Fréttablaðið - 09.08.2019, Blaðsíða 25
Komnir til að sjá og sigra
Nicolas Pepe
Arsenal – 72 milljónir punda
Með of boðslegan hraða og augu sem bæði sjá hvernig á að búa til færi og
skora mörk. Framlína Arsenal er orðin ansi ógnvænleg. Pierre-Emerick
Aubameyang, Mesut Özil, Pepe og svo Alexandre Lacazette fremstur.
Verði varnarmönnum að góðu í allan vetur. Arsenal gæti gert góða hluti.
Sebastian Haller
West Ham – 45 milljónir punda
Á rúmum áratug hafa stuðningsmenn West Ham
þurft að horfa á 38 framherja leiða framlínuna. Haller
hefur margt til brunns að bera og trúlega verður hann
í búningi West Ham í langan tíma.
Rodri
Manchester City – 60 milljónir punda
Það er alltaf erfitt að bæta lið Manchester City. Pep Guardiola virðist þó
hafa fundið góðan mann til að leysa Fernandinho af hólmi. Allir hinir
stjórarnir hljóta að hrista hausinn því yfir hvernig í ósköpunum þeir eigi
að stoppa meistarana núna þegar þeir virðast aðeins hafa bætt í.
Christian Pulisic
Chelsea – 58 milljónir punda
Bandaríkjamaðurinn er jú eini nýi maðurinn hjá
Chelsea og því eru aðdáendur félagsins svolítið
spenntir að sjá guttann. Með Hudson-Odoi á meiðsla-
listanum er Pulisic að fá fullt af mínútum í byrjun.
Tanguy Ndombele
Tottenham – 55,5 milljónir punda
Tottenham keypti mann. Því ber að fagna. Góður á
boltanum en enn betri án bolta samkvæmt miðlum
ytra. Harður í horn að taka og er eiginlega akkúrat
maðurinn sem félagið þurfti. Góð viðbót við liðið.
Patrick Cutrone
Wolves – 16 milljónir punda
Alvöru framherji hjá Úlfunum. Það gæti orðið veisla.
Með Diogo Jota og Ruben Neves til að búa eitthvað til
fyrir guttann. Úlfarnir buðu opinn faðm og það er eitt-
hvað sem segir að þetta verði einstakt ástarsamband.
Dani Ceballos
Arsenal – Að láni
Vissulega bara að láni en Arsenal virðist hafa náð í
spikfeitan bita. Real Madrid hafði engan áhuga að selja
og vildi varla lána hann enda þegar orðinn stjarna í
heimalandinu. Hver veit. Kannski slær hann Özil út.
Wesley Moraes
Aston Villa – 22 milljónir punda
Moraes á merkilega sögu. Missti föður sinn aðeins 9
ára og varð sjálfur pabbi 15 ára. 17 mörk og 10 stoð-
sendingar á síðustu leiktíð, vissulega í Belgíu, en
frammistaða hans gæti ráðið úrslitum fyrir Villa.
Ensku liðin hafa verið dugleg sem
fyrr á leikmannamarkaðnum. Flest
lið, fyrir utan Newcastle auðvitað,
virka betri en í fyrra. Fréttablaðið tók
saman nokkra nýja sem gætu gert
góða hluti á komandi tímabili.
KYNNINGARBLAÐ 7 F Ö S T U DAG U R 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 ENSKI BOLTINN
0
9
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
F
-3
E
E
0
2
3
8
F
-3
D
A
4
2
3
8
F
-3
C
6
8
2
3
8
F
-3
B
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K