Fréttablaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 6
Fólk þarf að passa
sig að vera alls ekki
að kaupa Bitcoin í gegnum
auglýsingar á Facebook.
Brynhildur Péturs-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Neytendasam-
takanna
BRETLAND Sá meirihluti þingmanna
á breska þinginu sem er andvígur
samningslausri útgöngu úr Evr-
ópusambandinu á í „hörmulegu
samstarfi“ með Evrópusamband-
inu með það að markmiði að koma
í veg fyrir Brexit. Þetta sagði Boris
Johnson, forsætisráðherra Breta, í
gær.
Breska þingið hefur oftsinnis
komist að samkomulagi um að
samningslaus útganga sé einfald-
lega óboðleg. Nú í vikunni var
ákveðið að skoskur dómstóll taki
fyrir mál um sjötíu þingmanna
sem höfðað var til að fá úr því skorið
hvort Johnson gæti slitið þingi til
þess að ná slíkri útgöngu í gegn.
Vonast þingmennirnir til að svo sé
ekki.
Ýmislegt bendir til þess að
Johnson muni reyna að koma Bret-
landi út úr Evrópusambandinu án
samnings. Í fyrsta lagi er Johnson
staðráðinn í því að halda í settan
útgöngudag, 31. október, og ekki
fresta honum líkt og áður hefur
verið gert vegna samningsleysis. Í
öðru lagi er ólíklegt að samningur
muni liggja fyrir í októberlok.
Breska þingið hefur í þrígang hafn-
að samningi ríkisstjórnar Theresu
May og Evrópusambandstoppar
segja ómögulegt að semja upp á
nýtt. Þingið er hins vegar, eins og
áður sagði, andvígt samningslausri
útgöngu og því myndi Johnson ef til
vill ekki eiga marga kosti í stöðunni.
„Þetta er hörmulegt samstarf, ef
ég má komast þannig að orði, á milli
fólks sem heldur að það geti komið í
veg fyrir Brexit á þingi og evrópskra
vina okkar. Evrópsku vinir okkar
haggast ekki í afstöðu sinni um
að gera engar málamiðlanir. Þeir
vilja ekki gera málamiðlanir um
útgöngusamning þótt honum hafi
verið hafnað í þrígang. Þeir vilja
halda í hvern staf, hverja kommu,
í samningnum af því að þeir halda
að þingið gæti enn komið í veg fyrir
Brexit,“ sagði forsætisráðherrann í
gær.
Þá sagði Johnson að því lengur
sem ástandið helst óbreytt, þeim
mun líklegri verði samnings-
laus útganga. „Það vil ég ekki. Við
stefnum ekki að slíku en við þurfum
á málamiðlunum að halda. Þeim
mun meira sem Evrópa heldur að
Brexit verði stoppað á þingi því
harðari verða þeir í afstöðu sinni.“
Breska blaðið The Guardian tók
fram í umfjöllun sinni að Johnson
hefði sjálfur lýst því yfir að hann
muni ekki setjast að borðinu fyrr en
Evrópusambandsríkin samþykkja
opinberlega að falla frá umdeildu
ákvæði um varúðarráðstöfun fyrir
fyrirkomulag landamæra Írlands og
Norður-Írlands. Ráðstöfunin felur í
sér að Norður-Írar muni falla undir
stærri hluta Evrópuregluverksins en
aðrir Bretar til að forðast sýnilega
landamæragæslu. Þykir Johnson
og öðrum þetta ekki í lagi.
Philip Hammond, fjármálaráð-
herra May-stjórnarinnar, sagði
á Twitter í gær að samningslaus
útganga væri án alls samhengis við
„bjartsýn loforð“ útgöngusinna í
kosningabaráttunni. Fyrir henni
væri ekkert umboð. Hann sagðist
hins vegar vilja klára útgöngumálið.
Svaraði hann þar heimildarmanni
The Times úr forsætisráðuneyti
Johnsons sem sagði Hammond
reyna að koma í veg fyrir Brexit.
thorgnyr@frettabladid.is
Johnson segir þingið
og ESB tálma útgöngu
Forsætisráðherrann harmar meint samstarf andstæðinga samningslausrar út-
göngu á þingi og Evrópusambandsins um að stöðva Brexit. Fjármálaráðherra
Theresu May er sakaður um að reyna að skemma fyrir í útgöngumálinu.
Boris Johnson heimsótti karlafangelsi í Leeds í vikunni og drakk þar úr bolla merktum fangelsinu. NORDICPHOTOS/AFP
Þetta er hörmulegt
samstarf, ef ég má
komast þannig að orði.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands
* Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl.
Nýtt bílaplan
á Krókhálsi 9
benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 10-14
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
OPEL CORSA E.
Nýskráður: 2015 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 125.000 km.
Verð: 1.290.000 kr.
Tilboð: 890.000 kr.
Rað.nr. 150333
OPEL AMPERA
Nýskráður: 2012 / Rafmagn
Sjálfskiptur / Ekinn: 40.000 km.
Verð: 2.490.000 kr.
SKODA OCTAVIA
Nýskráður: 2013 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 150.000 km.
Verð: 1.590.000 kr.
CHEVROLET CAPTIVA
Nýskráður: 2013 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 98.000 km.
Verð: 2.490.000 kr.
VW GOLF TRENDLINE
Nýskráður: 2012 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 99.000 km.
Verð: 1.290.000 kr.
SSANGYONG TIVOLI DLX
Nýskráður: 2018 / Dísel
Beinskiptur / Ekinn:20.000 km.
Verð: 2.690.000 kr.
FORD MONDEO
Nýskráður: 2011 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 116.000 km.
Verð: 1.450.000 kr.
Tilboð: 1.250.000 kr.
Rað.nr. 445530Rað.nr. 445622
Rað.nr.445751
Rað.nr. 150448 Rað.nr. 445765
Rað.nr. 445498
Enn betra úrval
frábær kjör!
-4
00
.0
00
-2
00
.0
00
4X
4
4X
4
CHEVROLET ORLANDO
Nýskráður: 2017 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 38.000 km.
Verð: 3.290.000 kr.
Tilboð: 2.790.000 kr.
Rað.nr. 340241 -5
00
.0
00
NEYTENDUR Falsfréttir sem kenndar
eru við „Viðskiptabaðið“ eru aftur
komnar í umferð á Facebook-síðum
Íslendinga. Um er að ræða svindl þar
sem settar eru fram ævintýralegar
fullyrðingar í nafni þekktra Íslend-
inga og fólk svo hvatt til að skrá sig til
að þéna háar upphæðir í viðskiptum
með rafmyntina Bitcoin.
Fyrirtækið sem hefur samband
við fólk sem skráir sig heitir Trade
Capital og er starfrækt í Genf í Sviss.
Sá sem svarar í símann í Sviss vildi
ekki gefa upp tengsl fyrirtækisins
við falsfréttirnar sem deilt er á
íslensku eða ræða hvaða þjónustu
fyrirtækið veitir.
Vefsíðan sem hýsir „Viðskiptabað-
ið“ er skráð í eigu Lozareo Group sem
er til húsa í Edinborg, nánar tiltekið
sömu byggingu og stórverslunin Pri-
mark, ásamt meira en 1.600 öðrum
fyrirtækjum. Eigandi Lozareo Group
er Úsbeki að nafni Zafar Mavlyanov.
„Fólk þarf að passa sig að vera
alls ekki að kaupa Bitcoin í gegnum
auglýsingar á Facebook,“ segir Bryn-
hildur Pétursdóttir, framkvæmda-
stjóri Neytendasamtakanna. „Það er
svo mikið drasl á sveimi á Facebook
og fólk þarf alltaf að vera vakandi
þegar það er beðið um að gefa per-
sónuupplýsingar og sérstaklega
kortaupplýsingar. Það er alls engin
gæðatrygging að fyrirtæki auglýsi á
Facebook.“
Brynhildur segir að þessar aug-
lýsingar, sem hún sjálf rekst á reglu-
lega á Facebook, sýni að fyrirtækið
sé ekki að standa sig í að koma í
veg fyrir svindl og falsfréttir. „Það
virðist ekki skipta neinu máli þó
maður tilkynni svona ruglfréttir
ítrekað. Facebook virðist ekki
ráða við að stöðva svona lagað og
reyndar hefur fyrirtækið beinlínis
dregið lappirnar í mörgum tilfellum
eins og dæmin sanna. Fólk þarf að
vera sérstaklega gagnrýnið þegar
það verslar á netinu og láta allt eiga
sig sem lítur út fyrir að vera of gott
til að vera satt.“ – ab
Falsfréttir aftur komnar á kreik
1 5 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
5
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
6
-A
8
1
C
2
3
9
6
-A
6
E
0
2
3
9
6
-A
5
A
4
2
3
9
6
-A
4
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K