Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 56
2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍÓ Einhvers staðar handan regnbogans … Edda Karítas Baldursdóttir eddakaritas@frettabladid.is UNDANKEPPNI EM 2021 Í KVÖLD KL. 18:00 Fyrir átta áratugum feykti hvirfil- bylur sveitastelpunni Dórótheu og litla hundinum Tótó frá Kansas yfir í litskrúðuga töfraveröld þar sem dularfullur galdrakarl ríkti og nornir, góðar og slæmar, fóru mikinn innan um alls konar furðu- verur. Kvikmyndin um Galdrakarlinn í Oz var frumsýnd í Bandaríkjunum í ágúst 1939 og fagnar því stóraf- mæli um þessar mundir. Hún hlaut á sínum tíma mikið lof og fjöldann allan af verðlaunum og er löngu orðin sígild. Judy Garland fór með hlutverk Dórótheu í rauðu rúbínskónum sem þráði ekkert heitar en að komast aftur til síns heima. Afmælið gefur okkur kjörið tækifæri til að svipta hulunni af Galdrakarlinum í Oz með nokkrum áhugaverðum staðreyndum. Fáeinir fróðleiksmolar um Galdrakarlinn í OZ n Myndin var gerð eftir bókinni The Wonderful Wizard of Oz, eftir L. Frank Baum, sem kom út árið 1900. n Myndin fékk alls sex tilnefningar til Óskarsverðlaunanna, meðal annars sem besta myndin og fyrir bestu kvikmyndatökuna. n Skórnir hennar Dórótheu voru silfurlitir í bókinni en framleið- endur myndarinnar ákváðu að hafa þá rauða þar sem sá litur vakti meiri athygli og kom betur út í Technicolor-litum sem þá voru að ryðja sér til rúms í kvik- myndum. n Judy Garland var ekki efst á óskalistanum í hlutverk Dóró- theu þar sem upphaflega stóð til að barnastjarnan Shirley Temple myndi smeygja sér í rúb ínskóna. Hún þótti hins vegar ekki hafa nógu sterka söngrödd. n Shirley Temple hafði það hins vegar fram yfir Judy Garland að hún var ellefu ára og þannig jafnaldra Dórótheu. Garland var sextán ára þegar hún hreppti hlutverkið og hermt er að til þess að láta hana virðast yngri hafi hún verið reyrð í lífsstykki undir kjólnum fræga með hvítu og bláu svuntunni. n Aldur hinna kvennanna í mynd- inni var einnig nokkuð á reiki og þannig lék hin 34 ára gamla Margaret Hamilton gömlu, grænu og grimmu nornina að vestan. Billie Burke sem var aftur á móti 54 ára þegar hún brá sér í gervi ungu og ljómandi fögru góðu nornarinnar. n Búningur huglausa ljónsins var níðþungur enda gerður úr raun- verulegum ljónsfeldi en gríman var úr brúnum bréfpoka. n Olían sem Dóróthea smurði tin- karlinn með var ekki olía heldur súkkulaðisósa sem þótti líta betur út á filmu en hefðbundin smurning. Biðin eftir síðasta hluta þriðja þríleiksins í meginsögu Star Wars hefur verið áköfum aðdáendum erfið en verður þeim sem þorðu að horfa á nýju stikluna nánast óbærileg þar sem það sem fyrir augu ber vekur ekki aðeins eftirvæntingu heldur einnig ugg og jafnvel ofsakvíða. Þar sem ekki er á það hættandi að æra þá óstöðugu sem engjast í stöð- ugum spilliefnaótta er best að hafa sem fæst orð um þær í raun mjög svo takmörkuðu og örugglega mis- vísandi upplýsingar sem út úr mynd- skeiðinu er að hafa. Eftir undurfagra og hraðsoðna upprifjun á nokkrum fallegustu atriðum fyrri mynda dró aðeins til tíðinda þegar lykilpersóna sveiflaði nýju og ferlega töff tvöföldu geisla- sverði sem lætur framlengdan geislabrand Darth Maul líta út eins og sjúskað moppuskaft. Þótt geislasverðin eigi að draga dám af eigendum sínum og því með hvaða hugar- fari þeir raða kristöllun- um í þau er allur gangur á því hversu traust heimild þau eru um örlög þeirra og innri mann. Þannig hafa meðal annarra Luke og Rey barist með hinu bláa sverði Anakins Skywalker en fyrir afköst fyrsta eiganda er það ban- vænasta sverðið sem sögur fara af í vetrarbrautinni í f j a r s k a n u m . Sverðið hef u r ger t nokkurn usla í síðustu tveimur myndum en þar sem það er í raun ósköp hversdagslegt í bláma sínum eru þau nokkur sem komast nær því glæsilega vopni sem blindar nú nörda allra landa með rauðum áhyggjubjarma. toti@frettabladid.is Villuljós geislasverða Vinnuvikan hófst með undrunarstunum og jafnvel angistar- ópum þegar ný stikla úr The Rise of Skywalker opinberaðist. Rey hefur haft góð not fyrir geislasverð Anakins en kannski er kominn tími á að hún búi sér til sitt eigið? Darth Maul er kúl og undirstrikar það með tvöföldu sverði. Kylo Ren er alltaf á skjön. Sverðið hans líka en flott er það. Samuel L. Jackson er án hliðstæðu og heimtaði fjólublátt sverð handa Mace Windu. 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 9 -B D C 4 2 3 A 9 -B C 8 8 2 3 A 9 -B B 4 C 2 3 A 9 -B A 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.