Fréttablaðið - 31.07.2019, Blaðsíða 16
FÓTBOLTI Í gær birtu Leikmanna
samtök Íslands könnun á vinnu
umhverfi í íslenskri knattspyrnu.
Þar kom fram að mikil aukning er á
svokölluðum viðaukasamningum
meðal leikmanna sem er slæm
þróun að mati samtakanna. Laun
leikmanna hafa hækkað frá síðustu
könnun sem gerð var árið 2016 og
um 30 prósent leikmanna fá laun
sín greidd of seint.
„Það er töluverðu af fyrirspurnum
beint til okkar vegna vangoldinna
launa hjá félögum,“ segir Kristinn
Björgúlfsson, framkvæmdastjóri
Leik mannasamtakanna. Fy rir
félagsmenn er sjálfsagt mál að ganga
í þau mál. „Það er misvel tekið í það
innan félaganna. Sum félög þakka
fyrir pósta og bjóða á fundi og það
er fundin út leið og greiðsluplan
og annað á meðan önnur félög eru
óþægilegri.
Þetta er leiðinleg lenska að félög
telji það í lagi að borga laun seint af
því það er verið að borga íþrótta
manni. Venjulegur launamaður
myndi trúlega seint sætta sig við að
fá ekki greitt í nokkra mánuði.“
10 með milljón og yfir
Alls tók 191 leikmaður í efstu deild
þátt í könnunni sem var nafnlaus og
ekki hægt að rekja svörin til neinna
leikmanna. Hún var send félögum
í febrúar og fengu leikmenn fram
í maí til að svara. Aðeins þrír leik
menn ÍBV sáu sér fært að svara og
11 hjá KA og Fylki en annars var
svörunin góð meðal annarra félaga.
Leikmenn voru beðnir um að
svara hve há laun þeir fengju eftir
að hafa greitt af þeim skatt.
Laun voru gefin upp í dollurum
($) en leikmenn fengu hjálparmiða
á meðan þeir svöruðu, þar sem
dollurum hafði verið breytt yfir
í íslenska krónu. Ljóst er að laun
hafa hækkað frá síðustu könnun
sem samtökin fagna.
Flestir sögðust vera með á bilinu
242 til 485 þúsund í laun á mánuði
eða tæp 30 prósent. 10 leikmenn eru
með 970 þúsund og yfir, þar af þrír
með meira en 3,6 milljónir íslenskra
króna í laun á hverjum mánuði.
„Það hefur eitthvað verið rætt á
samfélagsmiðlum að þetta sé lygi
– sem ég vona svo sannarlega að sé
ekki raunin. Ég ætla ekki að rengja
að þetta sé svona. Ég vona að það
séu allavega þrír leikmenn sem fái
svona góð laun því það er ekkert að
því að leikmenn fái svona góð laun,“
segir Kristinn.
Rekstur íþróttafélaga er þungur.
Það sést á ársskýrslum félaga sem
Fréttablaðið skoðaði í gær. Flestir
formenn minna félagsmenn sína
á að reksturinn hafi verði og verði
trúlega alltaf þungur.
Ekki skrifa undir viðaukasamning
Alls segjast 82 leikmenn vera með
svokallaðan viðaukasamning sem
er mikil fjölgun frá síðustu könnun.
Leikmannasamtök Íslands hafa
áhyggjur af þeirri þróun þar sem
leikmenn hafa enga tryggingu fyrir
því sem viðaukasamningurinn
nær yfir sé sá samningur brotinn.
Að auki getur verið mjög kostn
aðarsamt að sækja slíkan samning
þar sem KSÍ tekur enga afstöðu til
slíkra samninga, þar sem þeir eru
ekki hluti af stöðluðum samningum
hjá KSÍ og þarf ekki að skila inn til
sambandsins og því þarf að fara
dómstólaleiðina sé slíkur samn
ingur brotinn. Leikmannasamtök
Íslands ráðleggja engum að skrifa
undir viðaukasamninga.
„Þetta hefur komið fyrir leik
menn. Þeir skrifa undir og svo
skuldar félagið leikmanni laun en
þá bendir félagið á þennan viðauka
samning og fríar sig ábyrgð. Og KSÍ
getur ekkert gert því þetta kemur
þeim ekkert við. Þetta er áhyggju
efni,“ segir Kristinn. Viðaukasamn
ingur getur náð yfir ýmis fríðindi,
rétt á ímynd leikmanns eða annarra
atriða eins og bíls og/eða íbúðar.
Unnið í samstarfi við FIFPro
Könnunin er gerð í samvinnu við
FIFPro, alþjóðlegu leikmannasam
tökin, og voru lagðar sömu spurn
ingar fyrir leikmenn og árið 2016.
Ljóst er að verktakar eru of margir,
tafir á launagreiðslum eru of miklar
hér á landi og leikmenn eru jafnvel
Þetta hefur komið
fyrir leikmenn. Þeir
skrifa undir og svo skuldar
félagið leikmanni laun en þá
bendir félagið á þennan
viðaukasamning og fríar sig
ábyrgð. Og KSÍ getur ekkert
gert því þetta kemur þeim
ekkert við.
Kristinn
Björgúlfsson
Fá vel greitt fyrir að spila fótbolta
Samkvæmt nýrri könnun Leikmannasamtaka Íslands fá 10 leikmenn um og yfir milljón á mánuði fyrir að spila fótbolta hér á landi.
Þó er víða pottur brotinn og samtökin fá reglulega símtöl frá leikmönnum sem hafa ekki fengið greidd laun á réttum tíma.
Skipti um lið og þá skipti hann engu
„Það er ekki svo langt síðan leikmaður hætti í liði þar sem félagið
skuldaði honum 600 þúsund krónur. Hann skipti um félag og af því
hann fór í annað lið þá datt hann niður goggunarröðina hjá félaginu
sem átti eftir að greiða launin. Þeir sáu engan hag í því að gera upp við
leikmanninn þar sem hann væri farinn. Á endanum komum við inn í
málið og þótt það hafi tekið töluverðan tíma að fá þann pening sem
hann átti inni hjá félaginu tókst það að lokum,“ segir Kristinn.
Meðal þess sem fram kemur í
könnuninni og birt er í fjölmiðlum
er að leikmenn á Íslandi séu
með allt að 3,6 milljónir króna í
mánaðarlaun eftir skatta, sem
eru þá u.þ.b. 5 milljónir í mánaðar-
laun. Á ársgrundvelli er þá verið
að tala um 60 milljónir króna á
einn aðila. Það hljóta allir að sjá
að slík framsetning er alger fjar-
stæða og ekkert íþróttafélag í
Íslandi hefur burði til að greiða
slík laun auk þess sem engum
stjórnendum sem starfa að miklu
leyti í umhverfi sjálfboðaliða
myndi detta slíkar launatölur til
hugar. 60 milljónir á ársgrund-
velli er bróðurpartur veltu flestra
félaganna í deildinni. Það er alger-
lega ábyrgðarlaust af hálfu Leik-
mannasamtaka Íslands að birta
slíka fjarstæðu án athugasemda
eða fyrirvara og gerir umrædda
könnun í heild algerlega mark-
lausa. Knattspyrnufélögin gera þá
kröfu að um það sé fjallað en þau
gera jafnframt þá kröfu að það
sé gert af fagmennsku, ábyrgð og
yfirvegun. Það er ekki gert með
illa unninni könnun sem birt er
svo fyrirvaralaust og stenst enga
skoðun.
Stjórn ÍTF
Yfirlýsing ÍTF
þvingaðir til að skrifa undir nýja
samninga.
„Ég held að fólk ætti að fagna
þessari skýrslu því þetta er í fyrsta
skipti sem grunnur er kominn um
hvernig þetta er hér á Íslandi. Margt
er gott þótt margt megi laga og það
þarf að taka höndum saman og laga
það sem þarf að laga í stað þess að
vera með blammeringar sem eiga
sér engar stoðir í raunveruleik
anum,“ segir Kristinn.
benediktboas@frettabladid.is
3 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
KR-ingar hafa staðið sig vel innanvallar í sumar og stefna á Íslandsmeistaratitilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Alls svöruðu 23 leikmenn Vals könnuninni sem var besta svarhlutfall liða. Aðeins þrír leikmenn ÍBV sáu sér fært að svara. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
3
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
1
-B
9
B
0
2
3
8
1
-B
8
7
4
2
3
8
1
-B
7
3
8
2
3
8
1
-B
5
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K