Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 17
Stokkhólmi – Í þessum mánuði eru liðin 30 ár síðan Eistar, Lettar og Litháar tóku höndum saman og mynduðu 600 km langa keðju sem teygði sig yfir öll löndin þrjú frá norðri til suðurs. Keðjuna mynduðu tvær milljónir manna, fjórða hvert mannsbarn í löndunum þrem, til að undirstrika óskir sínar um frelsi undan oki Rússa og endur- heimt sjálfstæðis sér til handa. Hálf öld var þá liðin frá griðasamningi Hitlers og Stalíns frá 1939 sem svipt hafði Eystrasaltslöndin þrjú frelsi og sjálfstæði. Annað mikilvægt vopn Eystrasaltsþjóðanna í sjálfstæðisbar- áttunni var söngurinn. Þau sungu saman á fundum. Þau þóttust vita að jafnvel Rauði herinn ræðst ekki gegn syngjandi fólki. Örlagaárið 1989 Fleira gerðist þetta örlagaríka ár, 1989. Þegar stúdentar söfnuðust saman á Torgi hins himneska friðar í Beijing til að biðja um aukið lýð- ræði, þetta var í júní, þá sendi ríkis- stjórnin 300.000 hermenn á vett- vang til að tvístra stúdentunum með vopnavaldi. Ríkisstjórnin segir að 300 manns hafi látið lífið, en aðrar heimildir segja 3.000 eða þar um bil. Þessir atburðir eru ennþá feimnis- mál í Kína. Ekkert er um þá sagt í kennslubókum handa börnum og unglingum. Harðlínumenn í Kreml heimtuðu að stjórnin beitti vopna- valdi gagnvart Eystrasaltsríkjunum 1989 eins og hún hafði gert í Berlín 1953, Búdapest 1956 og Prag 1968, en svo fór þó ekki að þessu sinni því nú blésu nýir vindar í Moskvu þar sem Míkhaíl Gorb atsjov var orðinn aðal- ritari Kommúnistaflokksins. Um svipað leyti tókst 600-700 Austur-Þjóðverjum að flýja landið í gegnum örmjóa glufu á landamærum Austurríkis og Ungverjalands. Þegar Rússar létu sem þeir tækju ekki eftir þessu brast á flótti þúsunda sem varð til þess að ungverska ríkisstjórnin opnaði landamæri sín upp á gátt. Stíflan var brostin. Verklýðsfélaginu Samstöðu hafði þá um vorið tekizt að brjóta einræði pólska kommúnista- flokksins á bak aftur og vann í júní í fyrstu frjálsu kosningum í landinu frá 1928 öll þingsæti, að einu undan- skildu, önnur en þau sem flokkurinn hafði tryggt sér í forgjöf. Síðar á árinu var Nicolae Sjáseskú steypt af stóli í Rúmeníu og þau hjónin bæði, hann og Elena, skotin eins og hundar. Árið eftir leiddu frjálsar kosningar í Aust- ur-Þýzkalandi til sameiningar lands- ins við Vestur-Þýzkaland. Önnur kommúnistalönd í Mið- og Austur- Evrópu tóku sér sjálfstæði eitt af öðru án þess að Kreml fengi rönd við reist. Að loknu misheppnuðu valdaráni nokkurra drukkinna Kremlverja lagði æðstaráð kommúnistaflokks- ins Sovétríkin formlega niður fyrir árslok 1991. Taflinu var lokið. Lýðræði, lög og réttur Atburðarásin hefði getað orðið önnur: blóðbað og áframhaldandi kúgun og ofbeldi í stað frelsis, friðar og lýðræðisvakningar. En svo fór ekki. Eins og hendi væri veifað fjölgaði lýðræðisríkjum heimsins um rösklega 20, Sovétlýðveldin 15 auk kommúnistalandanna í Mið- og Austur-Evrópu sem gengu öll lýðræði og markaðsbúskap á hönd. Búlgarar, Króatar, Pólverjar, Rúm- enar, Tékkar, Slóvakar, Slóvenar og Ungverjar gengu frelsinu fegnir í ESB og Albanar, Norður-Makedónar, Svartfellingar og Serbar búast nú til inngöngu. Til að styrkja umsókn sína um aðild réðust Albanar á eigin Þorvaldur Gylfason Í DAG Þegar fólkið rís upp Álagning opinberra gjalda á lögaðila árið 2019 vegna rekstrarársins 2018 fer fram í september nk. Forráðamenn lögaðila, sem enn hafa ekki staðið skil á skattframtali 2019 ásamt ársreikningi, eru hvattir til að annast skil hið allra fyrsta. Skráður lögaðili skal ætíð skila skattframtali vegna undangengins reikningsárs þrátt fyrir að engin eiginleg starfsemi eða rekstur hafi átt sér stað á reikningsárinu. Félög eiga jafnframt að skila ársreikningi til ársreikningaskrár. Skattframtali og ársreikningi ber að skila rafrænt á skattur.is Til forráðamanna hlutafélaga, einkahlutafélaga og annarra skattskyldra lögaðila um skil á skattframtali 2019 Áminning um framtalsskil lögaðila 442 1000 rsk@rsk.is Þjónustuver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 spýtur og með erlendri hjálp í rann- sókn á dómskerfi landsins með þeim árangri að nær helmingur þeirra dómara og saksóknara sem lentu undir smásjánni hefur látið af störfum m.a. vegna þess að þeir gátu ekki gert grein fyrir eignum sínum. Það er efni í aðra grein. Af Sovétlýðveldunum 15 afréðu aðeins Eystrasaltslöndin þrjú að ganga í ESB. Vonin um innreið lýð- ræðis, laga og réttar í hin 12 Sovétrík- in sálugu rættist ekki þegar á reyndi. Lýðræðiseinkunnin sem Freedom House gefur Eystrasaltslöndunum nú er 8,7 í Lettlandi, 9,1 í Litháen og 9,4 í Eistlandi borið saman við 2,0 í Rússlandi og 3,0 að meðaltali í gömlu Sovétlýðveldunum 12 að Eystrasaltsríkjunum frátöldum. Af þessum 12 ríkjum hafa Georgía, Moldavía og Úkraína þá sérstöðu að Evrópuþingið metur þau reiðubúin til umsóknar um aðild enda eru lýð- ræðiseinkunnir þeirra á bilinu 5,8 til 6,3, langt fyrir ofan Rússland. Stofn- un Bandaríska lögfræðingafélagsins, World Just ice Project, gefur æ fleiri löndum einkunnir fyrir dómskerfi og réttar far með því að leggja mat á m.a. valdmörk og mótvægi við ríkis- vald, gegnsæi í andstöðumerkingu við spillingu, virðingu fyrir mann- réttindum, framfylgd laga o.fl. Stofn- unin gefur Rússlandi og sjö öðrum fv. Sovétlýðveldum að meðaltali ein- kunnina 5,1 fyrir lög og rétt á móti 8,1 í Eistlandi. Lýðræði, lög og réttur haldast í hendur. Lýðræði á víða undir högg að sækja. Fólkið í Hong Kong (lýð- ræðiseinkunn 5,9; lög og réttur 7,7) berst nú fyrir lýðræði og réttlæti í borgríkinu sem var brezk nýlenda og naut óskoraðs lýðræðis og mann- réttinda til 1996 og býr nú við ógn og yfirgang kommúnistastjórnarinnar í Beijing (lýðræðiseinkunn 1,1; lög og réttur 4,9). Tvær milljónir manna sækja suma útifundina til varnar lýð- ræðinu. Íbúafjöldi Hong Kong er 7,4 milljónir. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 9 -8 7 7 4 2 3 A 9 -8 6 3 8 2 3 A 9 -8 4 F C 2 3 A 9 -8 3 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.