Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 20
icewear.is Opið til 21:00 alla dagaLAUGAVEGI 91 ÚTSALA FATNAÐUR SKÓR OG FYLGIHLUTIR 30-50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM Nike skór frá kr 4.995.- Helly Hansen parka frá k r 17.495.- Icewear Dúnjakkar frá kr 8. 495.- Nike úlpur frá kr 14.745. - ASOLO gönguskór frá kr 9.9 95.- Adidas hettupeysur frá kr 4. 995.- Hér er greint frá dómi sem skýrir hvernig ábyrgð á lánum af hálfu ábyrgðarmanna getur orðið ógild ef lánveitendur uppfylla ekki skyldur sínar gagnvart ábyrgð- armönnum með hliðsjón af lögum um ábyrgðarmenn frá 2009. Lög sem tóku gildi 2009 um ábyrgðarmenn kváðu á um þrjár meginskyldur lánveitenda. Í fyrsta lagi að lánveitendur skuli vinna greiðslumat á skuldara og kynna fyrir ábyrgðarmanni áður en ábyrgðar- maðurinn staðfestir ábyrgð sína með undirskrift. Í öðru lagi að lán- veitendur skuli með skriflegum hætti ráða ábyrgðarmanni frá því að gang- ast í ábyrgð ef greiðslumat bendir til þess að lántaki geti ekki efnt skuld- bindingar sínar. Í þriðja lagi er kveðið á um vissa upplýsingaskyldu lántaka gagnvart ábyrgðarmanni. Vanræki lánveitandi að sinna einhverri af ofangreindum reglum/ skyldum, þá leiðir það til þess að ábyrgðin eða lánsveðið er að öllum líkindum ólögmæt og ábyrgðin því ógildanleg skv. samningalögum. Ógilding ábyrgðar á þeim forsend- um var einmitt niðurstaðan í dómi sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 10. júlí sl. í máli nr. E-1719/2018. Málið snerist um að LÍN hafði stefnt skuldara námsláns og ábyrgðarmanni til greiðslu skuldar. Ábyrgðarmaðurinn tók þar til varna og sá undirritaður um að gæta hags- muna hans fyrir dómi. Krafa ábyrgðarmannsins var sú að sjálfskuldarábyrgð lánsins myndi víkja á grundvelli 36 gr. samninga- laga, meðal annars vegna þess að LÍN sem lánveitandi, hefði ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt lögum um ábyrgðarmenn nr. 32/2009. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að LÍN hafi ekki uppfyllt skyldu sína um að ráða ábyrgðar- manninum frá því skriflega að gang- ast undir ábyrgðina. Með vísan til þess taldi héraðsdómur óvíst hvort ábyrgðarmaðurinn hefði verið tilbú- inn að gangast undir sjálfskuldar- ábyrgðina ef LÍN hefði svo sem opin- berum lánastofnunum er skylt, ráðið honum skriflega frá því. Héraðsdómur taldi þar af leiðandi að uppfyllt væru skilyrði samninga- laga til að víkja til hliðar sjálfskuldar- ábyrgðinni enda ósanngjarnt að mati dómsins af hálfu LÍN að bera fyrir sig „óupplýst“ loforð ábyrgðarmannsins. Var ábyrgðarmaðurinn því sýknaður af fjárkröfu LÍN. Að mati undirritaðs eru fjölmörg sambærileg dæmi til staðar í samfélag- inu, þar sem að lánastofnanir hafa ekki fylgt ofangreindum reglum og eru að innheimta kröfur hjá ábyrgðar- mönnum sem í reynd eru ólögmætar. Þeir sem hafa gengist í ábyrgð fyrir skuld geta og eiga að kanna stöðu sína að þessu leyti. Það er á valdi ábyrgðar- manna að sækja þennan rétt sinn því lánveitendur skoða ekki réttmæti ábyrgða hvað þessi atriði varðar að eigin frumkvæði. Fordæmi þess dóms sem féll í umræddu máli sýnir að það getur margborgað sig fyrir ábyrgðarmenn að fá óháða sérfræðinga til að kanna réttarstöðu sína í þessum efnum. Er lánsábyrgðin lögmæt? Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni er eitt fjölmenn-asta félag landsins. Ríf lega 12.000 greiðandi félagsmenn til- heyra því. Eitt af fjölmörgum hlut- verkum Félags eldri borgara (FEB) er að vinna að úrbótum í húsnæðis- málum fyrir eldri borgara. Til langs tíma hefur FEB byggt fjölbýlishús fyrir félagsmenn með góðum árangri og hefur það alltaf verið gert á kostn- aðarverði og aldrei annað staðið til með þennan hluta starfseminnar. Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að FEB hefur verið að byggja 68 íbúðir í tveimur blokkum við Árskóga 1-3. Þegar komið var að afhendingu íbúðanna um mánaða- mótin júlí/ágúst, kom í ljós að tæp- lega 400 milljóna króna halli var á framkvæmdunum. Hvað fór úrskeiðis? Eftir mikla vinnu bæði stjórnar FEB og aðkeyptra sérfræðinga, kom í ljós að hallinn orsakaðist fyrst og fremst af vantöldum fjármagnskostnaði og lágu þau mistök hjá byggingar- nefnd félagsins. Þessi vanreiknaði fjármagnskostnaður fór því miður fram hjá öllum þeim eftirlitsaðilum sem að málinu komu. Þetta er augljóslega mikið áfall fyrir kaupendur íbúðanna og einnig fyrir okkur í stjórn félagsins. Félagið, sem hefur lagt metnað sinn í að skila verkefnum vel af sér, mátti nú horf- ast í augu við að eitthvað alvarlegt hafði farið úrskeiðis. Þessar vikur sem liðnar eru frá því að hallinn kom í ljós hafa einkennst af látlausri vinnu til að kanna hvernig þetta gat gerst og er henni hvergi lokið. Það er ekki síður mikilvægt að finna leiðir til að lágmarka skaðann fyrir kaup- endur íbúðanna. FEB starfar án hagnaðarsjónarmiða Félag eldri borgara starfar án þess að hagnaðarsjónarmið séu í fyrir- rúmi og á því í enga sjóði að sækja. Ef ekki tekst að selja íbúðirnar á kostn- aðarverði blasir við að félagið fer í greiðslustöðvun og/eða gjaldþrot. Þá munu 12 þúsund félagsmenn líða fyrir þessi mistök fyrir utan þau ómældu óþægindi sem kaupendur hafa nú þegar orðið fyrir. Ákveðið var að freista þess að fá kaupendur til þess að taka þennan halla hlutfallslega á sig þannig að heildarverð allra íbúða næði upp í kostnaðarverð sem kom að sjálf- sögðu illa við fólk eftir að hafa gert ráð fyrir lægra verði og er auðvelt að skilja vonbrigðin. Eftir samningaviðræður við framkvæmda- og fjármögnunar- aðila tókst að ná samkomulagi um að lækka hallann úr 400 milljónum króna niður í 250 milljónir króna og var verð íbúða þá aftur lækkað sem því nam, eða um tæp 40% frá fyrri hækkun. Nú er því verð íbúðanna komið 5% niður fyrir kostnaðarverð og um 17-20% niður fyrir markaðs- virði sambærilegra íbúða á frjálsum markaði. Verkefni stjórnar Stjórn félagsins tekur þetta mál mjög alvarlega og mun leita allra leiða til að komast að því hvernig þetta gat gerst um leið og félagið vinnur að frekari lausnum til að auðvelda kaupendum að takast á við þessi óvæntu útgjöld. Því miður eru þetta ekki fyrstu mistökin sem eiga sér stað í byggingaframkvæmdum hérlendis og væntanlega ekki þau síðustu heldur. Það er þó bót í máli fyrir kaupendur að íbúðirnar eru seldar undir kostnaðarverði. Niðurstaðan er að félaginu urðu á alvarleg mistök, það er óum- deilanlegt. Margar spurningar hafa vaknað. Hvernig gat þetta gerst og af hverju tók enginn eftir neinu fyrr en að verkinu var að mestu lokið? Útreikningarnir höfðu farið í gegnum hendur margra lærðra aðila á viðurkenndum og virtum stofnunum og félögum. Vonandi mun óháð endurskoðun á málinu leiða í ljós svörin við þessum og fleiri spurningum. Nú hafa f lestir kaupendur sam- þykkt nýtt verð íbúðanna og margir eru þegar f luttir inn. Það er von okkar í stjórn FEB að íbúar Árskóga 1 og 3 muni, þrátt fyrir þessa leiðu uppákomu, njóta þessara góðu íbúða um ókomin ár. Áfall Guðbrandur Jóhannesson landsréttar- lögmaður hjá Lögmönnum Sundagörðum Sigríður Snæbjörnsdóttir varaformaður Félags eldri borgara Hvernig gat þetta gerst og af hverju tók enginn eftir neinu fyrr en að verkinu var að mestu lokið? 2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 9 -A 0 2 4 2 3 A 9 -9 E E 8 2 3 A 9 -9 D A C 2 3 A 9 -9 C 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.