Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 2
Veður Norðaustan 8-13 um vestanvert landið í dag, annars hægari. Skúrir og hiti 4 til 12 stig, hlýjast sunnan- lands. SJÁ SÍÐU 26 Mörg þúsund orð Hefur þú prófað nýju kjúklgasteikurnar? NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOLT A Myndir geta sagt meira en þúsund orð en þessi frá þinginu í gær er ígildi hundraðþúsundmilljónskrilljón orða og segir allt sem segja þarf um þriðja orkupakkann. Svipurinn á Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Halldóru Mogensen og Jóni Steindóri Valdimarssyni lýsir undrun, furðu og þau virðast ekki vita hvort þau eigi að hlæja eða gráta. Willum Þór Þórsson er svo greinilega bugaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK STJÓRNMÁL Davíð Oddsson, fyrr- verandi forsætisráðherra, mun halda erindi í Salnum í Kópavogi föstudaginn 6. september næst- komandi.  Um er að ræða ráðstefnu á vegum Students for Liberty og American Institute for Economic Research. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Daniel J. Hannan, Evrópuþingmað- ur Breta, en hann lék stórt hlutverk í kosningabaráttunni um að koma Bretum úr ESB. Aðrir ræðumenn verða Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, og Edward Stringham hagfræðingur. D av í ð h e f u r l ít ið lát ið f a r a fyrir sér í opinberri stjórnmálaumræðu í kjölfar forseta- k o s n i n g a n n a árið 2016, fyrir utan regluleg skrif í Morgun- blaðið. – ab Davíð í Salnum STJÓRNSÝSLA Ráðgjafi um upplýs- ingarétt almennings mun taka til starfa 1. september næstkomandi. Er þessi ráðstöfun í samræmi við breytingar sem gerðar voru á upp- lýsingalögum í júnímánuði síðast- liðnum. Oddur Þorri Viðarsson, lögfræð- ingur á skrifstofu löggjafarmála í forsætisráðuneytinu, mun sinna starfinu en hann hefur jafnframt verið ritari úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Við því starfi tekur Ásthildur Valtýsdóttir lög- fræðingur sem ráðin hefur verið til ráðuneytisins. Ráðg jaf i um upplýsingarétt almennings mun hafa starfsað- stöðu í forsætisráðuneytinu en vera í ráðgjöf sinni óháður fyrir- mælum frá ráðherra og öðrum. Meðal verkefna ráðgjafans eru leiðbeiningar til almennings, félagasamtaka, fjölmiðla, lögaðila og annarra sem leita eftir aðgangi að gögnum. Þá mun ráðgjafinn fylgjast með upplýsingagjöf opinberra aðila til almennings og gera tillögur til úrbóta þar sem við á. Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneyt- inu að markmið aðgerðanna sé að styrkja upplýsingarétt almenn- ings og úrskurðarnefnd um upp- lýsingamál. – sar Ráðgjafi um upplýsingarétt tekur til starfa Ráðgjafinn hefur aðsetur í forsætis- ráðuneytinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN +PLÚS VERSLUN Verslun Hagkaups hefur til sölu drykk sem inniheldur allt að fjögurra prósenta áfengismagn. Um er að ræða nokkurs konar lífrænt te sem gerjast ofan í flöskunni og getur þannig hafa náð þessu áfengismagni við sölu. Hagkaup hefur hins vegar ekki vínveitingaleyfi og þar með ekki leyfi til að selja drykki með svo miklu áfengisinnihaldi. Foreldrasamtökum gegn áfeng- isauglýsingum bárust nokkrar ábendingar vegna vörunnar þar sem henni er stillt upp innan um svokallaða heilsudrykki í Hagkaupi í Garðabæ. Um er að ræða drykk sem heitir GT’s Kombucha. Aftan á f löskunni er þess getið að þetta áfengismagn geti náðst í flöskunum. Framan á f löskunum stendur að einstaklingar þurfi að vera orðnir 21 árs til að kaupa drykkinn. „Við í foreldrasamtökunum fórum í Hagkaup í Garðabæ til að sannreyna að þessi vara stæði öllum til boða. Þarna fer að okkar mati fram ólögleg sala áfengra drykkja og því höfum til tilkynnt þetta til lögreglu. Hagkaup hefur hvorki vínveitingaleyfi né leyfi til sölu áfengis,“ segir Árni Guðmundsson, formaður samtakanna. „Það skiptir miklu máli að menn fari eftir lögum og reglum þegar áfengir drykkir eru annars vegar. Þarna getur hver sem er og börn þar á meðal nálgast áfenga drykki. Því viljum við að lögregla skoði málið alvarlega,“ bætir Árni við. Fréttablaðið hafði samband við Hagkaup í Garðabæ þar sem stað- fest var að þessi vara hefði verið til sölu í versluninni. Hins vegar hafði verslunin ekki vitneskju um að þarna færi drykkur sem gæti náð svo miklu áfengisinnihaldi. Drykknum sé dreift í gegnum Aðföng og því væri það fyrirtækis- ins að svara fyrir drykkinn. Hvorki náðist í forsvarsmenn Aðfanga né í lögregluna á höfuð- borgarsvæðinu sem hefur fengið málið inn á sitt borð. Foreldrasam- tök gegn áfengisauglýsingum hafa ekki fengið svar frá lögreglunni um hvort embættið ætli sér að skoða málið og taka drykkinn úr sölu. sveinn@frettabladid.is Hagkaup sagt brjóta áfengislög með tedrykk Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum segja Hagkaup brjóta lög með sölu á tedrykk sem getur náð fjögurra prósenta áfengisstyrk vegna gerjunar. Versl - unin hefur ekki vínveitingaleyfi, frekar en aðrar matvöruverslanir hér á landi. Auðveldlega gekk að kaupa drykkinn. Hér sést að varan GT’s Synergy Energy Kombucha inniheldur alkóhól og að einstaklingar þurfi að vera orðnir 21 árs til að kaupa vöruna. Árni Guðmundsson. 2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 9 -8 2 8 4 2 3 A 9 -8 1 4 8 2 3 A 9 -8 0 0 C 2 3 A 9 -7 E D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.