Fréttablaðið - 18.06.2019, Síða 42

Fréttablaðið - 18.06.2019, Síða 42
Upphaf og nafn fyrirtækisins er rakið til ömmunnar Mariu Nilu sem bjó í fjöllum Norður-Svíþjóðar og bjó til sínar eigin náttúrulegu sápur. Barna- börnum hennar þótti viðeigandi að nota sýn og kraft ömmu sinnar og nefndu fyrirtækið eftir henni, sem á vel við,“ útskýrir Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi heildsölunnar Regalo sem hún stofnaði með eiginmanni sínum Vilhjálmi Hreinssyni árið 2003. Þau hjónin byrjuðu með breska hárvörumerkið TIGI sem hannað er af ítölsku bræðrunum Toni & Guy og árið 2012 bættust við Miðjarðarhafs-hárvörurnar frá Moroccanoil sem er frumkvöðull í hárvörum með argan-olíu. Árið 2017 hóf Regalo sölu á bandaríska hárvítamíninu Sugarbear Hair og nú síðast bættust við vistvænu hárvörurnar frá Maria Nila. „Fjölskyldufyrirtækið Maria Nila á sér fjörutíu ára farsæla sögu. Allar vörur þess eru 100 prósent vegan og vistvænar, lausar við paraben og súlföt, og framleiddar í verksmiðju fyrirtækisins í Helsing- borg þar sem efnafræðingar og þróunarstjórar Maria Nila velja vandlega og af ástríðu öll inni- haldsefni sem notuð eru í vör- urnar,“ upplýsir Fríða Rut. Dýrmætur arfur frá ömmu Markmið Maria Nila er að sjá heiminum fyrir sjálf bærri fegurð sem unnin er af fagmennsku og meðvitund um dýra- og umhverf- isvernd. „Arfur Maria Nila er afkom- endum hennar í blóð borinn og því er heimspeki hennar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins. Amma Maria sýndi náttúrunni mikla virðingu með því að búa til hrein- lætis- og snyrtivörur úr náttúru- legum efnivið og því er takmark fyrirtækisins að vinna stöðugt að enn umhverfisvænni vörum, í samræmi við niðurstöður nýjustu rannsókna,“ segir Fríða Rut. Vegna ofgnóttar á snyrtivöru- markaði heimsins sé samkeppni harðari en nokkru sinni. „Því er mikilvægt að skera sig úr og koma skilaboðum Maria Nila á framfæri um allan heim og til framtíðar. Bæði hárvörurnar og pakkningar Maria Nila eru framleiddar með dýra- og náttúru- vernd að markmiði og hver einasta pakkning er vottuð af dýravernd- arsamtökunum PETA, The Vegan Society og Leaping Bunny. Það er trygging fyrir því að dýr séu ekki misnotuð við framleiðslu og þróun vörunnar, en þess má geta að þegar vörur eru merktar „Not tested on animals“ eða „Against animal testing“ er það engin trygging fyrir því að dýr hafi ekki verið notuð við framleiðslu og þróun snyrti- og hreinsivara,“ upplýsir Fríða Rut. Betri framtíð með Maria Nila Maria Nila trúir af einlægni á umhverfisvernd og er sífellt á höttunum eftir innihaldsefnum og pakkningum sem vernda dýr og umhverfi. Fyrirtækið starfar jafn- framt með norrænu umhverfis- verndarsamtökunum The Perfect World Foundation. „Samtökin voru stofnuð árið 2010 til vitundarvakningar og fjármögnunar á náttúruvernd um allan heim. Þau eru ekki rekin í hagnaðarskyni en Maria Nila hefur undanfarin ár styrkt samtökin um 100 til 200 þúsund sænskar krónur á ári til að leggja sín lóð á vogarskálarnar við verndun fíla í útrýmingarhættu, hreinsun sjávar og verndun villts dýralífs í Afríku,“ útskýrir Fríða Rut. Maria Nila vinnur einnig með samtökunum Plan Vivo til að snúa við loftslagsbreytingum. „Með Plan Vivo er unnið að sjálf- bærum verkefnum um allan heim og stutt við sjálfstæða bændur í Mið-Ameríku til að planta trjám í sviðinn svörð skóga. Með því er náttúrunni þyrmt og loftslagi gefinn tími til að jafna sig,“ segir Fríða Rut. Hún segir Maria Nila kapps- mál að vernda jörðina og framtíð mannkyns. „Við getum ekki lengur skorast undan því að taka ábyrgð á dýralífi og náttúru jarðar, sem og kynslóðum framtíðar. Dýr eru stór hluti lífsins á jörðinni og aldrei ætti að vera níðst á þeim eða útrýma þeim fyrir hégóma mannsins. Þess vegna er Maria Nila hjartans mál að framleiða hárvörur sem eru að öllu leyti úr jurtaríkinu og með vottun frá Vegan Society, PETA og Leaping Bunny geta viðskiptavinir verið vissir um að vörurnar eru bæði dýravænar og vegan,“ segir Fríða Rut um Maria Nila sem er ekkert venjulegt hárvörufyrirtæki. „Með hágæða vegan hárvörum gefum við jarðarbúum tæki- færi til að taka rétt skref í átt að sjálf bærri og vinsamlegri veröld. Heimspeki Maria Nila er að gefa fólki kost á bestu hugsanlegu Veldu hárvörur með hjartanu Sænska fjölskyldufyrirtækið Maria Nila framleiðir hárvörur af ást til dýra og náttúru. Allar vör- urnar eru 100 prósent vegan og vistvænar og skila hárinu silkimjúku, fylltu og fallegu. Fríða Rut Heimisdóttir er hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo. Maria Nila fjármagnar verndun villtra dýra og hreinsun hafsins. Maria Nila styður bændur í Mið-Ameríku við trjárækt eftir eyðingu skóga. Maria Nila mætir þörfum hvers og eins í vistvænni vegan hárlínu sinni. Vörur Maria Nila eru vottaðar af alþjóðlegum dýraverndunarsamtökum. Með hárvörum Maria Nila er hægt að hirða hár sitt með góðri samvisku. hárvörum án þess að stefna heil- brigði hársins eða umhverfinu í hættu. Það er óskandi að svo muni verða með allar hár- og húðvörur heimsins í framtíðinni.“ Allt um vörur og sölustaði Regalo má finna á regalo.is. Regalo er á Snapchat, Facebook og Instagram undir Regalofagmenn. 8 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RHÚÐ OG HÁR 1 8 -0 6 -2 0 1 9 0 6 :0 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 3 C -1 3 2 4 2 3 3 C -1 1 E 8 2 3 3 C -1 0 A C 2 3 3 C -0 F 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.