Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 52
BÍLAR Svo hröð er þróun rafmagns- og tengiltvinnbíla sem að hluta eru drifnir áfram af rafmagni að búist er við því að bílkaupendur geti valið á milli 214 gerða slíkra bíla árið 2021. Það er 60% meira úrval en við lok síðasta árs. Þessar tölur koma frá European Federation for Transport and Environment og eru byggðar á rannsóknum frá IHS Markit. Ef þessi könnun er nærri lagi getur fólk í bílahugleiðingum valið á milli 92 hreinræktaðra raf- magnsbíla og 118 tengiltvinnbíla árið 2021. Enn fremur sýnir þessi könnun að árið 2025 verða 22% nýrra bíl- gerða með rafmagnstengi. Mesta framleiðsla þessara bíla í Evrópu verður í Þýskalandi, Frakklandi, á Spáni og Ítalíu, en það kemur ef til vill ekki á óvart þar sem þau eru stærstu lönd álfunnar, reyndar ásamt Bretlandi. Árið 2023 er líka búist við að 16 stórar rafhlöðuverk- smiðjur verði starfræktar í Evrópu. Lúxusbílamerkin taka ekki síður þátt í þessari raf bílavæðingu og sífellt fjölgar þeim bílamerkjum sem bætast í hóp þeirra. 214 gerðir rafmagns- og tengiltvinnbíla verða í boði árið 2021  Fyrrverandi formaður stjórnar Volkswagen Group og einn af með- limum Porsche-fjölskyldunnar, Ferdinand Piech, er fallinn frá 82 ára að aldri. Ferdinand Piech var afabarn Ferdinands Porsche, hann var menntaður verkfræðingur og vann hjá Porsche frá árinu 1963 og var aðalmaðurinn í mótorsport- hluta Porsche-fyrirtækisins til langs tíma. Piech hóf síðan störf hjá Audi árið 1972 og þar átti hann meðal annars mestan heiður af Audi Quattro bílnum sem vann allt sem hægt var að vinna í rallinu á sínum tíma. Síðan varð Piech for- stjóri Volkswagen Group árið 1993 og átti stærstan þátt í að byggja upp þetta stærsta bílafyrirtæki heims í dag. Hann var talinn ein áhrifamesta persóna heims í bíla- heiminum. Lamborghini, Bugatti og Bentley Á meðan Piech var forstjóri keypti Volkswagen Group Lamborghini, Bugatti og Bentley merkin og inn- limaði þau í Volkswagen Group. Sýnir það ef til vill best áhuga Piech á sport- og lúxusbílum. Ferd inand Piech  tók síðan við formennsku stjórnar Volkswagen Group árið 2012 en lét af því starfi árið 2015 í kjölfar dísilvélasvindls Volks- wagen. Hann seldi 14,7% hlut sinn í Porsche SE árið 2017 fyrir 148 milljarða króna svo ljóst má vera að hann lætur eftir sig mikla fjár- muni. Ferdinand Piech var ávallt mjög tengdur mótorsporti og ók ennþá Ducati-mótorhjóli sínu á áttræðisaldri. Ferdinand Piech fyrrverandi formaður Volkswagen Group látinn Ferdinand Piech var talinn áhrifamesti einstaklingur bílaheimsins. Nú standa yfir tökur á nýrri James Bond mynd, No Time to Die, en svo virðist sem hinn nýi Land Rover Defender hafi hlutverki að gegna í myndinni. Til bílsins sást á settinu fyrir skömmu og það algerlega án feluklæða. Því má hér sjá endan- legt útlit þessa goðsagnakennda bíls sem hefur ekki verið í fram- leiðslu nú í nokkurn tíma, en stutt er í að hann komi aftur á markað. Eins og á myndinni sést er bíllinn áfram ansi kassalaga, en þó með örlítið nýtískulegri og mýkri línum en forverinn og ekki fer hjá því að sjá megi ættarsvip með bílnum og nýjasta Range Rover. Þar er ekki leiðum að líkjast. Á myndinni að dæma má einnig sjá að bíllinn stendur hátt frá vegi og mikið bil er á milli dekkja hans og brettanna og má leiða að því líkur að bíllinn atarna sé með hækkan- lega loftpúðaf jöðr un. Ekki verður langt að bíða þess að Land Rover sýni almenningi alla dýrðina, en bíllinn mun að öllum líkind- um standa á pöllunum á bílasýningunni í Frank furt sem hefst 10. septem- ber. Hann fer þó ekki í almenna sölu fyrr en á næsta ári. Hinn nýi Defender á tökustað James Bond  Ba nd a r í sk i r a f bí l a-framleiðandinn Tesla veltir nú fyrir sér hvar fyrirtækið eigi að bera niður með nýrri sam-setningarverksmiðju fyrir bíla sína í Evrópu. Helst horfir Tesla til Þýskalands og koma helst til greina svæðin Nordrhein- Westfalen og Neðra-Saxland. Tesla hefur hug á því að reisa á öðrum hvorum staðnum  „Gigafactory“- verksmiðju, en fyrir eru slíkar í Bandaríkjunum og einnig er verið að reisa eina í Kína. Forstjóri Tesla, Elon Musk, hefur látið hafa eftir sér að æskileg staðsetning væri Þýskalandsmegin við Frakkland og Benelux-löndin og í því ljósi er hér- aðið Nord rhein-Westfalen líklegasti kosturinn, en það liggur einmitt að þessum löndum. Evrópa er næststærsta markaðs- svæði heims fyrir rafmagnsbíla á eftir Kína og því er eðlilegt að Tesla íhugi uppsetningu samsetningar- verksmiðju í álfunni. Elon Musk segir að Tesla sé í raun í keppni við tímann þar sem margir aðrir bíla- framleiðendur séu langt komnir með þróun rafmagnsbíla og hann óttast að Tesla geti misst verulega hlutdeild sína til fyrirtækja eins og Mercedes-Benz, Audi, BMW og Jaguar sem eru nú þegar komin með á markað athygliverða rafmagns- bíla sem seljast vel. Tesla íhugar að opna verksmiðju í Þýskalandi  Evrópa er næststærsti markaður heims fyrir rafmagnsbíla, á eftir Kína. SPÁÐ ER AÐ 22% NÝRRA BÍLGERÐA VERÐI MEÐ RAFMAGNSTENGI ÁRIÐ 2025, ÞAÐ ER, RAFMAGNSBÍLAR EÐA TENGILTVINNBÍLAR. EVRÓPA ER NÆST- STÆRSTA MARKAÐS- SVÆÐI HEIMS FYRIR RAF- MAGNSBÍLA Á EFTIR KÍNA OG ÞVÍ ER EÐLILEGT AÐ TESLA ÍHUGI UPPSETNINGU SAMSETN- INGARVERKSMIÐJU Í ÁLFUNNI. Forstjóri Tesla segist í keppni við tímann þar sem aðrir rót- grónir bílafram- leiðendur séu langt komnir í þróun rafmagnsbíla sem seljast nú vel. Nýi Defenderinn var ekki í neinum feluklæðum á tökustað nýjustu Bond-myndarinnar fyrir skömmu. Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is 2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 9 -9 6 4 4 2 3 A 9 -9 5 0 8 2 3 A 9 -9 3 C C 2 3 A 9 -9 2 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.