Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 14
Eyvindarfjörður er fallegur fjörður á Ströndum, beint norður af Ófeigsfirði og skammt frá Drangaskörðum. Innst í firðinum var aldrei búið, enda undirlendi lítið, en utar undir Drangavíkurfjalli er gamalt eyðibýli. Í Landnámabók segir að fjörðurinn sé kenndur við landnámsmanninn Eyvind Herröðarson, en bræður hans námu land aðeins sunnar í Ófeigsfirði og Ingólfsfirði, sem eru ekki síður fallegir firðir. Helsta djásn Eyvindarfjarðar er Eyvindarfjarðará sem á upptök sín í blátærum vötnum sunnan Drangajökuls. Í henni eru tugir fossa sem eru hver öðrum glæsilegri, en þeir neðstu, Eyvindarfjarðarár­ fossar, þykja tilkomumestir. Yfir þessa einstöku fossaröð eru tvær göngubrýr sem auðvelda göngu að Drangaskörðum. Þeir sjást einnig vel af sjó en þegar vatnið steypist niður hörð berglögin minnir fossakeðjan helst á hvítan blævæng sem glatt hefur sjómenn svo öldum skiptir. Það er ógleymanlegt að skoða Eyvindarfjarðarár­ fossa í návígi og finna hvernig undirlagið hristist undan vatnsflaumnum. Fuglalíf og rekaviðardrumb­ ar við ósinn auka síðan enn frekar á upplifunina. Eyvindarfjörður á sér f lókna sögu en árið 1787 fórst verslunarskipið Fortuna í firðinum með manni og mús. Skolaði ýmsum varningi á land sem spilltur sýslumaður að nafni Halldór Jakobsson bauð upp undir áhrifum, enda töluvert af strandgóssinu brennivín. Seldi hann sjálfum sér ýmsan varning úr strandinu á kostakjörum og var vikið úr embætti í kjölfarið. Næsta áfall í sögu Eyvindarfjarðar var þegar hann var seldur ítölskum barón fyrir slikk árið 2006, en sá sagðist ætla að byggja sér þar sumarbústað. Í staðinn seldi hann stuttu síðar VesturVerki og síðar HS Orku vatnsréttindin í Eyvindarfjarðará, sem gerði fyrirtækjunum kleift að stækka fyrirhugaða Hvalár­ virkjun úr 35 MW í 55MW. Um leið voru tugir stór­ kostlegra fossa leiddir í gálgann því verði af virkjun munu þeir allir þurrkast upp. Í Eyvindarfjörð verður aðeins komist gangandi eða á báti. Frá bílastæðinu við Hvalárfossa er um dagsferð að ræða fram og til baka en við mælum með að taka með tjald, gista við ósinn og ganga þaðan upp og niður með fossunum. Þetta eru ósnortin víð­ erni eins og þau gerast best – víðerni sem vonandi fá að vera í friði um ókomnar aldir. Feigir fossar í Eyvindarfirði Tilfinningin að standa við kraftmikla Eyvindar- fjarðarárfossa er engu lík.  MYND/TG Úr fjarlægð líkjast Eyvindarfjarðarárfossar hvítri blæju. MYND/ÓMB Kyrrð og ótrúleg náttúrufegurð einkennir botn Eyvindarfjarðar – enda fjörðurinn afskekktur. MYND/TG Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari TILVERAN 2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 9 -9 1 5 4 2 3 A 9 -9 0 1 8 2 3 A 9 -8 E D C 2 3 A 9 -8 D A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.