Fréttablaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Þorbjargar
Gunnlaugsdóttur
BAKÞANKAR
990
KR/KG
1.990
Verð áður:
14. SEPTEMBER Í ELDBORG
FÁIR MIÐAREFTIR!EKKI ER HÆGT AÐ BÆTAVIÐ FLEIRI TÓNLEIKUM
MIÐASALA Á
HARPA.IS/DIVUR
Fótsporið okkar er heitt umræðuefni, sem sýnir okkur að tungumálið dansar
í takt við viðhorfin. Flestir skilja
að fótsporið er mikilvægt. Og allir
vilja kolefnisjafna. Við vitum að
við eigum að minnka kjötneyslu
og matarsóun, hjóla frekar en að
keyra allra okkar ferða, f ljúga
minna og viljum síður að helgar-
steikin ferðist yfir hálfan hnöttinn
til að geta lent á matarborðinu
okkar. Við viljum boðlegar
aðstæður dýra í matvælaiðnaði
og borgum gjarnan meira fyrir
egg ef hænan var hamingjusöm
og fyrir lífrænt ræktað grænmeti.
Við viljum meðvitaða matseld og
berum matvörur heim í öðru en
plastpoka. Blessunarlega erum við
meðvituð um mikilvægið.
Niðurstöður ASÍ um brot á
vinnumarkaði segja líka sögu
af fótspori. Það er ekki bara
íslenskur veruleiki. Við vitum
að grunsamlega ódýr fatnaður er
að minnsta kosti líklegur til að
vera framleiddur af fólki sem ekki
alltaf nýtur réttinda og boðlegra
kjara. Og viljum við ekki að líf-
ræni bananinn sé ræktaður af fólki
sem fékk greidd sanngjörn laun?
Eða að helgin á hótelinu sé ekki
niðurgreidd af fólkinu sem þrífur
herbergin?
Nokkrar opinberar stofnanir
og fyrirtæki kolefnisjafna núna
starfsemi sína og geta líka sem stór-
kaupendur vöru og þjónustu haft
mikil áhrif með því að gera kröfur.
Norsk heilbrigðisyfirvöld hafa til
dæmis farið í aðgerðir, meðvituð
um sitt fótspor, og hafa sem kaup-
endur vöru haft áhrif á aðbúnað
launafólks erlendis. Við hin getum
svo kannski reynt að skoða fleiri
þætti í okkar daglega lífi og bætt
fótsporum á listann. Við liggjum
réttilega andvaka yfir plastinu sem
ógnar tilveru okkar en ættum líka
að vilja kaupa bómullarpoka sem
er framleiddur af fólki sem fékk
greidd full laun fyrir vinnu sína.
Fótsporin okkar
HEIMILIS-
KOKKURINN
ELSKAR
Þarf aðeins að hita!
1
5
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
6
-7
B
A
C
2
3
9
6
-7
A
7
0
2
3
9
6
-7
9
3
4
2
3
9
6
-7
7
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K