Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 26
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Það er hægt
að klæðast
Kjólnum á
ýmsan hátt.
MYNDIR/INSTA
GRAM/HOT4
THESPOT
Þessar vinkonur hittust á kaffihúsi.
Hot4thespot fékk sendar myndir af
þeim frá tveimur aðilum.
Hér fær Kjóllinn að hitta Sam Smith.
Heilmili sumra eru í stíl við Kjólinn.
Það var gott að nota Kjólinn í hita-
bylgjum sumarsins og ekki verra að
skella honum í frystinn fyrst.
Stundum kemur
það fyrir að
fleiri en ein
kona mætir
í Kjólnum í
vinnuna á sama
tíma.
Það er til kjóll sem er svo vin-sæll að hann er kominn með sína eigin Instagram-síðu.
Síðan var sett upp til að hampa
kjólnum en líka til að gera góðlát-
legt grín að honum og þeim sem
klæðast kjólnum.
Um er að ræða hvítan síðerma
pólýesterkjól með svörtum dopp-
um sem fæst í Zöru. Aðdáendur
hans hrósa honum fyrir að vera
praktískur, henta ólíkri líkams-
byggingu og vera á góðu verði.
En þetta er ekki bara eins og hver
önnur vinsæl flík, heldur hefur
þessi tiltekni kjóll vakið undra-
verða athygli.
The New York Times sagði að
kjóllinn hefði sigrað Bretland og
sumir segja að það sé varla hægt að
fara út í hádegismat í London án
þess að sjá kjólinn. Samkvæmt BBC
er kjóllinn orðinn svo vinsæll að
sumir eru farnir að reyna að fela að
þeir séu í „Kjólnum“ með því að lita
hann, klippa til að breyta sniðinu
eða klæðast honum öfugum.
Það þarf því kannski ekki að
koma sérlega á óvart að Instagram-
síðan hot4thespot, sem er tileinkuð
kjólnum, hafi sprottið upp. Þegar
þetta er skrifað er síðan komin með
rétt yfir 24 þúsund fylgjendur og
rúmlega 250 innlegg.
Breski stílistinn Faye Oakenfull
er stofnandi Instagram-síðunnar
hot4thespot, sem hún segir að
sé „öruggt svæði fyrir Kjólinn“.
Á síðunni sést fólk sem klæðist
kjólnum í alls kyns samsetningum
og ýmiss konar grín er gert að
mynstri kjólsins og ótrúlegum
vinsældum hans. Meðal annars
má sjá myndir þar sem tvær konur
sjást á sama stað eða eru að hittast
og eru í Kjólnum á sama tíma og að
minnsta kosti ein kona sagði frá því
að hún hefði gift sig í Kjólnum.
Hvað er það sem útskýrir
þessar vinsældir?
Eins og áður sagði nefna aðdá-
endur Kjólsins ýmsa kosti, en á
vefsíðu Refinery29 var reynt að
svara því hvers vegna ein flík nær
svona gríðarlegum vinsældum
með því að ræða við sálfræðinga.
Sálfræðingurinn dr. Joan Harvey,
sem kennir við Newcastle-háskóla,
segir að margir vilji vera hluti af
hópnum og klæðast eða eiga það
sem aðrir klæðast eða eiga. Hún
segir að þetta fólk vilji alls ekki láta
sér líða eins og það sé öðruvísi eða
líta öðruvísi út.
Annar sálfræðingur, prófessor
Carolyn Mair, tekur undir þetta og
Kjóllinn sem er með
eigin Instagram-síðu
Einfaldur hvítur
kjóll með svört-
um doppum hef-
ur vakið undra-
verða athygli í
Bretlandi og sleg-
ið svo rækilega í
gegn að hann er
nú með sína eigin
Instagram-síðu
með yfir 24 þús-
und fylgjendur.
segir að þannig líði fólki ekki eins
og það sé að missa af einhverju.
„Ef okkar samfélagshópur, eða
hópurinn sem við viljum vera hluti
af, á eitthvað, þá viljum við eiga það
líka þannig að okkur líði eins og
við séum í takt við hina,“ segir hún.
„Því oftar sem við sjáum eitthvað,
þeim mun venjulegra verður það
og við erum alltaf að bera okkur
saman við aðra.“
Það er líka ekkert leyndarmál að
áhrifavaldar á Instagram og víðar
hafa áhrif og móta tískuna. Mair
segir að þeir sýni veruleikaflótta
en að af því að þar virðist „venju-
legt fólk“ sem lifi óvenjulegu lífi líði
öðrum eins og þeir geti það líka. Því
ná vörur sem þeir kynna oft vel til
fólks.
Sálfræðingurinn dr. Lisa Orban
bendir líka á að með því að eignast
og klæðast því sem er í tísku í
augnablikinu sýni fólk hvað það
fylgist vel með tískustraumum og
margir vilji senda þau skilaboð að
þeir séu með á nótunum.
Hverjar sem ástæðurnar eru
hefur þessi kjóll náð ótrúlegum
vinsældum og það verður forvitni-
legt að sjá hvort aðrar flíkur nái
sömu hæðum.
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
NÝJAR HAUSTVÖRUR
TRI VERSLUN
WWW.TRI.IS
Job.is
Þú finnur draumastarfið á
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-C
2
B
4
2
3
A
9
-C
1
7
8
2
3
A
9
-C
0
3
C
2
3
A
9
-B
F
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K