Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Side 8
SAKAMÁL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2019 Þ að getur margborgað sig að mæta í afmælisveislur. Að því komst þýski rannsóknarblaðamaðurinn og kvik- myndagerðarmaðurinn Boris Quatram í byrjun síðasta árs. Í slíkri veislu hjá sameiginlegum vini var honum skipað til borðs við hliðina á Ingvari Þórðarsyni, kvikmyndaframleiðanda ofan af Íslandi. Þeir voru lítillega málkunnugir og fóru að spjalla saman. „Ingvar fór að spyrja hvað ég væri að fást við og fljótlega barst talið að gömlu óleystu saka- máli á Íslandi, Geirfinnsmálinu, sem ég hafði aldei heyrt minnst á. Málið vakti strax áhuga minn, ekki síst eftir að Ingvar benti mér á, að þýskur afbrotafræðingur, Karl Schütz hefði verið fenginn til landsins til að aðstoða við rann- sókn málsins,“ segir Boris gegnum símann frá Berlín. Boris hafði aldrei heyrt Schütz getið en fór í framhaldinu að grennslast fyrir um hann. „Það var ekki auðvelt að afla upplýsinga um Schütz hérna í Þýskalandi; hann hefur verið hálfgerður huldumaður en kom þó að mjög stórum málum á áttunda áratugnum, eins og Der Spiegel- málinu og Baader-Meinhof-málinu, sem bæði vöktu athygli langt út fyrir landsteinana.“ Neistinn var tendraður og Boris las allt sem hann komst yfir á ensku um hvarf Geirfinns Einarssonar og dómsmálið sem stofnað var til í kjölfarið, auk þess sem Ingvar útvegaði honum þýðingar úr íslensku. „Þessi ráðgáta heillaði mig. Það var að vísu ekki búið að sýkna hina dæmdu í Hæstarétti á þessum tíma en samt lá í loftinu að dómsmorð hafði verið framið. Allir sem ég talaði við voru sammála um það. Fyrir vikið var freistandi að hefja mína eigin rann- sókn; fara til Íslands og sjá að hverju ég myndi komast.“ Þegar hér er komið sögu lá fyrir að Boris ætl- aði sér að gera heimildarmynd um málið. Hófst þá leitin að sögumanni eða manni til að vera í forgrunni myndarinnar og leiða rannsóknina áfram. „Hvers vegna gerir þú það ekki sjálfur?“ spurði Ingvar sem áfram var með í ráðum og er framleiðendi myndarinnar ásamt Júlíusi Kemp fyrir Neutrinos Productions í Þýskalandi og Kvikmyndafélag Íslands. Til að byrja með þótti Boris það ekki góð hug- mynd enda er hann vanari að vera fyrir aftan tökuvélina en framan hana. Eftir að hafa hugs- að sig vandlega um ákvað hann hins vegar að slá til enda mælti margt með því að hann tæki hlut- verkið að sér; hann var kominn vel inn í málið og talar þýsku sem kom í góðar þarfir vegna að- komu Karls Schütz. Hitti allt að átta manns á dag Boris flaug í fyrsta skipti til Íslands í júlí á síð- asta ári í þeim tilgangi að setja sig betur inn í málið. Hann hitti gríðarlega marga í þeirri heim- sókn, allt að átta manns á dag, til að fá sem besta tilfinningu fyrir framhaldinu. „Það sló mig strax að allir Íslendingar þekkja til þessa máls enda þótt hálf öld sé að verða liðin frá því að Geirfinn- ur hvarf. Ungir sem aldnir. Nóg er að nefna hann á nafn og þá tendrast fólk upp. Allir þekkja söguna og hafa skoðun á málinu án þess að vita fyrir víst hvað gerðist. Þetta er fáheyrt með sakamál; alltént eigum við ekkert svona mál í Þýskalandi – sem hvert mannsbarn þekkir. Auk þess að rannsaka málið sjálfur var mér í mun að halda þessu til haga, þessum brennandi áhuga íslensku þjóðarinnar á máli sem legið hefur á henni sem mara. Geirfinnsmálið hefur augljós- lega djúpa þýðingu fyrir íslensku þjóðina.“ Svo er það landið sjálft. „Ég hafði ekki í ann- an tíma komið til Íslands og féll strax kylliflatur fyrir landinu; þvílík náttúrufegurð. Það er í raun alveg sama hvar maður stillir myndavél- inni upp, alls staðar er fallegt. Þessi áhrif lang- aði mig að hafa í myndinni líka. Sterk saga, sterkt myndefni.“ – Hvað finnst þér sjálfum um lögreglurann- sóknina og niðurstöðu dómstóla? „Það er alveg ljóst að eitthvað fór verulega úrskeiðis. Því dýpra sem ég gróf þeim mun fleiri þversagnir fann ég. Hvernig er hægt að reka mál með þessum hætti þegar ekkert lík er til staðar, enginn morðvettvangur og ekkert til- efni? Bara játningar sem fengnar voru fram með mjög vafasömum hætti og flestir geta verið sammála um í dag að voru falskar. Það er í raun magnað hvernig átt var við minni þessa unga fólks og það sannfært um að það bæri ábyrgð á glæpnum. Farið er yfir þetta í myndinni, meðal annars með Gísla Guðjónssyni, réttarsálfræð- ingi í Lundúnum, sem hefur sérhæft sig í fölsk- um játningum. Ég ræði líka við aðstandendur hinna dæmdu og tvö þeirra sjálfra, Guðjón Skarphéðinsson og Erlu Bolladóttur. Þau sam- töl höfðu djúpstæð áhrif á mig. Saga þessa fólks er átakanleg, svo ekki sé meira sagt. Það var ekki bara gæsluvarðhaldið og fangelsisvistin heldur ekki síður viðtökurnar þegar hin dæmdu komu aftur út í samfélagið. Þau voru útskúfuð. Síðan hefur svona lagað ekki bara áhrif á hin dæmdu heldur einnig fjölskyldur þeirra og ást- vini. Það er svo margt rangt við það sem þarna átti sér stað og greinilegt að réttarkerfið virkaði ekki eins og það átti að gera. Það var mjög hryggilegt fyrir mig að komast að þeirri niður- stöðu en um leið hvati til að halda vinnu minni áfram,“ segir Boris og bætir við að stórfurðu- legt sé að Erla hafi verið skilin eftir þegar hinir voru sýknaðir í fyrra. Var lögreglan spillt? Hann staldrar áfram við rannsókn lögregl- unnar. „Svo virðist sem íslenska lögreglan hafi á sínum tíma ekki haft neina burði til að rannsaka svona stórt mál. Menn voru einfaldlega of ungir og óreyndir. Það er annar möguleikinn. Hinn er sá að lögreglan hafi vísvitandi beint rannsókn- inni inn á ranga braut og þar af leiðandi fengið ranga niðurstöðu. Var lögreglan spillt við rann- sókn Geirfinnsmálsins? Og hverjum var þá ver- ið að hlífa? Því get ég ekki svarað með vissu en sem blaðamaður get ég heldur ekki útilokað þennan möguleika. Við rannsókn eins og þá sem ég stunda í myndinni er þó brýnt að halda sig við staðreyndir. Það er í raun mottó myndar- innar. Það er nefnilega auðvelt að tapa sér í Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Hví kólnaði slóð elskhugans? Skandall, glæný heimildarmynd í fjórum hlutum um Geirfinnsmálið, kemur inn í Sjónvarp Símans Premium á þriðjudaginn. Höfundur hennar, þýski blaða- og kvikmyndagerðarmaðurinn Boris Quatram, segir í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðs- ins, mörgum spurningum ósvarað og veltir fyrir sér hvers vegna maður sem lögregluskýrslur staðfesta að hafi haldið við eig- inkonu Geirfinns hafi ekki verið rannsakaður betur. Við gerð myndarinnar fann Boris þennan Íslending í Þýskalandi. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Það er alveg ljóst að eitthvaðfór verulega úrskeiðis. Þvídýpra sem ég gróf þeim munfleiri þversagnir fann ég. Hvernig er hægt að reka mál með þessum hætti þegar ekkert lík er til staðar, enginn morðvett- vangur og ekkert tilefni?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.