að líf-
fræðilegur fjölbreytileiki er í mikilli
hættu og að dýr sem við treystum á
fyrir afkomu mannkyns eru í útrým-
ingarhættu svo sem hunangsflugur.
Nú þegar við erum orðin meðvituð
um þetta þá er spurningin hvernig
við bregðumst við. Margar leiðin-
legar tilfinningar fara á flug þegar
við lesum um og lærum um þessi
mál. Tilfinningar eins og kvíði, sam-
viskubit, vonleysi, hjálparleysi og
reiði. Við skömmumst út í aðra;
hvers vegna eru aðrir ekki að hugsa
um þetta líka, hvers vegna sagði mér
þetta enginn fyrr, hvers vegna hafa
yfirvöld ekki gert eitthvað, hvers
vegna … Við reynum að leita auð-
veldra lausna, einhvers eins sem hef-
ur stór áhrif. Það ætti að banna að:
panta af netinu, kaupa vörur frá As-
íu, henda mat, borða kjöt. Oft viljum
við að samfélagið hætti að gera það
sem við erum ekki að gera nú þegar,
því það krefst sem minnst af okkur.
Við viljum gera allt fullkomið og
viljum gjarnan bíða með að taka af
skarið fyrr en við vitum að það sem
við gerum sé algjörlega rétt og þess
virði að gera það. Við höldum oft að
okkur höndum í stað þess að fram-
kvæma ef ske kynni að þetta yrði
enn eitt „Brúneggjamálið“.
Það myndi gera okkur gott að átta
okkur á þessu, það er að við erum
mannleg, staðan er ekki góð og
sannleikurinn er erfiður. Þegar eitt-
hvað er erfitt og vekur með okkur
ótta viljum við gjarnan benda á aðra,
við viljum að aðrir geri eitthvað stór-
tækt í málunum því okkur finnst
okkar framlag lítils virði. Við reyn-
um að bægja frá okkur tilfinning-
unum, hver þarf á því að halda að
láta bæta ofan á óöryggi og sam-
viskubit í daglegu lífi? Það er víst
nægt fyrir.
Þess vegna þurfum við að átta
okkur á því að við erum ekki og
verðum ekki fullkomin yfir nótt,
hvorki sem einstaklingar né sem
samfélag. Samfélagið þarf og mun
breytast hratt á næstu árum og við
munum uppgötva að einhverjar að-
gerðir sem farið var í af góðum hug
virkuðu ekki sem skyldi en það þýðir
ekki að það sé betra að halda að sér
höndum. Til að komast í átt að sjálf-
bæru samfélagi þurfum við að fara
ótroðna slóð, slóð sem enginn hefur
farið áður. Við munum þurfa að vera
meðvituð á leið okkar og horfa fram
veginn og þegar við sjáum að leiðin
sem við völdum endar í ógöngum
þurfum við að snúa við og finna nýja
leið. Það eru ekki mistök heldur
hluti af ferðalaginu. Ef við viður-
kennum það í upphafi mun gangan
verða betri en annars hefði orðið.
Sleppum skömminni og fullkomn-
unaráráttunni, það þyngir bara bak-
pokann.
Við berum ekki sök á því hvernig
samfélagi við erum alin upp í, við
getum ekkert gert að því að hafa
ekki vitað betur. En við berum
ábyrgð á því hvernig við högum okk-
ur núna þegar við vitum betur. En
hvað þýðir það? Þurfa allir þá að
hætta að fljúga, keyra og kaupa?
Nei.
Góður byrjunarpunktur er að
skoða sig. Hvernig líður þér með
þetta allt? Trúir þú því að þitt fram-
lag skipti máli? Hvað vekur áhuga
þinn? Hvernig kemur þín þekking
og reynsla þarna inn?
Með þann leiðarvísi er hægt að
leggja af stað í gönguna, skoða,
hlusta, læra. Tökum dæmi. Ertu fag-
eða áhugamanneskja um elda-
mennsku? Hvernig er hægt að nýta
mat betur, hvaða matur hefur um-
hverfisáhrif og hvernig? Ertu í
byggingarvinnu? Hvaða byggingar-
efni hafa minnst umhverfisspor?
Hvernig minnkar maður sóun á nýti-
legu byggingarefni? Hvernig er best
að farga byggingarúrgangi? Þannig
má heimfæra spurningar upp á líf
okkar. Vafalaust muntu komast að
alls konar hlutum sem vekja leiðin-
legar tilfinningar en mundu að við
ætlum að skoða þetta án samvisku-
bits og fullkomnunaráráttu. Við ætl-
um að beita forvitni. Við ætlum að
skoða þetta með áhuga og forvitni.
Vera opin fyrir breytingum og fara í
gönguna, eitt skref í einu.
Sjálfbærnigangan –
eitt skref í einu
Í átt að sjálf-
bærni
dr. Snjólaug Ólafsdóttir
snjolaug@andrymi.is
’ Við berum ekki sök áþví hvernig samfélagivið erum alin upp í, viðgetum ekkert gert að því
að hafa ekki vitað betur.