Fréttablaðið - 09.08.2019, Page 16
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra
Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Blade Runner 2049 hlaut Óskarsverðlaun fyrir tæknibrellur og kvikmyndun.
Kompari setur saman vinnu mismunandi deilda tæknibrellugeirans.
Frásögn Íslendings sem fór á Everest hjálpaði til við að búa til aðstæðurnar.
Eitt lærdómsríkasta verkefni Elfars var vinnan við Everest.
Kvikmyndabransinn á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum síðustu ár og vægi tækni
brellna verður æ meira. Elfar Smári
Sverrisson er lærður í því sem
kallast á ensku „comp ositing“,
á íslensku þýðist það best sem
stafræn samsetning en meðal
kollega er starfsheitið einfaldlega
kompari. Það sem kompari gerir er
að setja saman vinnu mismunandi
deilda við tæknibrellur. Á meðan
ein deild hannar þrívíddarmódel,
önnur hannar áferðina á módelinu
og enn önnur býr til hreyfingu á
því, sér komparinn um að setja alla
þessu vinnu saman í eitt skot.
Áhuginn á þessari vinnu
kviknaði þegar Elfar var í Marg
miðlunarskólanum. „Ég skráði
mig í Margmiðlunarskólann árið
2009. Það var rétt eftir hrun og ég
vissi ekki alveg hvað mig langaði
að gera, en þarna kynnist ég heimi
tæknibrellna.“ Elfar segir að áður
en hann fór í Margmiðlunarskól
inn hafi áhuginn á kvikmyndum
ekki verið meiri en hjá næsta
manni.
Örlögin réðu starfsvalinu
Eftir að hann kynntist þessum
heimi fór hann að sjá kvikmyndir
í öðru ljósi og möguleikinn á
að vinna sjálfur í kvikmyndum
opnaðist. Hann telur reyndar að
örlögin hafi ráðið því að hann valdi
þetta starf. „Ég er umkringdur
kvikmyndafólki. Konan mín er
kvikmyndagerðarmaður, allir
mínir bestu vinir hafa endað í
kvikmyndabransanum, þannig
að mér líður eins og mér hafi verið
ætlað að fara í þessa átt.“
Næst fór Elfar út til Svíþjóðar í
Campus i12 háskólann í Jönköping
og sérhæfði sig í sínu starfi. Elfar
segir að flestir samnemendur hans
hafi farið beint í bransann eftir
skóla eða jafnvel fyrr. Hins vegar
eru sífellt fleiri í dag sem læra allt í
gegnum internetið. „Það eru rosa
lega margir sem sækja sér þekk
ingu á netinu og ótrúlega mikið
af efni þar sem kennir manni
undirstöðuatriðin. Ef maður hefur
tímann og áhugann þá er hægt að
læra þetta allt á netinu.“ Sjálfur
notar Elfar netið óspart til að upp
færa og auka við eigin þekkingu.
„Ég nýti internetið á hverjum degi
þegar kemur að því að leysa vanda
mál sem ég stend frammi fyrir.
Það er klárlega ómissandi þáttur í
vinnunni.“
Everest mótaði hann
Eftir námið hélt hann í starfsnám
hjá sænska fyrirtækinu Filmgate.
Þar vann hann fyrst og fremst
við sænskar kvikmyndir en líka
í breskri framleiðslu á myndinni
Diana sem fjallar um Díönu prins
essu. Eftir að hafa unnið hjá Film
gate í eitt og hálft ár ákvað Elfar að
tími væri kominn til að flytja heim.
„Ég byrja að vinna hjá RVX Studios
sem sá um tæknibrellurnar fyrir
Everest og Ófærð 1.“ Elfar vann
hjá RVX í tvö ár og segir að mest
allan tímann hafi hann unnið við
Everest. „Það var risastórt verkefni
fyrir okkur. Það mótaði mig mikið
sem kompara. Þetta er klárlega eitt
erfiðasta og lengsta verkefni sem ég
hef tekið þátt í.“
Vinnan við Everest tók eitt og
hálft ár. Elfar segir að vinnan hafi
meðal annars falist í heimilda
vinnu til að kynna sér aðstæðurnar
á toppi Everest. „Við fengum til
okkar Íslending sem fór á Ever
est, til að vita hvernig væri að vera
þarna. Það hjálpaði okkur að búa
til kuldann og aðstæðurnar. Það
var gaman að fá alvöru innsæi.“ Þó
að námið hafi verið mikilvægt upp
á að læra reglurnar og aðferðirnar
segist Elfar læra best af reynslunni
sjálfri. „Maður lærir rosalega hratt
á að gera hlutina og með því að
vera í kringum fólk sem hefur
unnið við þetta í mörg ár.“
Alien Covenant og
Mary Poppins tóku við
Eftir að Elfar lauk vinnu sinni við
Everest og Ófærð 1 var lítið að gera
heima á Íslandi. „Ég tók þá ákvörð
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
un að leita út fyrir landsteinana og
sótti um alls staðar í heiminum.“
Að lokum leist honum best á að
fara til Kanada þar sem hann bjó að
tengslum í Framestorestúdíóinu,
einu stærsta tæknibrellufyrir
tæki heims. „Tæknibrellugeirinn í
Kanada er orðinn risastór.“ Þar er
vænlegt fyrir slík fyrirtæki að eiga
aðsetur vegna ýmissa skattaíviln
ana en mörg stærstu fyrirtækin í
þessum bransa eru búin að opna
stúdíó þar. Fyrir Framestore vann
Elfar meðal annars við gerð Alien
Covenant, Blade Runner 2049, Thor
Ragnarök, Mowgli og Mary Popp
ins Returns áður en hann flutti
aftur heim til Íslands.
Hann segir að það sé skemmti
legast að vinna við myndir þar sem
tilgangur tæknibrellna sé að hjálpa
framvindu sögunnar en ekki ein
ungis að sýna flottar tæknibrellur.
„Mér finnst langskemmtilegast að
vinna í brellum sem sjást ekki.“
Elfar segir að það séu alls konar
tæknibrellur notaðar í til dæmis
íslenskum kvikmyndum sem
áhorfendur taka ekki eftir. „Mér
finnst meira spennandi að vinna í
þessum földu brellum sem hjálpa
leikstjóranum og kvikmynda
gerðarfólkinu að segja söguna. Í
sumum myndum gleymist að segja
söguna og allt snýst um að gera
flottustu brellurnar.“
Færri brellur þurfa ekki að
þýða minni gæði kvikmyndar
Í Blade Runner 2049 er notast við
mikið af tæknibrellum en þær
yfirtaka þó ekki söguþráðinn að
sögn Elfars. Myndin hlaut Óskars
verðlaun fyrir bæði tæknibrellur
og kvikmyndun. „Blade Runner
er örugglega fallegasta myndin
sem ég hef unnið í. Rammarnir og
skotin í myndinni eru ótrúlega
falleg. Það er töluvert auðveldara
að búa til f lottar tæknibrellur
fyrir myndir sem eru gerðar vel
frá upphafi, en að reyna að bjarga
einhverjum myndum sem er ekki
búið að setja jafn mikið púður í.“
Elfar fékk að vera hluti af fjöl
mennum hóp sem kom að gerð
Blade Runner og segir að vinnan
við myndina hafi verið einstaklega
skemmtileg.
Í dag er Elfar að vinna í því að
víkka eigin sjóndeildarhring og
auka færni sína á ýmsum sviðum
tæknibrellugeirans. Fyrst og
fremst er Elfar að vinna í smáum
verkefnum á borð við auglýsingar
og stuttmyndir. „Tæknibrellu
heimurinn hér á Íslandi er ekkert
voðalega stór. Ég var orðinn frekar
sérhæfður úti í Framestore, maður
verður það þegar svona margir
vinna með manni. En hér heima þá
er bransinn töluvert minni og mér
finnst það spennandi hugmynd að
fara að gera meira af öðru sjálfur.“
Elfar var með yfirumsjón með
tæknibrellum á setti myndarinnar
Hvítur, hvítur dagur sem er nýjasta
mynd Hlyns Pálmasonar. Myndin
var sýnd í maí á Critics’ Week,
einni af hliðardagskrám kvik
myndahátíðarinnar í Cannes, og
verður frumsýnd 6. september
á Íslandi. Elfar sá svo um tækni
brellurnar í nýrri stuttmynd Uglu
Hauksdóttur, Selshamnum, en
Ugla leikstýrði nokkrum þáttum
í Ófærð 2. „Einnig sá ég, ásamt
Braga Brynjarssyni, um brellurnar
í útskriftarmynd Erlends Sveins
sonar úr Columbia Uni versity í
New York. Sú mynd heitir Kanarí
og það er hægt að sjá hana á Vimeo.
Í dag er Elfar að leggja lokahönd
á tæknibrellur og litaleiðréttingu
í stuttmyndinni Island Living sem
Viktor Sigurjónsson leikstýrir og
Atli Óskar Fjalarsson framleiðir.
„Svo var ég að koma úr tökum
á annarri útskriftarmynd úr
Columbia University, leikstýrðri
af Brúsa Ólasyni. Þar var ég með
yfirumsjón með brellum á setti
og mun svo í framhaldinu sjá um
allar brellurnar í myndinni. Það er
greinilega nóg að gera hjá Elfari.
Elfar sér ekki fyrir sér að tækni
brelluheimurinn hér á landi
komist á sama stig og í til dæmis
Kanada eða Hollywood á næstu
árum, en hann er að stækka.
„Það er ekki mikill peningur
fyrir stórum brellum hér.“ Elfar
er þó ekki að gera lítið úr tækni
brellum í íslenskum kvikmyndum,
enda þurfa færri brellur af minni
stærðargráðu ekki að þýða að kvik
myndirnar séu minni að gæðum.
„En það verða kannski einhvern
tímann í framtíðinni fleiri mögu
leikar hér heima.“
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
0
9
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
F
-5
7
9
0
2
3
8
F
-5
6
5
4
2
3
8
F
-5
5
1
8
2
3
8
F
-5
3
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K