Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 22
Við skvísurnar í ZikZak tökum svo sannarlega vel á móti haustinu,“ segir
Sigrún Waage, verslunarstjóri
ZikZak í Kringlunni. Hún segir
úrvalið í haust einstaklega veg-
legt. „Við fengum alveg ótrúlega
mikið af fallegum haustfatnaði
nú á dögunum,“ segir Sigrún, full
eftirvæntingar. „Verslunina prýða
nú einstaklega fallegar haust-
vörur í fallegum haustlitum og
mynstrum,“ segir hún. Hún segir
vörurnar henta konum af öllum
gerðum, á öllum aldri og fyrir ólík
tilefni. „Verslunin býður upp á
fjölbreyttan hversdags- og spari-
fatnað fyrir konur á öllum aldri í
öllum stærðum eða stærðunum
36-56,“ segir Sigrún.
Vandaðar og fallegar vörur á
viðráðanlegu verði
Eitt af því sem ZikZak hefur alla
tíð lagt áherslu á er að bjóða upp á
vandaðan fatnað á viðráðanlegu
verði. „Við höfum alltaf haft það að
leiðarljósi að bjóða fallegan fatnað
á góðu verði,“ segir Sigrún. Þá sé
líka mikið lagt upp úr af burða-
þjónustu og hefur verslunin hlotið
viðurkenningar fyrir vel unnin
störf. Hún segir að vöruframboðið
verði stöðugt fram að jólum og að
viðskiptavinir geti þannig treyst
því að hafa úr nógu að velja, óháð
því hvenær þeir komist.
„Það er engin þörf á því að
örvænta fyrir konur sem hafa ekki
tök á að koma til okkar strax, við
verðum með nýjar vörur viku-
lega fram að jólum, þannig að það
ætti alltaf að vera eitthvað nýtt og
ferskt hjá okkur hverju sinni,“ segir
Sigrún. Þá geti viðskiptavinir alltaf
nýtt sér vefverslunina. „Einnig
bendum við á heimasíðuna okkar
þar sem viðskiptavinurinn getur
keypt hvar og hvenær sem er allar
okkar vörur,“ segir hún.
Huggulegheit og haust
fagnaður fram undan
Með haustinu breytist gjarnan
eftirspurnin en á þessum tíma
árs leita viðskiptavinir gjarnan
í huggulegheit og þægindi. „Það
vinsælasta hjá okkur um þessar
mundir eru spari-kósíbuxurnar
sem við erum með og heita Silla
pants, en þær eru nú fáan-
legar í tveimur litum, dökkbláu og
svörtu,“ segir Sigrún. Gaman er að
geta þess að buxurnar eru nefndar
í höfuðið á Sigrúnu, sem er kölluð
Silla, þar sem þetta eru uppáhalds-
buxurnar hennar.
Þá er mikið úrval af fjöl-
breyttum vörum sem endurspegla
þennan árstíma. „Haustvörurnar
hjá okkur einkennast mikið af
skokkum, kjólum og túnikum í
fallegum mynstrum, einnig er frá-
bært úrval af buxum, kósíbuxum
og pleðurbuxum, Elsu buxur eru
með teygju í strenginn og síðast en
ekki síst eru vinsælu shape-bux-
urnar okkar sem móta mitti, rass,
læri og eru með góðum stuðningi,“
segir Sigrún.
Næst á dagskrá er því bara að
taka fagnandi á móti skammdeg-
inu og bjóða viðskiptavinum upp á
spennandi tilboð.
„Næstu daga ætlum við að fagna
haustinu og vera með fullt af frá-
bærum hausttilboðum í versl-
unum okkar,“ segir Sigrún. „Haust-
dagarnir byrja í dag og standa
fram á sunnudag, það verður
brjáluð stemming hjá okkur og
við hvetjum konur til að kíkja til
okkar og skoða flottan fatnað og
fagna haustinu með okkur,“ segir
hún.
Vefverslun og póstlisti
Vefverslun ZikZak er bæði
notendavæn og skilvirk. „Við
afgreiðum pantanir samdægurs
eða strax næsta dag,“ segir Sig-
rún. Hún segir að það sé lygilegt
hversu mikið viðskipti á netinu
Næstu daga ætlum
við að fagna haust-
inu og vera með fullt af
frábærum hausttil-
boðum í verslunum
okkar.
Framhald af forsíðu ➛
Berglind Ásgeirsdóttir, annar eigandi ZikZak, og Sigrún Waage verslunarstjóri eru spenntar fyrir haustinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sillubuxurnar eru sívinsælar og eru
fáanlegar í svörtu og bláu.
Mikið úrval er af fallegum kjólum.
Þessi kjóll var áður á 5.990 kr. og er nú á 2.990 á tilboði.
ZikZak tískuhús er í Kringlunni og er verslunin full af nýjum vörum fyrir haustið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
hafi aukist á skömmum tíma.
Það er ótrúlegt hvað verslun á
netinu hefur verið ört vaxandi,
og nú á síðustu mánuðum hefur
orðið algjör sprenging,“ segir hún.
Sigrún telur að viðskiptavinir
séu orðnir öruggari að versla á
þennan máta. „Svo virðist sem
viðskiptavinurinn sé farinn að
þekkja og treysta pöntunarferl-
inu,“ segir hún.
Þá býður verslunin viðskipta-
vinum núna upp á að skrá sig á
póstlista. „Póstlistinn er einn-
ig nýr af nálinni hjá okkur og
getur fólk skráð sig á póstlistann
hjá okkur á heimasíðunni og á
Facebook-síðunni okkar undir
„Tískuhús ZikZak“, en þar munum
við tilkynna tilboð, afslætti,
viðburði sem verða hjá okkur og
þegar það kemur ný sending,“
segir Sigrún.
Sjá nánar á zikzakverslun.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-B
3
E
4
2
3
A
9
-B
2
A
8
2
3
A
9
-B
1
6
C
2
3
A
9
-B
0
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K