Fréttablaðið - 29.08.2019, Qupperneq 17
Stokkhólmi – Í þessum mánuði eru liðin 30 ár síðan Eistar, Lettar og Litháar tóku höndum
saman og mynduðu 600 km langa
keðju sem teygði sig yfir öll löndin
þrjú frá norðri til suðurs. Keðjuna
mynduðu tvær milljónir manna,
fjórða hvert mannsbarn í löndunum
þrem, til að undirstrika óskir sínar
um frelsi undan oki Rússa og endur-
heimt sjálfstæðis sér til handa. Hálf
öld var þá liðin frá griðasamningi
Hitlers og Stalíns frá 1939 sem svipt
hafði Eystrasaltslöndin þrjú frelsi og
sjálfstæði. Annað mikilvægt vopn
Eystrasaltsþjóðanna í sjálfstæðisbar-
áttunni var söngurinn. Þau sungu
saman á fundum. Þau þóttust vita
að jafnvel Rauði herinn ræðst ekki
gegn syngjandi fólki.
Örlagaárið 1989
Fleira gerðist þetta örlagaríka ár,
1989. Þegar stúdentar söfnuðust
saman á Torgi hins himneska friðar
í Beijing til að biðja um aukið lýð-
ræði, þetta var í júní, þá sendi ríkis-
stjórnin 300.000 hermenn á vett-
vang til að tvístra stúdentunum
með vopnavaldi. Ríkisstjórnin segir
að 300 manns hafi látið lífið, en aðrar
heimildir segja 3.000 eða þar um bil.
Þessir atburðir eru ennþá feimnis-
mál í Kína. Ekkert er um þá sagt í
kennslubókum handa börnum og
unglingum. Harðlínumenn í Kreml
heimtuðu að stjórnin beitti vopna-
valdi gagnvart Eystrasaltsríkjunum
1989 eins og hún hafði gert í Berlín
1953, Búdapest 1956 og Prag 1968, en
svo fór þó ekki að þessu sinni því nú
blésu nýir vindar í Moskvu þar sem
Míkhaíl Gorb atsjov var orðinn aðal-
ritari Kommúnistaflokksins.
Um svipað leyti tókst 600-700
Austur-Þjóðverjum að flýja landið í
gegnum örmjóa glufu á landamærum
Austurríkis og Ungverjalands. Þegar
Rússar létu sem þeir tækju ekki eftir
þessu brast á flótti þúsunda sem varð
til þess að ungverska ríkisstjórnin
opnaði landamæri sín upp á gátt.
Stíflan var brostin. Verklýðsfélaginu
Samstöðu hafði þá um vorið tekizt að
brjóta einræði pólska kommúnista-
flokksins á bak aftur og vann í júní
í fyrstu frjálsu kosningum í landinu
frá 1928 öll þingsæti, að einu undan-
skildu, önnur en þau sem flokkurinn
hafði tryggt sér í forgjöf. Síðar á árinu
var Nicolae Sjáseskú steypt af stóli í
Rúmeníu og þau hjónin bæði, hann
og Elena, skotin eins og hundar. Árið
eftir leiddu frjálsar kosningar í Aust-
ur-Þýzkalandi til sameiningar lands-
ins við Vestur-Þýzkaland. Önnur
kommúnistalönd í Mið- og Austur-
Evrópu tóku sér sjálfstæði eitt af öðru
án þess að Kreml fengi rönd við reist.
Að loknu misheppnuðu valdaráni
nokkurra drukkinna Kremlverja
lagði æðstaráð kommúnistaflokks-
ins Sovétríkin formlega niður fyrir
árslok 1991. Taflinu var lokið.
Lýðræði, lög og réttur
Atburðarásin hefði getað orðið
önnur: blóðbað og áframhaldandi
kúgun og ofbeldi í stað frelsis, friðar
og lýðræðisvakningar. En svo fór
ekki. Eins og hendi væri veifað
fjölgaði lýðræðisríkjum heimsins
um rösklega 20, Sovétlýðveldin 15
auk kommúnistalandanna í Mið-
og Austur-Evrópu sem gengu öll
lýðræði og markaðsbúskap á hönd.
Búlgarar, Króatar, Pólverjar, Rúm-
enar, Tékkar, Slóvakar, Slóvenar og
Ungverjar gengu frelsinu fegnir í
ESB og Albanar, Norður-Makedónar,
Svartfellingar og Serbar búast nú til
inngöngu. Til að styrkja umsókn
sína um aðild réðust Albanar á eigin
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Þegar fólkið rís upp
Álagning opinberra gjalda á lögaðila
árið 2019 vegna rekstrarársins 2018
fer fram í september nk.
Forráðamenn lögaðila, sem enn hafa
ekki staðið skil á skattframtali 2019
ásamt ársreikningi, eru hvattir til að
annast skil hið allra fyrsta.
Skráður lögaðili skal ætíð skila
skattframtali vegna undangengins
reikningsárs þrátt fyrir að engin
eiginleg starfsemi eða rekstur hafi
átt sér stað á reikningsárinu.
Félög eiga jafnframt að skila
ársreikningi til ársreikningaskrár.
Skattframtali og ársreikningi ber
að skila rafrænt á skattur.is
Til forráðamanna hlutafélaga,
einkahlutafélaga og annarra skattskyldra
lögaðila um skil á skattframtali 2019
Áminning um
framtalsskil lögaðila
442 1000
rsk@rsk.is
Þjónustuver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
spýtur og með erlendri hjálp í rann-
sókn á dómskerfi landsins með
þeim árangri að nær helmingur
þeirra dómara og saksóknara sem
lentu undir smásjánni hefur látið af
störfum m.a. vegna þess að þeir gátu
ekki gert grein fyrir eignum sínum.
Það er efni í aðra grein.
Af Sovétlýðveldunum 15 afréðu
aðeins Eystrasaltslöndin þrjú að
ganga í ESB. Vonin um innreið lýð-
ræðis, laga og réttar í hin 12 Sovétrík-
in sálugu rættist ekki þegar á reyndi.
Lýðræðiseinkunnin sem Freedom
House gefur Eystrasaltslöndunum
nú er 8,7 í Lettlandi, 9,1 í Litháen
og 9,4 í Eistlandi borið saman við
2,0 í Rússlandi og 3,0 að meðaltali
í gömlu Sovétlýðveldunum 12 að
Eystrasaltsríkjunum frátöldum.
Af þessum 12 ríkjum hafa Georgía,
Moldavía og Úkraína þá sérstöðu að
Evrópuþingið metur þau reiðubúin
til umsóknar um aðild enda eru lýð-
ræðiseinkunnir þeirra á bilinu 5,8 til
6,3, langt fyrir ofan Rússland. Stofn-
un Bandaríska lögfræðingafélagsins,
World Just ice Project, gefur æ fleiri
löndum einkunnir fyrir dómskerfi
og réttar far með því að leggja mat á
m.a. valdmörk og mótvægi við ríkis-
vald, gegnsæi í andstöðumerkingu
við spillingu, virðingu fyrir mann-
réttindum, framfylgd laga o.fl. Stofn-
unin gefur Rússlandi og sjö öðrum fv.
Sovétlýðveldum að meðaltali ein-
kunnina 5,1 fyrir lög og rétt á móti
8,1 í Eistlandi. Lýðræði, lög og réttur
haldast í hendur.
Lýðræði á víða undir högg að
sækja. Fólkið í Hong Kong (lýð-
ræðiseinkunn 5,9; lög og réttur 7,7)
berst nú fyrir lýðræði og réttlæti í
borgríkinu sem var brezk nýlenda
og naut óskoraðs lýðræðis og mann-
réttinda til 1996 og býr nú við ógn og
yfirgang kommúnistastjórnarinnar
í Beijing (lýðræðiseinkunn 1,1; lög
og réttur 4,9). Tvær milljónir manna
sækja suma útifundina til varnar lýð-
ræðinu. Íbúafjöldi Hong Kong er 7,4
milljónir.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
9
-8
7
7
4
2
3
A
9
-8
6
3
8
2
3
A
9
-8
4
F
C
2
3
A
9
-8
3
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K