Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 60
Bergur Guðnason kemur úr mikilli íþróttafjöl-skyldu, faðir hans er fótboltakempan Guðni Bergsson og var það alltaf draumur Bergs
að fara í atvinnumennsku. Slæm
meiðsli breyttu því og í kjölfar þess
að læknar tjáðu honum að hann
gæti ekki spilað lengur, stóð hann
frammi fyrir því að finna sér nýjan
draum.
Tók U-beygju um tvítugt
,,Ég var á fullu í fótboltanum til
tvítugs þegar ég lendi í þessum
meiðslum. Mitt plan var alltaf að
verða afreksmaður í íþróttum.
Þegar þau plön breyttust eftir
meiðslin varð ég að finna eitthvað
annað. Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á tísku og líka því hvernig
föt klæða fólk. Mjög ungur var ég
farinn að velta fyrir mér formunum
og hvernig litir fara saman,“ segir
Bergur.
Hann segir að sér hafi alltaf þótt
gaman að ögra sjálfum sér með
því að vera í skemmtilega öðruvísi
fötum þegar hann var unglingur.
Ný samstarfslína
Bergs og 66°Norður
Samstarfslína Bergs og 66°Norður verður fáanleg í takmörkuðu upplagi.
Línan er fyrst og fremst unisex og
henta því flíkurnar báðum kynjum.
Hönnuðurinn ungi segist einstaklega þakklátur fyrir
tækifærið til að fá að vinna með merkinu vinsæla.
Hægt er að kaupa flíkurnar í
verslun merkisins á Laugaveginum.
Hönnuðurinn segir að engar tvær flíkur í línunni séu
alveg eins þó að þær séu í sama stíl. MYNDIR/ÓLI MAGG
Bergur var á
fullu að undir-
búa daginn í
dag í höfuð-
stöðvum
fatamerkisins
í gær.
Í dag fer í sölu ný
samstarfslína hins
unga og efnilega
hönnuðar Bergs
Guðnasonar og
66°Norður. Hann
stefndi alltaf á
atvinnumennsku
í fótbolta, en
örlögin ákváðu
annað.
Stuttu eftir menntaskóla fékk Berg-
ur tækifæri til að fá smá reynslu hjá
fatahönnuðinum Guðmundi Jör-
undssyni, sem hann segir hafa verið
dýrmæta. Hann ákvað í kjölfarið
að slá til og sótti um í fatahönnun í
Listaháskóla Íslands.
,,Ég gerði möppu og komst inn
í skólann. Þar var ég í þrjú ár og
útskrifaðist með eina af hæstu ein-
kunnunum. Ég viðurkenni samt að
ég var ekki færastur í tæknilegum
áföngum og féll nokkrum sinnum
í þeim. Ég var ekkert f linkastur
þarna, alls ekki.“
Starfaði náið með
heimsþekktum hönnuði
Eftir útskrift langaði Berg út og
hann lagði mikið á sig til að láta
þann draum rætast. Hann komst á
samning í tískuhúsi í París sem heitir
Haider Ackermann, en merkið er í
miklu uppáhaldi hjá stjörnum á borð
við Kanye West og Tildu Swinton.
,,Ég var hjá þeim í átta mánuði og
vann að tveimur línum, þar sem ég
aðstoðaði Haider sjálfan. Þetta var
mjög mikill lærdómur, ég lærði svo
ótrúlega margt af því að fá að vinna
náið með honum og hans teymi.
Eftir að samningnum mínum lauk
þar fór ég að vinna hjá Acne Studios,
í svipað langan tíma.“
Hjá Acne fékk Bergur ríkari
reynslu í gerð kvenfatnaðar, en í
skólanum og hjá Haider var hann
fyrst og fremst í herrafatnaði. Eftir
að samningurinn hjá Acne rann út
var Bergur með alla anga úti til að
komast að hjá öðru tískuhúsi í París.
„Það er alveg gríðarleg samkeppni
í þessum bransa, mörg þúsund
ungir hönnuðir sem vilja allir kom-
ast á samning hjá sömu fimmtán
tískuhúsunum sem ráða kannski
bara einn nýjan hönnuð inn. Við
kærastan mín, Margrét Rajani,
komumst að því að við ættum von
á barni. Í kjölfarið ákváðum við að
kannski væri gott að f lytja aðeins
heim, enda álagið gífurlega mikið
úti,“ segir Bergur. Hann segir þetta
allt þó hafa verið mjög gaman, mik-
ill lærdómur og reynslan honum
einstaklega dýrmæt.
Lán í óláni að fá ekki vinnu
hjá Louis Vuitton
„Ég hafði í gegnum þetta alltaf verið
í samskiptum við Völu Melstað, yfir-
hönnuð hjá 66°Norður, ég kynntist
henni eftir útskrift. Ég sagði henni
að við værum að hugsa um að koma
heim. Í millitíðinni er ég fenginn í
viðtal til tískuhússins Louis Vuit-
ton, en það var mjög svekkjandi að
komast ekki þar inn. Einmitt þá er
Vala stödd í París og við ákveðum að
hittast og ræða saman.“
Eftir að Bergur og Margrét f luttu
heim hafði 66°Norður samband
með samstarf í huga, sem Bergur var
mjög til í. Hann segir línuna örlítið
óhefðbundnari en hinn klassíska
66°Norður fatnað.
„Þetta er meira út í svokallað
„streetwear“. Fyrirtækið er auð-
vitað með frábæran útivistarfatnað
sem flestir Íslendingar náttúrulega
þekkja. Þetta höfðar eflaust meira
til yngri kynslóðarinnar og er í mjög
takmörkuðu upplagi.“
Engar tvær f líkur eru alveg eins
þótt þær fylgi ákveðnu þema, útliti
eða stíl en grafíkin er aldrei alveg sú
sama.
,,Það var svo líka einstakur heiður
að fá að vinna með þeim og ég er
þeim mjög þakklátur fyrir að hafa
gefið mér það tækifæri.“
Samstarfslína Bergs og 66°Norður
fer í sölu í dag klukkan 17.00 í versl-
un merkisins á Laugavegi.
steingerdur@frettabladid.is
ÞAÐ ER ALVEG
GRÍÐARLEG SAM-
KEPPNI Í ÞESSUM BRANSA,
MÖRG ÞÚSUND UNGIR HÖNN-
UÐIR SEM VILJA ALLIR KOMAST
Á SAMNING HJÁ SÖMU FIMM-
TÁN TÍSKUHÚSUNUM SEM RÁÐA
KANNSKI BARA EINN NÝJAN
HÖNNUÐ INN.
2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
9
-A
5
1
4
2
3
A
9
-A
3
D
8
2
3
A
9
-A
2
9
C
2
3
A
9
-A
1
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K