Fréttir - Eyjafréttir - 10.07.2013, Side 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. júlí 2013
°
°
„Harpan hvað?“
:: Stórkostlegir tónleikar Fjallabræðra og Lúðrasveitar Vestmannaeyja í Íþróttamiðstöðinni
:: Rúmlega 1.600 manns fylltu stóra salinn og var uppselt á tónleikana
Þegar farið var á tónleika Fjalla -
bræðra og Lúðrasveitar Vest-
mannaeyja síðastliðið föstu -
dags kvöld, var nokkurn veginn
vitað að hverju var gengið. Tón-
leikar sveitanna tveggja hafa
undantekningarlaust vakið verð -
skuldaða hrifningu, hvort sem er
í sal Háskólabíó eða í Herjólfs-
dal á þjóðhátíð. Alltaf er upplif -
unin sterk og tónlistin afburða -
vel flutt. Á því var engin undan-
tekning á föstudaginn, nema
síður sé og ótrúlegt hvað þeim
Halldóri Gunnari Pálssyni stjórn -
anda Fjallabræðra og Jarli Sig-
urgeirssyni, stjórnanda Lúðra -
sveitar Vestmannaeyja tekst að
gera nýjustu tónleikana aðeins
betri en þá síðustu. Og flutning -
ur inn verður bara þéttari og
flott ari með hverjum tónleikum.
Það sem kannski kom mest á óvart
á tónleikunum var húsnæðið. Tón-
leikarnir voru haldnir í nýja sal
Íþróttamiðstöðvarinnar, eins lítið
heillandi og það hljómar en tónlist -
armönnunum og hjálparkokkum
þeirra tókst hið ómögulega, að gera
salinn að tónleikasal, og það meira
að segja nokkuð góðum tónleikasal.
„Harpan hvað?“ heyrði maður
áhorf endur spyrja í lok tónleikanna
og þótt íþróttasalurinn verði varla
borinn saman við sérhannaðan tón-
leikasal Hörpunnar, þá sýndu liðs-
menn Fjallabræðra og Lúðrasveit -
ar innar að það er hægt að halda
stórtónleika innandyra í Vestmanna -
eyjum með yfir eitt þúsund áhorf -
endum. Búið var að koma fyrir
drapperingum hringinn í kringum
salinn, ljósashow tónleikanna var
eins og best verður á kosið og
hljóðið skilaði sér vel til áhorfenda,
hvar sem setið var í salnum. Áhorf -
endatölur eru eitthvað á reiki en lík-
lega voru eitthvað í kringum 1.600
manns á tónleikunum.
Nokkrir einsöngvarar komu fram
með sveitunum tveimur, bæði
söngvarar úr röðum Fjallabræðra en
auk þess komu þau fram Sunna
Guðlaugsdóttir, sem leysti Ragn-
hildi Gísladóttur af hólmi en Ragn-
hildur komst ekki vegna veikinda.
Guðmundur Davíðsson, Eyjapeyi,
söng lagið Ég veit þú kemur, með
Sunnu, Sverrir Bergmann flutti tvö
lög, m.a. þjóðhátíðarlagið 2012, Þar
sem hjartað slær, og ætlaði þakið að
rifna af húsinu við og eftir flutning -
inn en áhorfendur risu úr sætum
þegar lagið var flutt. En að öðrum
ólöstuðum var það Páll Óskar
Hjálmtýsson sem stóð upp úr af
einsöngvurunum. Páll Óskar flutti
tvö lög, Þú komst við hjartað í mér
og Það geta ekki allir verið gordjöss
og stemmningin í salnum fór upp í
hæstu hæðir.
Það þarf margt að ganga upp til að
svona tónleikar standi undir sér.
Fjölmörg fyrirtæki styrktu tón-
leikana, tónlistarmennirnir og að -
stoðarmenn þeirra sáu sjálfir um að
koma upp aðstöðunni og gerðu það
óaðfinnanlega og svo þarf fullt af
áhorfendum. Ekki veit ég hvort
færri hafi komist að en vildu en
uppselt var á tónleikana þannig að
fleiri stólum var bætt við eftir því
sem fleiri komu. En þegar upp er
staðið voru tónleikarnir afskaplega
vel heppnaðir, stóðu vel undir
væntingum sem voru þó talsverðar
fyrir tónleikana.
Og það besta er, við Eyjamenn
eigum nú hinn ágætasta tónleikasal.
Snillingar. Tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja, Fjallabræðra og gesta þeirra var hreint út sagt algjör
snilld. Hér er Páll Óskar á sviðinu en þarna má líka sjá í bakið á Jarli Sigurgeirssyni, stjórnanda LV og
Halldór Gunnar Pálsson, stjórnanda Fjallabræðra.
Um eitt hundrað tónlistarmenn
komu fram á tónleikum
LúðrasveitarVestmannaeyja
og Fjallabræðra og voru þeir allir
á sviðinu í einu. Umgjörð tón-
leikanna var stórglæsileg, tjöld
römmuði inn salinn, hljóðið var
gott og lýsingin eins og best
gerist.
Alveg eins gott að prufa þetta sjálf
:: Símonía Helgadóttir búin að vinna í Toppnum í fjórtán ár og tekur nú við rekstrinum
Símonía Helgadóttir og Friðberg
Egill Sigurðsson keyptu á dögun -
um rekstur veitingastaðarins
Toppsins af Karli Helgasyni og
Jónu Guðmundsdóttur. Kalli og
Jóna höfðu rekið staðinn í 14 ár
en Símonía hefur starfað hjá
Kalla, bróður sínum allan þann
tíma.
Eyjafréttir höfðu samband við Sím -
oníu, Níu eins og hún er kölluð, og
var hún mjög bjartsýn á framhaldið.
Hvers vegna ákvaðstu að fara út í
rekstur?
„Ég hugsaði með mér, af hverju
ekki. Ég hafði ekkert annað að gera,
hef unnið hér síðastliðin fjórtán ár,
ég vildi frekar prufa að taka við enda
kannski atvinnulaus ef einhver annar
hefði tekið við. Það er alveg eins gott
að prufa þetta sjálf, ég veit alveg
hvað ég er að gera,“ sagði Nía.
Mikil binding
„Þetta er hellings binding en á móti
kemur að ég ræð vinnutímanum
mínum. Ég er líka með frábært
starfsfólk og þá á allt að ganga upp.
Ég held alveg sama starfsfólkinu en
þarf líklega að bæta við með
haustinu. Kalli ætlar að taka þjóð -
hátíðina fyrir mig en ég stóð vaktina
á goslokum. Maður er að binda sig
að vera með opið þegar flestallir eru
í fríi en fær frí á öðrum dögum. Það
var ekki leiðinlegt að standa í lúg -
unni á goslokum og á þjóðhátíð,“
sagði Nía.
Viðskiptavinirnir mega ekki búast
við miklum breytingum, en Nía ætlar
að flikka aðeins upp á Topp inn. „Ég
ætla mér að gera staðinn aðeins betri,
fríkka hann og laga aðeins en ekkert
stórvægilegt. Það verða kannski smá
nýjungar með haustinu en tíminn
leiðir það í ljós,“.
Nú er harðnandi samkeppni í
veitingabransanum, hvernig líst þér
á þá samkeppni?
„Það er öll samkeppni af því góða.
Það hafa allir gott af samkeppni, þá
leggur maður harðar að sér,“ sagði
Nía að lokum.
JÚLÍUS G. INGASON
julius@eyjafrettir. is