Fréttablaðið - 29.08.2019, Page 14
Eyvindarfjörður er fallegur fjörður á Ströndum, beint norður af Ófeigsfirði og skammt frá Drangaskörðum. Innst í firðinum var aldrei búið, enda undirlendi lítið, en utar undir Drangavíkurfjalli er gamalt eyðibýli. Í Landnámabók segir
að fjörðurinn sé kenndur við landnámsmanninn
Eyvind Herröðarson, en bræður hans námu land
aðeins sunnar í Ófeigsfirði og Ingólfsfirði, sem eru
ekki síður fallegir firðir.
Helsta djásn Eyvindarfjarðar er Eyvindarfjarðará
sem á upptök sín í blátærum vötnum sunnan
Drangajökuls. Í henni eru tugir fossa sem eru hver
öðrum glæsilegri, en þeir neðstu, Eyvindarfjarðarár
fossar, þykja tilkomumestir. Yfir þessa einstöku
fossaröð eru tvær göngubrýr sem auðvelda göngu
að Drangaskörðum. Þeir sjást einnig vel af sjó en
þegar vatnið steypist niður hörð berglögin minnir
fossakeðjan helst á hvítan blævæng sem glatt hefur
sjómenn svo öldum skiptir.
Það er ógleymanlegt að skoða Eyvindarfjarðarár
fossa í návígi og finna hvernig undirlagið hristist
undan vatnsflaumnum. Fuglalíf og rekaviðardrumb
ar við ósinn auka síðan enn frekar á upplifunina.
Eyvindarfjörður á sér f lókna sögu en árið 1787
fórst verslunarskipið Fortuna í firðinum með manni
og mús. Skolaði ýmsum varningi á land sem spilltur
sýslumaður að nafni Halldór Jakobsson bauð upp
undir áhrifum, enda töluvert af strandgóssinu
brennivín. Seldi hann sjálfum sér ýmsan varning úr
strandinu á kostakjörum og var vikið úr embætti í
kjölfarið.
Næsta áfall í sögu Eyvindarfjarðar var þegar hann
var seldur ítölskum barón fyrir slikk árið 2006, en sá
sagðist ætla að byggja sér þar sumarbústað. Í staðinn
seldi hann stuttu síðar VesturVerki og síðar HS
Orku vatnsréttindin í Eyvindarfjarðará, sem gerði
fyrirtækjunum kleift að stækka fyrirhugaða Hvalár
virkjun úr 35 MW í 55MW. Um leið voru tugir stór
kostlegra fossa leiddir í gálgann því verði af virkjun
munu þeir allir þurrkast upp.
Í Eyvindarfjörð verður aðeins komist gangandi
eða á báti. Frá bílastæðinu við Hvalárfossa
er um dagsferð að ræða fram og til baka en
við mælum með að taka með tjald, gista
við ósinn og ganga þaðan upp og niður
með fossunum. Þetta eru ósnortin víð
erni eins og þau gerast best – víðerni
sem vonandi fá að vera í friði um
ókomnar aldir.
Feigir fossar í
Eyvindarfirði
Tilfinningin
að standa við
kraftmikla
Eyvindar-
fjarðarárfossa
er engu lík.
MYND/TG
Úr fjarlægð líkjast Eyvindarfjarðarárfossar hvítri blæju. MYND/ÓMB
Kyrrð og ótrúleg náttúrufegurð einkennir botn Eyvindarfjarðar – enda fjörðurinn afskekktur. MYND/TG
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
TILVERAN
2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-9
1
5
4
2
3
A
9
-9
0
1
8
2
3
A
9
-8
E
D
C
2
3
A
9
-8
D
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K