Fréttablaðið - 18.06.2019, Síða 4

Fréttablaðið - 18.06.2019, Síða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Símaveski, heyrnartól, snúrur og allt fyrir símann. Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind AKUREYRI Hestamaður á Akureyri slasaðist fyrir skömmu þegar laus hundur fældi hest undan honum. Nokkur viðlíka slys hafa orðið á fólki á undanförnum árum í hest- húsahverfum og á reiðleiðum við Akureyri en lausaganga hunda er bönnuð í bæjarlandinu. Sigfús Ólafur Helgason, fram- kvæmdastjóri hestamannafélagsins Léttis, segir sorglegt að slys verði af þessu tagi. Hann staðfestir að kona hafi slasast við tamningar inni í svokölluðu tamningagerði í hest- húsahverfinu sunnan Glerár fyrir skömmu. Ástæða þess var að inn í gerðið kom laus hundur. Tamn- ingahrossinu hafði þá orðið bylt við og stokkið til hliðar með þeim afleiðingum að tamningamaðurinn datt af baki. Sigfús staðfestir einnig að þetta slys sé ekki það eina á síðustu árum þar sem lausir hundar hræða hross. „Það er sorglegt að menn virði ekki þessa einföldu lögreglusam- þykkt, að lausaganga hunda sé bönnuð í bæjarlandinu,“ segir Sigfús. „Það er líka afar leiðinlegt að hestamenn sjálfir brjóti þessa reglu. Við höfum auðvitað ekkert á móti hundum en við verðum bara að virða þessar reglur sem okkur og öllum bæjarbúum eru settar.“ Ljóst þykir að hundar sem ganga lausir í hesthúsahverfinu séu í eigu annarra hestamanna í hverfinu. Því eru það hestamennirnir sjálfir sem valda því að slysahætta er meiri á reiðleiðunum vegna þessa. Töluvert hefur verið kvartað undan þessu undanfarin ár með litlum árangri. „Þetta er sorglegt, ég á bara eitt orð yfir þetta. Það er búið að ræða þetta á fundum margsinnis og gefa út tilkynningar um að lausaganga sem þessi sé bönnuð,“ segir Sigfús. – sa Hundar valda slysum á hestamönnum norðan heiða Hestamenn á Akureyri kvarta undan lausagöngu hunda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN REYKJAVÍK Þeir sem nýta sér þjón- ustu í miðborginni gera það flestir á matsölustöðum, kaffihúsum, börum og skemmtistöðum. 97,5 prósent þeirra sem nýta sér þjón- ustu í miðborginni einu sinni til þrisvar í mánuði nýttu sér þessa þjónustu á síðustu tólf mánuðum en 71,3 prósent sama hóps nýttu sér þjónustu verslana á svæðinu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Zenter rannsóknir gerðu á afstöðu borgarbúa til göngugatna. Lokað var fyrir bílaumferð á göngugötum borgarinnar 1. maí síðastliðinn og undanfarin ár hefur verið opnað fyrir umferð aftur 1. október. Samþykkt hefur verið í borgarstjórn að gera göngugötur varanlegar í borginni og mun sú breyting fara fram í áföngum. Fyrsti áfanginn verður svæðið frá Þing- holtsstræti að Klapparstíg. Í könnuninni kemur einnig fram að nær helmingur svarenda er hlynntur göngugötum í miðborg- inni, 18,2 prósent hafa ekki myndað sér afstöðu og 32,7 prósent eru and- víg göngugötunum. Því oftar sem fólk nýtir sér þjón- ustu miðborgarinnar, því hlynntara er það lokun gatnanna. 75 prósent þeirra sem nýta sér þjónustu í mið- borginni einu sinni í viku eða oftar eru hlynnt lokununum á meðan 58 prósent þeirra sem segjast aldrei nýta sér þar þjónustu eru andvíg. Þeir sem hlynntir eru göngugöt- unum segja f lestir skemmtilegri stemningu helstu ástæðuna, eða 28 prósent. Því næst nefnir fólk minni bílaumferð, aukið mannlíf og loft- gæði. Þeir sem eru andvígir varan- legri lokun gatna í borginni nefna langflestir, eða 29,4 prósent, veðrið sem ástæðu þess, því næst er nefnt skert aðgengi og skert aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgöngu- ráðs, segir að vel verði hugað að aðgengi á göngugötunum og þá sér í lagi aðgengi fyrir hreyfihamlaða. „Laugavegurinn verður endurgerð- ur og við lyftum yfirborði götunnar, þá er betra aðgengi inn í verslanir. Svo erum við líka að fjölga stæðum fyrir hreyfihamlaða upp við göngu- götuna. Við ætlum að reyna að bæta aðgengi á alla vegu.“ Aðspurð um niðurstöður könn- unarinnar segir Sigurborg þær koma heim og sama við upplifun hennar á hversu margir leggja leið sína í miðborgina. „Við sjáum þetta eftir að lokanir hófust, það eru svo margir að koma niður í miðbæ á göngugötuna, svo þessar niður- stöður haldast í hendur við það sem við sjáum.“ birnadrofn@frettabladid.is Fleiri sækja í veitingahús og bari en verslanir í miðbænum Flestir þeirra sem nýta sér þjónustu miðborgarinnar fara á matsölustaði, kaffihús, bari og skemmtistaði samkvæmt nýrri könnun. Helmingur svarenda er hlynntur göngugötum en þeir sem eru andvígir setja veðrið og aðgengi fyrir sig. Formaður skipulagsnefndar segir að vel verði hugað að aðgengi fyrir alla. Fjöldi fólks lagði leið sína á þann hluta Laugavegs sem nú er göngugata á 17. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sigurborg Ósk Haraldsdóttir UMHVERFISMÁL Alexander Tikh- omirov, sem varð landsfrægur fyrir að festa Land Cruiser jeppa í aur, í Bjarnarf lagi í Mývatnssveit, fyrr í mánuðinum hefur nú birt myndband af Íslandsferð sinni þar sem hann sést gera ýmsa ólöglega eða óæskilega hluti. Í myndbandinu sést Tikh omirov meðal annars keyra utan vega, leggja ólöglega á þjóðvegi eitt og ganga á afgirtum svæðum. Bæði á svæði sem verið er að vernda fyrir ágangi og á afgirtu hverasvæði. Einnig birtir Alexander mynd af því þegar hann á í orðaskiptum við lögregluna vegna utanvega- akstursins og þegar grafa kemur akandi til þess að ná bílnum upp. Um 25 þúsund höfðu hor ft á my ndbandið þegar Frétt a- blaðið fór í prentun og það á einungis tveimur dögum. Mynd- bandið gefur afar skakka mynd af því hvernig ber að umgangast íslenska náttúru og aksturslagi á vegum landsins. Landeigendur í Mývatnssveit hafa gert tveggja milljóna króna fjárkröfu á hendur Tikhomirov vegna skemmdanna samkvæmt fréttastofu Vísis. Tik- homirov hlaut einnig sekt fyrir utanvegaaksturinn upp á 450 þús- und krónur. – vá Utan vega aksturinn ekki eins dæmi Alexander Tikhomirov festi jeppa sem hann var með á leigu þegar hann ók utan vegar við Mývatn. MYND/LÖGREGLUSTJÓRINN Á NORÐURLANDI EYSTRA SAMFÉLAG Í ávarpi sínu á Austur- velli í gær lagði Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra áherslu á þá umbyltingu sem orðið hefði á öllum sviðum á Íslandi frá lýðveldisstofn- un. Hún sagði samfélagið meðal þeirra fremstu í heimi þegar kæmi að jöfnuði og velsæld. Standa þyrfti vörð um og tryggja undirstöður hins frjálslynda lýðræðis. Umhverfismál og staða barna og ungmenna voru henni ofarlega í huga. Í ávarpinu lagði Katrín áherslu á erindi Íslands í alþjóðasamfélaginu og sagði mikilvægt að standa með sjálfum sér og gæta að landi, tungu og menningu. „En líka að muna að við erum fullvalda þjóð og getum sem slík átt samskipti við hvern sem er á jafnræðisgrundvelli. Við varð- veitum ekki fullveldið með því að flýja undan öðrum því þá er hættan að fyrir okkur fari eins og Bjarti í Sumarhúsum sem fór úr einum næturstað í annan verri. Mætum öðrum þjóðum á jafnræðisgrund- velli en tryggjum um leið hagsmuni almennings í landinu,“ sagði for- sætisráðherra. – ds Áhersla á alþjóðamál Mætum öðrum þjóðum á jafnræðis- grundvelli en tryggjum um leið hagsmuni almennings í landinu. 1 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 8 -0 6 -2 0 1 9 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 3 B -E 6 B 4 2 3 3 B -E 5 7 8 2 3 3 B -E 4 3 C 2 3 3 B -E 3 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.