Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 10.07.2013, Page 15

Fréttir - Eyjafréttir - 10.07.2013, Page 15
Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. júlí 2013 15 ° ° Þéttskipuð dagskrá um sögu mormóna :: Upphafið í Eyjum: Um 200 fluttu frá Vest- mannaeyjum til Utah :: Mormónasafnið í Sagnheimum endurbætt Laugardaginn 29. júní var þess minnst með veglegri dagskrá að 160 ár voru liðin frá því Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu eða Kirkja mormóna, eins jafnan er sagt, var stofnuð á Íslandi. Nánar tiltekið var kirkjan stofnuð í Herjólfsdal í Vest - mannaeyjum. Því var einkar vel til fundið að hefja dagskrána í Golfskálanum aðeins steinsnar frá mormónaminnisvarðanum og ljúka henni í Safnahúsinu með því að opna nýja og endur- bætta sýningu um sögu þeirra mormóna er fluttust til Utah á árunum 1855-1914. Samtals var um að ræða 400 manns og af þeim um helmingur héðan úr Eyjum. Fróðleg og skemmtileg erindi Dagskráin hófst með því að Kári Bjarnason, forstöðumaður Bóka - safns Vestmannaeyja, bauð við - stadda velkomna. Hann kynnti dagskrána framundan á meðan viðstaddir fengu sér súpu, en rúm- lega 100 manns frá meginlandinu og Utah var komið hingað sérstak- lega vegna dagsins. Að því loknu bað hann Elliða Vignisson, bæj - arstjóra, um að ávarpa samkomuna. Elliði hélt skemmtilega tölu, það var greinilegt að hann hafði kynnt sér vel sögu mormónanna, enda gríðarlega stór hluti af sögu Vest- mannaeyinga. Þá var röðin komin að dr. Fred Woods, prófessor við BYU háskólann í Utah. Fred kynnti verkefnið sem hann og Kári eru með, sem er rannsókn á afdrifum allra þeirra 400 er fóru utan. Í erindi Freds kom fram að hann og Kári hafa heimsótt hundruð afkomenda, en Kári fer að jafnaði tvisvar á ári til Utah, og safnað saman ógrynn - um heimilda sem vistuð verða á Skjalasafninu hér og við háskólann ytra. Sannarlega verðugt verkefni. Kári kynnti síðan afkomanda eins þeirra er ytra fóru, Richard L. Marin, en Ingimundur Jónsson var afi hans. Ingimundur þessi var frá Krossi í Landsveit en kvæntist Hildi Árnadóttur, föðursystur Árna sím - ritara og eignuðust þau fjölda barna í Utah. Það var áhugavert að hlýða á erindi hans og greinilegt hversu mikill áhugi er í Utah á rótunum. Jarl hljóp í skarðið Kári sagði að því miður hefði tón- listarfólkið, sem ætlaði að spila á dagskránni, ekki komist vegna vélarbilunar á leiðinni og því hefði hann ákveðið að gefa gestunum á dagskránni sýnishorn af því hvernig tónlistararfurinn hér hljómaði. Hann bað síðan Jarl Sigurgeirsson um að spila nokkur Eyjalög sem Jarl gerði með þeim glæsibrag sem allir þekkja. Guðrún Bjarkadóttir, dóttir Katrínar Gunnarsdóttur, barnabarns Árna Árnasonar símrit - ara, flutti lokatöluna. Foreldrar hans höfðu flutt utan, Árni Árnason eldri og Jóhanna Lárusdóttir. Þau sneru hins vegar við og komu alkomin hingað laust fyrir aldamótin 1900. Flutti Guðrún skörulegt erindi um verkefni sem hún og Kári eru að vinna að, en það snýst um að koma kirkjubókum í gagnagrunn. Kom vel fram í erindi hennar hversu miklar upplýsingar þar er að finna um einstaklingana sem hér lifðu, þar á meðal mormónana er síðan fluttust utan. Að loknum söng Kirkjukórs mormóna, sem var með í för, var haldið upp í rútu og farið í Safnahúsið, eða nánar tiltekið Byggðasafn, Sagnheima. Endurbætt sýning Þar flutti Kári stutta tölu og þakkaði viðstöddum fyrir daginn, en bað síðan Kim R. Wilson, stjórnarfor- mann samtakanna Mormon Historic Sites Foundation, um að klippa á borða og opna hina nýju og endur- bættu sýningu um sögu mormón - anna í Utah. Fram kom í máli Kára að Kim var lykilmaður í því að fjár- magna verkefni þeirra Freds og það var greinilegt í stuttri tölu sem Kim hélt að hann var stoltur yfir því að vera þátttakandi í verkefninu. Að lokum flutti Rónald Guðnason, forseti kirkjunnar, stutt blessunar - orð. Sannarlega skemmtilegur dagur um merkilegan þátt í sögu Vest - mannaeyja var að baki. Blaðamaður skoðaði að því búnu hina endur- bættu sýningu og varð stórhrifinn. Ástæða er til að hvetja alla sem unna sögu Vestmannaeyja að koma á Byggðasafnið, Sagnheima og njóta þessarar sýningar og annarra sem hér hafa verið settar upp. Þær sýna mikinn metnað. Klippt á borðann í Sagnheimum, Helga Hallbergsdóttir forstöðumaður Sagnheima, Kári, Kim Wilson, Elliði og Fred Woods. Bekkurinn var þétt setinn í Golfskálanum þegar þess var minnst að 160 ár voru liðin frá því Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu eða Kirkja mormóna, eins jafnan er sagt, var stofnuð á Íslandi. Miðvikudaginn 26. júní síðastliðinn fórum við Líknarkonur og færðum Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja gjafabréf fyrir gjöfum sem við höfum gefið Heilbrigðisstofnuninni sl. ár. Þar má nefna augn- og eyrna- og augnskoðunarveggsett, Súrefnis- mettunarmæli,hjartalínuritstæki, ýmis skurðstofuáhöld, fjögur stál- borð og eitt armborð á skiptistofu, ljós á skiptistofu. Alls eru þetta gjafir uppá 1.880.574.-kr. Frá vinstri: Eydís Ósk Sig- urðardóttir, hjúkrunarforstjóri, Edda Ólafsdóttir, Margrét Grím- laug Kristjánsdóttir, Ágústa Hulda Árnadóttir, allar frá Líkn og Gunnar Gunnarsson, forstjóri Heilbrigðistofnunar. Enn sami rausnar - skapurinn hjá Líknarkonum ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.