Fréttablaðið - 09.08.2019, Page 18
Falleg ströndin í Cinque Terre er ógleymanleg sjón.
Ítalía heillar Íslendinga sem aðra. Það eru margir mjög spennandi staðir á Ítalíu sem gaman er að
heimsækja. Einn þeirra er ítalska
rívíeran sem er að verða eftirsótt-
asti hluti Ítalíu, sérstaklega bæirnir
í Cinque Terre. Á austasta hluta
rívíerunnar er bærinn La Spezia
en þaðan sigla bátar og skip með
fólk sem vill sjá rívíeruna frá sjó og
jafnvel stoppa stutta stund í ein-
hverjum bænum. Fyrir um fimm-
tán árum var Cinque Terre með
öllum sínum fallegu litríku húsum,
allt frá Genova til Pisa, falin perla.
Stór forsíðumynd á frægu dagblaði
vakti þessa bæi af værum blundi og
ferðamönnum fjölgaði ört. Þá fór
einnig að bera á skemmtiferðaskip-
um sem nú sigla meðfram Cinque
Terre í Miðjarðarhafssiglingum.
Mikill fjöldi ferðamanna
Frá apríl og fram í október eru
bæirnir fullir af ferðamönnum sem
margir koma siglandi. Göturnar
í þessum litlu klettabæjum eru
svo þröngar að þar fara engir bílar
akandi. Ekki er tekið á móti fólki
með börn, fólki í hjólastólum eða
hjartveikum í þessar siglingar.
Bæirnir eru erfiðir yfirferðar og það
þarf að klífa kletta. Bæjaryfirvöld
hafa þurft að setja fjöldatakmark-
anir á ferðamenn á vissum tímum.
Allir veitingastaðir og barir eru
smekkfullir af fólki og margir segja
að friðurinn sé úti í litlu fallegu
þorpunum. Flestallir ferðamenn
eru dagsgestir sem stoppa stutt,
koma með lest sem er yfirleitt
troðin. Ferðamönnum er bent á að
gæta sín á vasaþjófum í lestinni,
sérstaklega börnunum sem gerð
eru út í þeim tilgangi að ræna gesti.
La Spezia er sá bær þar sem
skemmtiferðaskipin stoppa. Frá La
Spezia fer lestin til litlu bæjanna.
Áform eru um að bæta aðstöðuna
fyrir skemmtiferðaskipin til að
hægt sé að taka á móti fleiri ferða-
mönnum. Engu að síður vilja bæjar-
yfirvöld í Cinque Terre fækka ferða-
mönnum úr 2,5 milljónum gesta
í 1,5 milljónir. Óljóst er hvernig
það á að takast. Ein uppástungan
er dýr aðgöngumiði að bæjunum.
Einnig hefur verið talað um app
sem virkar eins og einhvers konar
umferðarljós, það lætur vita í hvaða
þorpi fæstir eru. Rautt ljós merkir
að bærinn sé lokaður ferðamönn-
um en grænt að það sé allt í góðu
að koma í heimsókn. Þá er einnig
rætt um að setja upp miðasölu fyrir
fram. Aðeins sé hægt að koma í
heimsókn hafi fólk í fórum sínum
miða sem það hafi áður keypt. Það
gæti hins vegar verið erfitt að fram-
kvæma þar sem margir gestir koma
með skipum og stoppa stutt.
Einstök náttúruperla
Cinque Terre er sögð einstök nátt-
úruperla, falleg og sjarmerandi.
Margir segja ógleymanlegt að
sigla með ströndinni og stoppa
einhverja stund í bæjunum en
aðrir vilja taka lestina. Lestar-
ferð frá Monterosso til Vernazza
er ægifögur, ekið er um vínakra
sem liggja utan í klettaveggnum.
Útsýnið frá Vernazza er ógleyman-
legt. Það eru 550 tröppur upp í
turn á hæðinni, erfið leið en þegar
upp er komið er útsýnið sann-
kallað ævintýri á að líta. Munið
eftir góðum gönguskóm.
Vilji gestir fá sér að borða á
ævintýralega fallegum stað er
mælt með Porto Roca hótelinu í
Monterosso. Þaðan er eitt falleg-
asta útsýni í Evrópu, að því er The
Economist hefur skrifað. Hótelið
liggur hátt í klettavegg og skagar út
í Miðjarðarhafið. Nauðsynlegt er
að bóka borð fyrir fram.
Rólegri staðir
Vilji fólk sjá sjarmerandi litla
bæi við ítölsku ströndina án þess
að vera í ferðamannaþrönginni
gæti verið sniðugt að heimsækja
Porto venere sem er suður af
Cinque Terre bæjunum. Bærinn
er ekki ósvipaður þeim en engin
járnbrautarlest fer þar um. Sestri
Levante er lítill svefnbær mitt
á milli Genova og Cinque Terre
sem býður upp á mjög ítalskt og
skemmtilegt umhverfi sem einnig
er áhugavert að heimsækja.
Þar sem húsin
hanga í klettunum
Cinque Terre ströndin liggur eftir ítölsku rívíerunni og
samanstendur af fimm bæjum, Monterosso al Mare,
Vernazza, Corniglia, Manarola og Riomaggiore. Bæirnir
og umhverfi þeirra eru á heimsminjaskrá UNESCO.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Litrík og falleg höfnin í Vernazza í Cinque Terre.
* Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl.
Nýtt bílaplan
á Krókhálsi 9
benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 10-14
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
Rað.nr. 445736
TOYOTA RAV4 GX PLUS
Nýskráður: 2015 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 154.000 km.
Verð: 2.490.000 kr.
NISSAN X-TRAIL ACENTA PLUS
Nýskráður: 2017 / Dísel
Beinskiptur / Ekinn: 106.000 km.
Verð: 3.190.000 kr.
KIA CEED
Nýskráður: 2016 / Bensín
Beinskiptur / Ekinn: 67.000 km.
Verð: 1.690.000 kr.
HONDA CR-V ELEGANCE
Nýskráður: 2011 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 152.000 km.
Verð: 1.890.000 kr.
SKODA OCTAVIA
Nýskráður: 2013 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 150.000 km.
Verð: 1.590.000 kr.
SUZUKI SPLASH
Nýskráður: 2012 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 98.000 km.
Verð: 590.000 kr.
Rað.nr. 445727
Rað.nr. 445715 Rað.nr. 150498
Rað.nr. 445729 Rað.nr. 150497
Rað.nr. 445622 Rað.nr. 740302
Enn betra úrval
frábær kjör!
4X
4
4X
4
Verð: 3.390.000 kr.
MITSUBISHI OUTLANDER
Nýskráður: 2017 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 65.000 km.
4X
4
HYUNDAI SANTA FE
Nýskráður: 2015 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 42.000 km.
Verð: 4.890.000 kr.
4X
4
4X
4
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
0
9
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
F
-6
B
5
0
2
3
8
F
-6
A
1
4
2
3
8
F
-6
8
D
8
2
3
8
F
-6
7
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K