Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Page 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Page 29
Taylor og Andy Warhol. Um ljós- myndir Galella sagði Warhol: „Í mínum huga er góð ljósmynd sú sem er í fókus, af frægri manneskju að gera eitthvað venjulegt. Þetta snýst um að vera á réttum stað á röngum tíma, þess vegna er Ron Ga- lella eftirlætisljósmyndarinn minn.“ Ýmist velkomnir og óvelkomnir Britney Spears er með þekktari dæmum um stjörnur síðari tíma sem hafa þolað mikið áreiti. Frægast var þegar tónlistarkonan átti við andlega erfiðleika að stríða, fékk taugaáfall en fékk samt ekki frið. Eftir að hafa útskrifað sjálfa sig af meðferð- arstofnun var hún elt af papparössum sem mynduðu hana þar sem hún stöðvaði bif- reið sína og var greini- lega í miklu uppnámi. Hún endaði á að ráðast á bifreið ljósmyndaranna og berja með regnhlíf. Áfram var hún mynd- uð. Á þeim tíma höfðu margir áhyggj- ur af því að örlög Britney Spears yrðu þau sömu og Díönu; pappa- rassar myndu enda á að valda dauða hennar. Meðan sumir nærast og byggja af- komu sína á athygli ljósmyndara nær hvar og hvenær sem er, svo sem Kim Kardashian og systur hennar, eru aðrir sem hafa lýst því hvernig papparassar eru stórt vandamál. Leikkonan Emma Watson sagði frá því í Variety að ef einhver almennur borgari póstaði mynd af henni á sam- félagsmiðlunum, þar sem hún situr á veitingastað eða annars staðar, væru papparassar fljótt búnir að sigta út hvar hún væri og mættu á staðinn. Hún reyndi sem mest að fela sig. Í seinni tíð hafa þrjár frægðar- konur fengið dæmdar skaðabætur vegna mynda sem papparassar tóku af þeim; Sienna Miller, Amy Wine- house og Lily Allen. Börnin heilögust Sama hversu lítið eða mikið stjörn- urnar skeyta um myndatökur pappa- rassa eiga þær þó það flestar sameig- inlegt að reyna að vernda börn sín. Það gerir það eflaust að verkum að tímarit og dagblöð hafa borgað sín hæstu verð fyrir stakar ljósmyndir af einmitt börnum leikara, tónlistarfólks og annars frægðarfólks. Í Kaliforníu- ríki hafa verið sett lög sem gera myndatökur af börnum stjarnanna ólöglegar nema með leyfi foreldr- anna. Þetta eru ekki þó alltaf myndir frá papparössum sem blöðin kaupa held- ur selja foreldrar stundum sjálfir myndir af þeim og fá greitt í eigin vasa. Þannig seldu Brad Pitt og Angelina Jolie bandaríska tímaritinu People og breska Hello! myndir af tvíburum sínum Knox Leon og Vivi- enne Marcheline fyrir samtals 15 milljónir dollara. En það er ekki bara keppni um að mynda börnin sem fædd eru heldur líka þau sem eru á leiðinni. Eitt fræg- asta dæmið um slíkt, með óvenjuleg- um afleiðingum, er þegar Grace Kelly Mónakóprinsessa reyndi að fela stækkandi óléttukúlu sína fyrir ljós- myndurum árið 1956. Hún notaði til þess handtösku sína og birtist mynd af því í Life tímaritinu. Í kjölfarið urðu slíkar töskur strax þekktar sem „Kelly-töskur“ og hafa alla tíð síðan notið ómældra vin- sælda í tískuheim- inum. Taskan er hönnun Hermés, upphaflega frá 1892 en hefur nokkrum sinnum verið endur- hönnuð. Árið 1972 var henni formlega gefið nafnið „Kelly bag“. Díana prinsessa var hund- elt af papparössum alla tíð en á flótta undan þeim lést hún í bílslysi árið 1997. Taskan sem Kelly ætlaði að skýla sér bak við í myndatöku, öðlaðist heimsfrægð. Nokkrum sinnum hefur komið til handalögmála. Fræg er senan þegar leikarinn og Herra heimur 1955; Mickey Hargitay, réðst á ljósmyndar- ann Rino Barillari árið 1963. 14.4. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 TÓNLIST Selena Gomez snýr aft- ur á stóra sviðið 25. apríl næstkom- andi en þrír mánuðir eru frá því leik- og söngkonan steig fram og talaði opinskátt um taugaáfall sem hún fékk á síðasta ári. Selena Gomez mun koma fram á svokall- aðri WE Day hátíð í Los Angeles en það er í fyrsta sinn sem hún kemur fram frá því í október á síðasta ári. Taugaáfallið má rekja til mikils álags vegna nýrnaskipta sem hún fór í 2017 og lupus-sjúkdómsins sem hún hefur glímt við. Mætir aftur á sviðið Selena Gomez hefur talað opinskátt um veikindi sín. BÓKSALA 3.-9. APRÍL Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 GullbúriðCamilla Läckberg 2 KastaníumaðurinnSören Sveistrup 3 Stórar stelpur fá raflostGunnhildur Una Jónsdóttir 4 LasarusLars Kepler 5 UppljóstrarinnJan-Erik Fjell 6 MoldrokMons Kallentoft 7 Íslenskar þjóðsögur: úrval 8 Húðflúrarinn í AuschwitzHeather Morris 9 Stóri maðurinnPhoebe Locke 10 MatthildurRoald Dahl 1 MatthildurRoald Dahl 2 Emma öfugsnúnaGunilla Wolde 3 Emmu finnst gaman í leikskólanum Gunilla Wolde 4 Tumi fer til læknisGunilla Wolde 5 Bók um tré Piotr Socha/Wojciech Grajkowski 6 Tumi bakarGunilla Wolde 7 Harry Potter og viskusteininn J.K. Rowling 8 Hvar er Depill?Eric Hill 9 Risasyrpa – sögur úr Andabæ Walt Disney 10 VitinnRóbert Marvin Allar bækur Barnabækur Glæpur við fæðingu eftir Trevor Noah í þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur, er nýkomin út en bókin er sú sjöunda í áskriftarröð Angústúru. Uppistandarinn og stjórnmálaskýrandinn Noah, sem margir þekkja úr bandarísku sjónvarpsþáttunum The Daily Show segir í bókinni frá óvenjulegri ævi sinni í skugga að- skilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku en samband móður hans og föður af ólíkum hörundslit var á þeim tíma refsivert. Emma öfugsnúna og þrjár aðrar nýjar bæk- ur um krakkana Emmu og Tuma hafa nú ver- ið endurprentaðar en JPV gefur út að nýju hinar vinsælu barnabækur eftir Gunillu Wolde sem komu fyrst út fyrir um fjórum áratugum. Margir fullorðnir þekkja bækurnar úr sinni barnæsku enda nutu þær mikilla vin- sælda. Hinar bækurnar sem nú koma út eru Tumi fer til læknis, Emmu finnst gaman í leikskólanum og Tumi bakar. ÁHUGAVERÐAR BÆKUR Ég hlusta mikið á hljóðbækur, bæði fyrir svefninn, þegar ég fer út að hlaupa og svo þegar ég ek langar vegalengdir, en inn á milli gríp ég líka í prentuð eintök. Lestrarefnið er úr öllum áttum og er þar einnig talsvert af námsefni núna þar sem ég er í diplómanámi á meistarastigi í op- inberri stjórnsýslu í HÍ. Núna er ég í fag- inu Stjórnsýsluréttur og gríp því reglulega í skýringarrit Páls Hreinssonar, Stjórnsýslulögin. Kaupthinking er einnig á nátt- borðinu og áhuga- vert að sjá hve vel Þórði Snæ Júlíus- syni tekst upp með að skrifa um þessi mál á mannamáli en nær samt um leið að draga fram alvarleikann í mál- inu. Svo er ég að hlusta á yndislega sögu, Britt-Marie var hér, eftir Fre- drik Backman. Hrikalega skemmtileg týpa sem aðal- persónan er; snögg upp á lagið og með svör á reiðum höndum. Í bland hef ég svo verið með Útkalls-bækurnar á Storytel, hef alltaf haft gaman af fréttatengdu efni, og bækur Ragnars Jónas- sonar og Camillu Läckberg und- anfarið, þetta er skemmti- og fræðiefni í bland. ALDÍS HILMARSDÓTTIR ER AÐ LESA Skemmtun og fræði Aldís Hilmars- dóttir er fram- kvæmdastjóri hjá Íbúðalána- sjóði. Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.