Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 26
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Það er hægt að klæðast Kjólnum á ýmsan hátt. MYNDIR/INSTA­ GRAM/HOT4­ THESPOT Þessar vinkonur hittust á kaffihúsi. Hot4thespot fékk sendar myndir af þeim frá tveimur aðilum. Hér fær Kjóllinn að hitta Sam Smith. Heilmili sumra eru í stíl við Kjólinn. Það var gott að nota Kjólinn í hita- bylgjum sumarsins og ekki verra að skella honum í frystinn fyrst. Stundum kemur það fyrir að fleiri en ein kona mætir í Kjólnum í vinnuna á sama tíma. Það er til kjóll sem er svo vin-sæll að hann er kominn með sína eigin Instagram-síðu. Síðan var sett upp til að hampa kjólnum en líka til að gera góðlát- legt grín að honum og þeim sem klæðast kjólnum. Um er að ræða hvítan síðerma pólýesterkjól með svörtum dopp- um sem fæst í Zöru. Aðdáendur hans hrósa honum fyrir að vera praktískur, henta ólíkri líkams- byggingu og vera á góðu verði. En þetta er ekki bara eins og hver önnur vinsæl flík, heldur hefur þessi tiltekni kjóll vakið undra- verða athygli. The New York Times sagði að kjóllinn hefði sigrað Bretland og sumir segja að það sé varla hægt að fara út í hádegismat í London án þess að sjá kjólinn. Samkvæmt BBC er kjóllinn orðinn svo vinsæll að sumir eru farnir að reyna að fela að þeir séu í „Kjólnum“ með því að lita hann, klippa til að breyta sniðinu eða klæðast honum öfugum. Það þarf því kannski ekki að koma sérlega á óvart að Instagram- síðan hot4thespot, sem er tileinkuð kjólnum, hafi sprottið upp. Þegar þetta er skrifað er síðan komin með rétt yfir 24 þúsund fylgjendur og rúmlega 250 innlegg. Breski stílistinn Faye Oakenfull er stofnandi Instagram-síðunnar hot4thespot, sem hún segir að sé „öruggt svæði fyrir Kjólinn“. Á síðunni sést fólk sem klæðist kjólnum í alls kyns samsetningum og ýmiss konar grín er gert að mynstri kjólsins og ótrúlegum vinsældum hans. Meðal annars má sjá myndir þar sem tvær konur sjást á sama stað eða eru að hittast og eru í Kjólnum á sama tíma og að minnsta kosti ein kona sagði frá því að hún hefði gift sig í Kjólnum. Hvað er það sem útskýrir þessar vinsældir? Eins og áður sagði nefna aðdá- endur Kjólsins ýmsa kosti, en á vefsíðu Refinery29 var reynt að svara því hvers vegna ein flík nær svona gríðarlegum vinsældum með því að ræða við sálfræðinga. Sálfræðingurinn dr. Joan Harvey, sem kennir við Newcastle-háskóla, segir að margir vilji vera hluti af hópnum og klæðast eða eiga það sem aðrir klæðast eða eiga. Hún segir að þetta fólk vilji alls ekki láta sér líða eins og það sé öðruvísi eða líta öðruvísi út. Annar sálfræðingur, prófessor Carolyn Mair, tekur undir þetta og Kjóllinn sem er með eigin Instagram-síðu Einfaldur hvítur kjóll með svört- um doppum hef- ur vakið undra- verða athygli í Bretlandi og sleg- ið svo rækilega í gegn að hann er nú með sína eigin Instagram-síðu með yfir 24 þús- und fylgjendur. segir að þannig líði fólki ekki eins og það sé að missa af einhverju. „Ef okkar samfélagshópur, eða hópurinn sem við viljum vera hluti af, á eitthvað, þá viljum við eiga það líka þannig að okkur líði eins og við séum í takt við hina,“ segir hún. „Því oftar sem við sjáum eitthvað, þeim mun venjulegra verður það og við erum alltaf að bera okkur saman við aðra.“ Það er líka ekkert leyndarmál að áhrifavaldar á Instagram og víðar hafa áhrif og móta tískuna. Mair segir að þeir sýni veruleikaflótta en að af því að þar virðist „venju- legt fólk“ sem lifi óvenjulegu lífi líði öðrum eins og þeir geti það líka. Því ná vörur sem þeir kynna oft vel til fólks. Sálfræðingurinn dr. Lisa Orban bendir líka á að með því að eignast og klæðast því sem er í tísku í augnablikinu sýni fólk hvað það fylgist vel með tískustraumum og margir vilji senda þau skilaboð að þeir séu með á nótunum. Hverjar sem ástæðurnar eru hefur þessi kjóll náð ótrúlegum vinsældum og það verður forvitni- legt að sjá hvort aðrar flíkur nái sömu hæðum. Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS NÝJAR HAUSTVÖRUR TRI VERSLUN WWW.TRI.IS Job.is Þú finnur draumastarfið á 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 9 -C 2 B 4 2 3 A 9 -C 1 7 8 2 3 A 9 -C 0 3 C 2 3 A 9 -B F 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.