Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 60
Bergur Guðnason kemur úr mikilli íþróttafjöl-skyldu, faðir hans er fótboltakempan Guðni Bergsson og var það alltaf draumur Bergs að fara í atvinnumennsku. Slæm meiðsli breyttu því og í kjölfar þess að læknar tjáðu honum að hann gæti ekki spilað lengur, stóð hann frammi fyrir því að finna sér nýjan draum. Tók U-beygju um tvítugt ,,Ég var á fullu í fótboltanum til tvítugs þegar ég lendi í þessum meiðslum. Mitt plan var alltaf að verða afreksmaður í íþróttum. Þegar þau plön breyttust eftir meiðslin varð ég að finna eitthvað annað. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tísku og líka því hvernig föt klæða fólk. Mjög ungur var ég farinn að velta fyrir mér formunum og hvernig litir fara saman,“ segir Bergur. Hann segir að sér hafi alltaf þótt gaman að ögra sjálfum sér með því að vera í skemmtilega öðruvísi fötum þegar hann var unglingur. Ný samstarfslína Bergs og 66°Norður Samstarfslína Bergs og 66°Norður verður fáanleg í takmörkuðu upplagi. Línan er fyrst og fremst unisex og henta því flíkurnar báðum kynjum. Hönnuðurinn ungi segist einstaklega þakklátur fyrir tækifærið til að fá að vinna með merkinu vinsæla. Hægt er að kaupa flíkurnar í verslun merkisins á Laugaveginum. Hönnuðurinn segir að engar tvær flíkur í línunni séu alveg eins þó að þær séu í sama stíl. MYNDIR/ÓLI MAGG Bergur var á fullu að undir- búa daginn í dag í höfuð- stöðvum fatamerkisins í gær. Í dag fer í sölu ný samstarfslína hins unga og efnilega hönnuðar Bergs Guðnasonar og 66°Norður. Hann stefndi alltaf á atvinnumennsku í fótbolta, en örlögin ákváðu annað. Stuttu eftir menntaskóla fékk Berg- ur tækifæri til að fá smá reynslu hjá fatahönnuðinum Guðmundi Jör- undssyni, sem hann segir hafa verið dýrmæta. Hann ákvað í kjölfarið að slá til og sótti um í fatahönnun í Listaháskóla Íslands. ,,Ég gerði möppu og komst inn í skólann. Þar var ég í þrjú ár og útskrifaðist með eina af hæstu ein- kunnunum. Ég viðurkenni samt að ég var ekki færastur í tæknilegum áföngum og féll nokkrum sinnum í þeim. Ég var ekkert f linkastur þarna, alls ekki.“ Starfaði náið með heimsþekktum hönnuði Eftir útskrift langaði Berg út og hann lagði mikið á sig til að láta þann draum rætast. Hann komst á samning í tískuhúsi í París sem heitir Haider Ackermann, en merkið er í miklu uppáhaldi hjá stjörnum á borð við Kanye West og Tildu Swinton. ,,Ég var hjá þeim í átta mánuði og vann að tveimur línum, þar sem ég aðstoðaði Haider sjálfan. Þetta var mjög mikill lærdómur, ég lærði svo ótrúlega margt af því að fá að vinna náið með honum og hans teymi. Eftir að samningnum mínum lauk þar fór ég að vinna hjá Acne Studios, í svipað langan tíma.“ Hjá Acne fékk Bergur ríkari reynslu í gerð kvenfatnaðar, en í skólanum og hjá Haider var hann fyrst og fremst í herrafatnaði. Eftir að samningurinn hjá Acne rann út var Bergur með alla anga úti til að komast að hjá öðru tískuhúsi í París. „Það er alveg gríðarleg samkeppni í þessum bransa, mörg þúsund ungir hönnuðir sem vilja allir kom- ast á samning hjá sömu fimmtán tískuhúsunum sem ráða kannski bara einn nýjan hönnuð inn. Við kærastan mín, Margrét Rajani, komumst að því að við ættum von á barni. Í kjölfarið ákváðum við að kannski væri gott að f lytja aðeins heim, enda álagið gífurlega mikið úti,“ segir Bergur. Hann segir þetta allt þó hafa verið mjög gaman, mik- ill lærdómur og reynslan honum einstaklega dýrmæt. Lán í óláni að fá ekki vinnu hjá Louis Vuitton „Ég hafði í gegnum þetta alltaf verið í samskiptum við Völu Melstað, yfir- hönnuð hjá 66°Norður, ég kynntist henni eftir útskrift. Ég sagði henni að við værum að hugsa um að koma heim. Í millitíðinni er ég fenginn í viðtal til tískuhússins Louis Vuit- ton, en það var mjög svekkjandi að komast ekki þar inn. Einmitt þá er Vala stödd í París og við ákveðum að hittast og ræða saman.“ Eftir að Bergur og Margrét f luttu heim hafði 66°Norður samband með samstarf í huga, sem Bergur var mjög til í. Hann segir línuna örlítið óhefðbundnari en hinn klassíska 66°Norður fatnað. „Þetta er meira út í svokallað „streetwear“. Fyrirtækið er auð- vitað með frábæran útivistarfatnað sem flestir Íslendingar náttúrulega þekkja. Þetta höfðar eflaust meira til yngri kynslóðarinnar og er í mjög takmörkuðu upplagi.“ Engar tvær f líkur eru alveg eins þótt þær fylgi ákveðnu þema, útliti eða stíl en grafíkin er aldrei alveg sú sama. ,,Það var svo líka einstakur heiður að fá að vinna með þeim og ég er þeim mjög þakklátur fyrir að hafa gefið mér það tækifæri.“ Samstarfslína Bergs og 66°Norður fer í sölu í dag klukkan 17.00 í versl- un merkisins á Laugavegi. steingerdur@frettabladid.is ÞAÐ ER ALVEG GRÍÐARLEG SAM- KEPPNI Í ÞESSUM BRANSA, MÖRG ÞÚSUND UNGIR HÖNN- UÐIR SEM VILJA ALLIR KOMAST Á SAMNING HJÁ SÖMU FIMM- TÁN TÍSKUHÚSUNUM SEM RÁÐA KANNSKI BARA EINN NÝJAN HÖNNUÐ INN. 2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 9 -A 5 1 4 2 3 A 9 -A 3 D 8 2 3 A 9 -A 2 9 C 2 3 A 9 -A 1 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.