Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 31
Íris Tara Sturludóttir, ráðstefnu­stjóri hjá Grand Hótel Reykja­vík, segir að það skipti í raun ekki máli hvernig viðburð verið er að halda. Hótelið bjóði upp á fjöl­ breytta aðstöðu. „Við erum með 14 fundarsali og opin rými í húsinu og hér er hægt að halda allt frá tveggja manna fundum upp í 500 manna ráðstefnu,“ segir hún. Það er vinsælt að halda árshátíð­ ir og brúðkaup á hótelinu og Íris segir að þau bjóði upp á sali fyrir litlar veislur jafnt sem stórar. „Við erum með sali á 13. hæð hótelsins sem henta vel fyrir minni veislur eins og litlar brúðkaupsveislur eða kvöldverði. Þar er f lott útsýni og gott aðgengi út á svalir,“ segir Íris. Persónuleg þjónusta Hjá Grand Hótel Reykjavík er boðið upp á fagmannlega ráðgjöf varðandi veisluhöld. „Við bjóðum fólki að koma og skoða aðstöðuna og finnum rétt rými fyrir hvern viðburð fyrir sig,“ segir Íris. Alltaf er lögð áhersla á að koma til móts við óskir viðskipta­ vinarins. „Brúðhjón hafa oftast fyrir fram ákveðnar hugmyndir um hvernig dagurinn á að vera og við lögum okkur að því. Þegar fólk hefur ákveðið að halda veisluna á Grand Hótel þá bjóðum við upp á bæði matarsmakk og tertu­ smökkun. Við veitum persónulega þjónustu og fylgjum brúðhjón­ unum alveg að sjálfum deginum í öllum undirbúningi. Það sama gildir fyrir árshátíðir.“ Íris segir vinsælt hjá brúðkaups­ gestum og árshátíðargestum, sem vilja gera vel við sig, að gista líka á hótelinu. „Mörg fyrirtæki bóka herbergi fyrir árshátíðargesti, en fólk sem fer á jólahlaðborð eða villibráðarhlaðborð tekur líka oft gistingu með.“ Svansvottað hótel Grand Hótel Reykjavík leggur mikla áherslu á að vera umhverfis­ vænt hótel. Hótelið er með svans­ vottun, sem er vottun norræna umhverfismerkisins samkvæmt viðmiðunarreglum fyrir hótel. „Allur úrgangur frá okkur er f lokkaður í 26 mismunandi flokka. Við erum með mjög skýra umhverfisstefnu og hugsum mikið út í matarsóun. Við notum ekkert einnota hér á hótelinu eins og plastflöskur eða annað slíkt,“ segir Íris. Aðgengi að húsinu er einnig mjög gott. Það eru næg ókeypis bílastæði við hótelið og gott aðgengi fyrir hjólastóla í nánast öllum sölum hússins. Villibráðarhlaðborð Úlfar Finnbjörnsson, yfirmat­ reiðslumeistari á Grand Hótel Reykjavík, hefur séð um villi­ bráðarhlaðborð á hótelinu undan­ farin 10 ár en hlaðborðið nýtur mikilla vinsælda og allt er lagt í að hafa það sem glæsilegast. Úlfar er margverðlaunaður og hefur gefið út fjölda bóka. Hann gengur undir ýmsum nöfnum svo sem „stjörnu­ kokkurinn“ og „villti kokkurinn“. „Villibráðarhlaðborðið á Grand Hótel Reykjavík fer fram 26. októ­ ber og 1. og 2. nóvember að þessu sinni. Einnig verðum við með villi­ bráðarhlaðborð í svipuðum dúr á Fosshótel Húsavík og Fosshótel Vatnajökli sem er staðsett rétt fyrir utan Höfn í Hornafirði. Þannig að Norðlendingar og Austfirðingar geta líka fengið að njóta þess í ár,“ segir hann. Úlfar segir að hann sé yfirleitt með um 60 rétti í heildina á villi­ bráðarhlaðborðinu, en hann hefur meðal annars hlotið Gourmand­ verðlaunin fyrir bestu villibráðar­ bók í heimi. „Við erum alltaf með klassíska rétti eins og paté, terrine og mús,“ segir Úlfar. „Ég kem svo alltaf með slatta af nýjum réttum á hverju ári til að hafa þetta fjölbreytt.“ Á villibráðarhlaðborðinu er boðið upp á alla villibráð sem má veiða á Íslandi en Úlfar segir að í ár ætli hann líka að bjóða upp á nor­ ræna villibráð, elg til dæmis. Öllu tjaldað til „Annars notum við sem mest úr nærumhverfinu, við notum íslensk ber og jurtir og reynum að vera eins íslensk og við getum fyrir utan þessa örfáu útlendinga sem fá að vera með í leiknum,“ segir Úlfar. „Við gerum alltaf mikið úr þessu. Maturinn er borinn fram á íslensku birki og grjóti og við skreytum með náttúrusteinum og trjám og ýmsu öðru úr náttúrunni. Hlaðborðið án matar vegur fleiri hundruð kíló. Skreytingin á sjálfu hlaðborðinu er þriggja til fjögurra metra há og þar er öllu tjaldað til. Við erum með alls konar upp­ stoppuð dýr héðan og þaðan. Þetta verður eins og veiðiskáli. Svo er lifandi tónlist og veislustjórar svo það verður mikið fjör.“ Jólahlaðborðið verður á sínum stað fyrir jólin og Úlfar segir að þar verði boðið upp á allt þetta klass­ íska ásamt einhverjum tegundum af villibráð. „Við verðum með fullt af léttum réttum líka innan um hefðbundna þunga jólarétti. Við erum til dæmis að leika okkur að gera svolítið öðruvísi rétti úr hangikjöti.“ Bílastæði og börger Grand Brasserie á Grand Hótel Reykjavík var nýlega endurgert. Þar er boðið upp á léttan og fljót­ legan mat úr úrvals hráefnum. „Við höfum talað um að við bjóðum upp á bílastæði og börger,“ segir Úlfar. „Hér er alltaf nóg af stæðum og þú getur lagt hér fyrir utan í hádeginu og verið kominn með hamborgara, létta steik eða aðra létta máltíð eftir 10­15 mínútur.“ Bakaríið í húsinu bakar nánast allt á staðnum og allt er unnið frá grunni. „Ég held það sé óhætt að segja að 98% af því sem bakaríið ber fram sé búið til á staðnum. Við kaupum ekkert tilbúið og setjum þar af leiðandi ekki nein aukaefni í eitt eða neitt,“ segir Úlfar. Mikill metnaður er lagður í allt sem bakað er í bakaríinu allt frá rúnstykkjum upp í súrdeigs­ og steinbökuð brauð. Glæsileg aðstaða og úrvals þjónusta Grand Hótel Reykjavík er með frábæra aðstöðu fyrir alla viðburði, bæði ráðstefnur, fundi, brúðkaup, árshátíðir og stórafmæli. Þar er fyrsta flokks veitingastaður, veislu- þjónusta og handverksbakarí. Villibráðar- og jólahlað- borð hótelsins eru orðin árleg hefð hjá fjölda fólks. Forrýmið í salnum Háteig er smekklega innréttað. Úlfar Finnbjörnsson, kokkur á Grand Hótel, er snillingur í að galdra fram glæsilegar veislur þar sem öllu er tjaldað til. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Íris segir hótelið bjóða upp á sali fyrir alls kyns viðburði. Allt frá tveggja manna fundum upp í 500 manna ráðstefnur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Úr salnum Háteig er gott útsýni yfir Reykjavík. Grand Brasserie er nýuppgert og býður upp á úrval ljúffengra rétta. Við bjóðum upp á sali fyrir litlar veislur jafnt sem stórar. Við erum með sali á 13. hæð hússins sem henta vel fyrir minni veislur. Þar er flott útsýni og gott aðgengi út á svalir. KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 RÁÐSTEFNUR OG VEISLUÞJÓNUSTA 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 9 -8 C 6 4 2 3 A 9 -8 B 2 8 2 3 A 9 -8 9 E C 2 3 A 9 -8 8 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.