Fréttablaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 17
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG Stokkhólmi – Í fyrri viku birti ég bréf Margrétar Magnúsdóttur á Sæbóli í Aðalvík til Vilmundar
Jónssonar landlæknis 1945. Hann
svaraði bréfinu um hæl.
,,Kæra frú Margrét,
Ég bæði klökknaði og mér hitnaði
um hjartaræturnar við að lesa bréfið
yðar … Allt virðist hafa verið gert,
sem hugsanlegt er að gera, til þess að
laða menn í þessi afskekktu læknis-
embætti, sem nú eru launuð á borð
við hæstlaunuðu embætti í landinu …
Engin leið er að f lytja lækna fremur
en aðra þegna þjóðfélagsins nauðuga
á landshorn, sem þeir vilja ekki vera
á, enda tvísýnt, þó að upp væri tekið,
hvernig nýttist þjónusta slíkra band-
ingja. … Hina sömu sögu er að segja
af öllum stéttum. Þið munuð vera
prestlaus, og svo eru f leiri. Og f lutt-
ust ekki 84 burtu úr Sléttuhreppi
af 420 íbúum, þ.e. fimmta hvert
mannsbarn, árið 1943? … Víst er ekki
von til, að læknar skeri sig einir úr
um þennan f lótta frá dreif býlinu og
séu óðfúsir að f lytjast úr fjarlægð til
þeirra staða, þar sem íbúarnir sjálfir,
rótfastir að langfeðgatali, vilja með
engu móti una. Börn dreif býlisins
sjálfs eru hér sízt öðrum fúsari til
þjónustunnar. Verst allra taka piltar,
aldir upp í sveit, undir að gerast
héraðslæknar í sveitahéruðum, en
bezt Reykjavíkurpiltar, enda bjarga
þeir helzt dreif býlinu í þessu efni,
að svo miklu leyti sem því er bjargað
– og Reykjavíkur stúlkur þeim við
hlið. Margt af þessu aðkomufólki
dugir mjög vel og tekur með furðu-
legu jafnaðargeði því, sem stundum
lítur út fyrir, að til sé ætlazt: að það
sitji eitt eftir, þegar allt heimafólkið
er farið.“
Ef til vill byggjast svo sveitirnar aftur
„Ég geri ráð fyrir, að sú bylting standi
fyrir dyrum – fyrst og fremst innra
með fólkinu sjálfu – sem gengur mjög
nærri tilverumöguleikum hinna
dreifðustu byggða, unz þar sitja ekki
aðrir en þeir, sem kunna svo að meta
kosti þeirra, að þeir sætti sig við þá
vankanta, sem fylgja, þar á meðal að
læknisþjónusta standi þar ekki til
boða til neinna líka við það, sem á sér
stað í þéttbýli. … Metin í meðvitund
fólks verða aldrei jöfnuð með því að
f lytja kaupstaðarlíf upp í sveit, sem er
jafnóframkvæmanlegt sem að f lytja
sveitalíf í kaupstaði … Sá, sem gerir
skilyrðislausar kröfur um alla kosti
og kynjar kaupstaðarlífs, fær þeim
kröfum aldrei fullnægt annars staðar
en í kaupstað og á þar að vera. Sé öllu
sveitafólki þannig innanbrjósts – þá
í kaupstað með það sem allra fyrst.
Ef til vill byggjast svo sveitirnar aftur
úr kaupstöðunum af fólki, sem áttað
hefur sig á, að þar er ekki heldur allt
fengið.
Þessar bollaleggingar mínar
koma vissulega ómaklega niður, þar
sem þér eruð, sem svo einlæglega
viljið vera kyrr á yðar stað. … enginn
meðaltalsreikningur nægir til þess í
hverju einstöku tilfelli að sætta mann
í dreif býli við, að aðstandandi hans
missi heilsu sína … En … svo mjög
aukin heilbrigðis- og slysahætta
fylgir þéttbýlinu, að vafasamt er, að
hin auðsóttari og margbreytilegri
læknishjálp þar endist til að jafna
muninn. … þrátt fyrir alla erfiðleika
barnsfæðandi kvenna í sveitum
við að ná til ljósmæðra og lækna,
hlekkist ekki f leiri konum í sveitum
en í kaupstöðum á við barnsburð, og
í sveitum fæðast færri börn andvana.
… Hafið þér gert yður ljóst, að í raun
og veru alið þér börnin yðar upp við
meira heilbrigðisöryggi á Sæbóli –
og þó að læknislaust sé á Hesteyri
– heldur en þér ættuð heima hérna
á Laugaveginum? Jafnvel allt lækna-
kraðakið í kaupstöðunum er oft síður
en svo til öryggis heilsu manna. Hið
sífellda kvabb í tíma og ótíma, lang-
oftast af hégómlegasta tilefni, svæfir
læknana á verðinum, að ég ekki
tali um það, sem mjög er tíðkað, að
hlaupa milli fjölda lækna, unz enginn
veit, hver ábyrgðina ber. Leiðir þetta
til margvíslegra mistaka og van-
rækslu. Er ekki laust við, að að mér
hvarf li stundum, að hollara væri fyrir
báða aðilja, læknana og sjúklinga
þeirra, að hafa á milli sín hæfilega
breiða vík eða mátulega háan háls
yfir að sækja.“
Móðurauga
„Ég vík nú að lokum að kvillanum í
börnum yðar. Mér virðist einsýnt,
að þau hafi fengið snert af mænu-
sótt, og megið þér og þau hrósa
happi yfir, að þau hafa komist út úr
þeim hreinsunareldi örkumlalaus.
Þau hafa nú fengið náttúrlega bólu-
setningu gegn þessari ægilegu veiki
og þurfa ekki að óttast hana framar.
Einskis hafið þér farið mis við að ná
ekki til læknis í þessu tilfelli, því að
hér standa allir læknar uppi jafnráða-
lausir sem þér sjálf. Hitt skil ég, og
þess get ég nærri, hver áhyggjuraun
hefur verið fyrir yður að horfa upp
á þetta og hafa engan yður fróðari
til að ráðgast við og leita trausts hjá.
Ég vona, að drengurinn yðar, sem
meiddi sig á fæti, sé orðinn heill. Fót-
brot, sem móðurauga og góð greind
fer ekki nærri um, er varla hættulegt
beinbrot.
Þér fyrirgefið hve bréfið er fátæk-
legt og nær skammt til að létta af yður
kvíða og áhyggjum. Þó er það skrifað
af góðum huga og innilegri hlutdeild í
kjörum yðar.
Yðar með einlægri vinsemd og
kærum kveðjum
Vilm. Jónsson.“
Svar Vilmundar
icewear.is Opið til 21:00 alla dagaLAUGAVEGI 91
ÚTSALA
FATNAÐUR SKÓR
OG FYLGIHLUTIR
30-50%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM
Nike skór frá kr 4.995.-
Helly Hansen parka frá k
r 17.495.-
Icewear Dúnjakkar frá kr 8.
495.-
Nike úlpur frá kr 14.745.
-
ASOLO gönguskór frá kr 9.9
95.-
Adidas hettupeysur frá kr 4.
995.-
Börn dreifbýlisins sjálfs
eru hér sízt öðrum fúsari til
þjónustunnar. Verst allra taka
piltar, aldir upp í sveit, undir
að gerast héraðslæknar í sveita-
héruðum, en bezt Reykjavíkur-
piltar, enda bjarga þeir helzt
dreifbýlinu í þessu efni, að svo
miklu leyti sem því er bjargað
– og Reykjavíkur stúlkur þeim
við hlið.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 1 5 . Á G Ú S T 2 0 1 9
1
5
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
6
-A
D
0
C
2
3
9
6
-A
B
D
0
2
3
9
6
-A
A
9
4
2
3
9
6
-A
9
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K