Fréttablaðið - 31.07.2019, Blaðsíða 8
18-24 ára
25-34 ára
35-44 ára
45-54 ára
55-64 ára
65+
n 65% n 35%
n 42% n 58%
n 51% n 49%
n 39% n 61%
n 35% n 65%
n 29% n 71%
n Já 42,8%
n Nei 57,2%
SAMFÉLAG 42,8 prósent landsmanna
hyggjast ferðast innanlands um
verslunarmannahelgina samkvæmt
niðurstöðum nýrrar könnunar
sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir
Fréttablaðið og frettabladid.is.
Mestur ferðahugur er í unga
fólkinu en 65 prósent fólks á aldr-
inum 18-24 ára hyggjast leggja land
undir fót um helgina, en einungis 35
prósent þeirra sem eru á aldrinum
55-64 ára.
Flestir þeirra sem ætla á skipu-
lagðar útihátíðir taka stefnuna á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, eða
5,1 prósent, en f lestir þeirra sem
hyggjast ferðast innanlands, eða
25,4 prósent, stefna ekki á þær
skipulögðu hátíðir sem í boði eru.
Könnunin var f ramk væmd
24.-29. júlí síðastliðinn og var send
á tvö þúsund einstaklinga í könnun-
arhóp Zenter rannsókna. Svarhlut-
fallið var 51 prósent en gögnin voru
vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu.
Verslunarmannahelgin er stærsta
ferðahelgi ársins og í öllum lands-
hlutum má finna hátíðir, uppá-
komur, tónlist og íþróttaviðburði.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum fer
fram í Herjólfsdal þar sem fjöldi
tónlistaratriða mun fylla sviðið og
í Neskaupstað fer fram fjölskyldu-
hátíðin Neistaflug þar sem meðal
annars verður haldið golfmót, tón-
leikar og brunaslöngubolti.
Ættarmót pönkara fer fram
á Laugarbakka þar sem hátíðin
Norðanpaunk fer fram. Á hátíðinni
kemur fram fjöldi hljómsveita sem
spila jaðartónlist af ýmsu tagi. Á
Akureyri verður fjölbreytt dagskrá
fyrir alla fjölskylduna á hátíðinni
Ein með öllu og Íslensku sumar-
leikunum. Þar koma fram margir
af vinsælustu listamönnum þjóðar-
innar.
Evrópumeistaramótið í mýrar-
bolta fer fram í Bolungarvík þar
sem keppt er í fótbolta í drullusvaði
á daginn og haldnir eru dansleikir
á kvöldin og á Höfn í Hornafirði
fer fram Unglingalandsmót UMFÍ.
Þar geta krakkar á aldrinum 11-18
ára reynt fyrir sér í hinum ýmsu
íþróttagreinum. Hátíðin er vímu-
laus.
Í Vatnaskógi fara fram Sæludagar
sem einnig eru vímulaus hátíð þar
sem meðal annars koma fram Páll
Óskar og Lalli töframaður og í
Múlakoti verður haldin hin árlega
fjölskylduhátíð þar sem verður flug-
keppni, brenna og kvöldvaka.
Í Hraunborgum í Grímsnesi
verður hátíðardagskrá alla helgina
þar sem stuðinu verður haldið uppi
í sundlaugarpartíi og með brekku-
söng svo eitthvað sé nefnt. Tuttugu
og fimm ára aldurstakmark er inn
á tjaldsvæðið og er fólk hvatt til að
mæta tímanlega til að tryggja sér
stæði.
Bæjarhátíðin Flúðir um versló
verður haldin í fimmta sinn um
helgina þar sem dagskrá sniðin
að allri fjölskyldunni verður frá
morgni til kvölds. Á dagskránni eru
meðal annars tónleikar með Pálma
Gunnarssyni þar sem hann fer yfir
feril sinn.
Nóg er að gera í höfuðborginni
um verslunarmannahelgina en
hátíðin Innipúkinn fer fram úti
á Granda frá föstudegi til sunnu-
dags. Á hátíðinni kemur fram
Unga fólkið ferðast mest um helgina
Rúm fjörutíu prósent landsmanna stefna á ferðalög innanlands um verslunarmannahelgina sem er stærsta ferðahelgi ársins. Dagskrá
verður um allt land þar sem fram koma margir af helstu listamönnum þjóðarinnar. Flestir ferðalanganna eru á aldrinum 18-24 ára.
Sæludagur í sveitinni fara fram um helgina í Hörgársveit þar sem meðal ann-
ars verður opið hús á Hótel Hjalteyri og haldin verður sandkastalakeppni.
Síldarævintýri verður haldið á
Siglufirði eftir tveggja ára hlé.
Flestir þeirra sem stefna á útihátíð um helgina ætla á Þjóðhátíð í Eyjum. Hátíðin er fastur liður í verslunarmannahelginni og var fyrst haldin fyrir 142 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
✿ Könnun Fréttablaðsins
Ætlar þú að ferðast innanlands um
verslunarmannahelgina?
fjöldi þekktra tónlistarmanna og
fara f lest atriði hátíðarinnar fram
innan dyra, en einnig verður há-
tíðar stemning á götunum í kringum
hátíðarsvæðið.
Haraldur Eiríksson veðurfræð-
ingur segir að útlit sé fyrir ágætis
veður á öllu landinu um helgina.
„Eins og þetta lítur út núna þá virð-
ist verða þokkalegt veður á öllu
landinu, þó ekki sé hægt að vera
mjög nákvæmur í spám á þessum
tímapunkti,“ segir Haraldur.
„Á föstudag og laugardag er spáð
nokkuð hægum vindi og hita víða
14-20 stigum. Svo á sunnudag og
mánudag verða litlar breytingar en
aðeins meira skýjafar þar sem verð-
ur skýjað með köflum og kannski
stöku síðdegisskúrir,“ bætir hann
við. birnadrofn@frettabladid.is
3 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
1
-B
E
A
0
2
3
8
1
-B
D
6
4
2
3
8
1
-B
C
2
8
2
3
8
1
-B
A
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K