Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 10
Fólk fær mikla
endurheimt úti í
náttúrunni, sérstaklega í
stressandi borgarumhverfi;
prófaðu bara að liggja í grasi
og horfa upp í tré.
Katrín Karlsdóttir
skipulagsverk-
fræðingur
Græn svæði eins og almenningsgarðar, skóg lend i , móa r og engi eru hluti af vistkerfi borga. Gr æn svæði ý t a
undir líkamlega virkni og andlega
slökun og eru mikilvægt athvarf
frá daglegu amstri og líka umferð
og hávaða. Tré framleiða súrefni
og bæta loftgæði. Ár, lækir, vötn,
tjarnir og gosbrunnar eru líka hluti
af þessu umhverfi. Græn svæði geta
líka verið farvegur fyrir öruggar
göngu- og hjólaleiðir, svæði þar sem
fólk hittist, skemmtir sér saman
og stundar líkamsrækt. Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin (WHO)
bendir á að kyrrseta, sem tengist því
að erfitt sé að ganga í umhverfinu og
skorti á svæðum þar sem hægt er að
stunda ýmsa hreyfingu, beri ábyrgð
á um 3% dauðsfalla á heimsvísu.
Græn svæði eru líka mikilvæg
fyrir andlega heilsu. Það að hafa
aðgang að grænum svæðum getur
minnkað heilsuójöfnuð, aukið vel-
líðan og hjálpað til við meðferð
geðsjúkdóma. Samkvæmt WHO er
líka líklegt að líkamsrækt í náttúru-
legu umhverfi hjálpi til við að vinna
bug á vægu þunglyndi og minnka
streitu.
Gróður í daglegu umhverfi
Katrín Karlsdóttir er skipulags-
verkfræðingur og er enn fremur
Daglegt umhverfi þarf að vera þannig
að gróður og náttúra fléttist inn í það.
Græn svæði eru eins og bólusetning
fyrir framtíðina og hafa mikil áhrif á
framtíðarlýðheilsu borgarbúa. Mikil-
vægt er að standa vörð um réttinn til
leiks og hreyfingar fyrir börn.
Bólusetning
með grænum
svæðum
með meistarapróf í umhverfissál-
fræði. Hún segir aðgang að grænum
svæðum mjög mikilvægan. Daglegt
umhverfi þurfi að vera þannig að
gróður og náttúra fléttist inn í það.
Hún hefur sérstaklega skoðað börn
og borgarumhverfið. Hún segir
margar umfangsmiklar rannsóknir
til sem og lærðar greinar og niður-
staðan sé öll á einn veg.
„Fyrir börn sem lifa við græn
svæði og fá þessa náttúru inn í sitt
daglega líf hefur þetta áhrif á hreyfi-
þroska, félagsþroska og andlegan
þroska. Það eru minni líkur á að
börn sem alast upp nærri grænum
svæðum þrói með sér geðræn
vandamál. Það mætti leggja meiri
áherslu á þennan hóp. Umhverfi
sem er gott fyrir börn er gott fyrir
alla, eins og varðandi öryggismál,
aðgengi, upplifun og annað. Það er
talað um að jafnvel lyktin af gróðri
geti haft áhrif. Það eru til rann-
sóknir sem segja að börn sem eru á
grænum svæðum í frímínútum, fari
í útikennslu eða eru í náttúru hafi
meiri einbeitingu það sem eftir lifir
dags en þau sem eru inni eða eru
bara á malbiki. Þetta getur hjálpað
krökkum við að taka inn aðrar upp-
lýsingar,“ segir Katrín og bendir á að
það sé því mikilvægt að ákveðinni
náttúru sé f léttað inn í leiksvæði
barna.
„Það er hægt að nýta útiveruna í
svo mikinn lærdóm,“ segir Katrín,
sem bendir á ákveðna hættu í því
þegar verið er að setja færanlegar
kennslustofur niður á útisvæði
barna við skóla.
„Þarna er verið að mæta þörf sem
maður skilur svo vel en á sama tíma
er verið að minnka hreyfisvæði
barnanna og taka af þeim ákveðinn
rétt til hreyfingar.“
Þjónusta er þroskaþjófur
Hún segir dæmi um að börn séu
keyrð bæði í skóla og tómstundir,
„oft vegna þess að það er langt í
það sem þau eru að sækja eða að
umhverfið er ekki nógu öruggt.
Inga Rún
Sigurðardóttir
ingarun@frettabladid.is
arnir hafa tilgang en eru bara fyrir
ákveðinn hóp fólks,“ segir hún en
Reykjavík er græn borg og þá meðal
annars fyrir tilstilli allra einkagarð-
anna sem eru úti við götu og setja
svip sinn á borgina.
„Það þarf þéttingu í borg eins og
Reykjavík til þess að gefa möguleika
á bíllausum samgöngum en það er
að mörgu að hyggja. Það er hægt
að þróa og byggja á grænum reit og
hann er áfram grænn og sjálf bær.
Það er hægt að gera þetta mjög vel,“
segir Katrín.
Róandi munstur
Útivera og græn svæði hafa mikil
áhrif á fólk. „Bara það að vera úti og
fá súrefnið er mikilvægt. Það er líka
talað um að munstrin í náttúrunni
hafi áhrif eins og í trjám. Tré eru
með stofn, svo koma greinar út frá
stofninum, sem greinast í ennþá
minni greinar. Þarna er ákveðinn
skali, frá stóru niður í lítið. Þetta
hefur róandi áhrif á sálina. Fólk fær
mikla endurheimt úti í náttúrunni,
sérstaklega í stressandi borgarum-
hverfi; prófaðu bara að liggja í grasi
og horfa upp í tré. Maður finnur
hvað þetta gerir manni gott; að
koma heim eftir erfiðan dag og
leggjast út í grasið. Ef börnin alast
upp við þetta taka þau það með sér
inn í fullorðinsárin og búa að því.“
Hún segir að öldugangur í vatni
hafi að sama skapi róandi áhrif og
einnig logandi eldur í arni eða varð-
eldur en flestir þekkja áreiðanlega
notalegu tilfinninguna sem felst í
því að horfa í eldinn.
„Það er erfitt að setja einhverjar
krónutölur á geðheilsu borgarbúa
í framtíðinni en í öllum lýðheilsu-
pælingum og hvernig við ölum upp
heilbrigða einstaklinga þá finnst
mér krónur og aurar ekki skipta
máli. Það á ekki að þurfa að setja
verðmiða á þetta því þetta er heilsa
fólks. Þetta er ákveðin trygging og
leið til að fyrirbyggja sjúkdóma
eins og bólusetning; það er verið
að fyrir byggja það að einhver verði
veikur í framtíðinni. Ég get ekki
ímyndað mér að einhver sé á móti
því. Það er verið að hjálpa fólki
við að láta sér líða vel og fá endur-
heimt,“ segir hún og rifjar upp vísu
sem amma hennar kenndi henni og
hljómaði svona hjá henni en hefur
þekkst í nokkrum myndum:
Þegar sál þín er hrelld,
þessum hlýddu orðum.
Gakktu með sjó og sittu við eld,
svo kvað völvan forðum.
„Þetta er ekkert nýtt. Þetta er eitt-
hvað sem fólk hefur vitað öldum
saman. Náttúran gerir manni gott
og er nærandi.“
Þetta er þjónusta sem foreldrarnir
veita, sem er kannski ákveðinn
þroskaþjófur. Ef umhverfið hjá skól-
anum býður ekki upp á gróður eða
tengingu við náttúruna fer barnið
í gegnum vikuna á þess að fá neitt
nærandi frá náttúrunni,“ segir hún
og ítrekar mikilvægi þess að varð-
veita grænu svæðin í umhverfi
barna, eins og til dæmis við skóla.
„Það er þægilegt að hafa mal-
bikaða skólalóð og ekki mikill
viðhaldskostnaður. Ef þú ert með
græn svæði og gróður ertu kominn
í annan rekstrarpakka og því er
þetta oft það fyrsta sem er skorið
niður. Það hefur verið erfitt hingað
til að setja krónutölu á ávinninginn
af því að hafa grænu svæðin,“ segir
Katrín en segir það auðveldara nú
þegar stöðugt bætist við rannsóknir
sem sanni mikilvægi grænna svæða.
Lungu borgarinnar
„Það er ekki lengur spurning um
hvort þetta sé mikilvægt eða ekki
heldur hvernig við eigum að fram-
kvæma þetta; hvernig við eigum
að hugsa borgina og nærumhverfi
barna þannig að við séum ekki
að taka af þeim réttinn til leiks og
hreyfingar. Við erum að tala um
framtíðarlýðheilsu borgarbúa,
þetta hefur áhrif á svo marga. Þetta
snýst um nærumhverfið, þessar
dagsdaglegu ferðavenjur, maður er
ekki alltaf uppi í Heiðmörk eða Ell-
iðaárdal,“ segir hún en ítrekar samt
mikilvægi stærri svæða eins og
þessara. Ef Amason-regnskógurinn
er lungu heimsins þá er eru þessi
svæði eins og Elliðaárdalurinn og
Heiðmörk lungu fólksins sem býr á
höfuðborgarsvæðinu.
Hún segir að í þéttingu byggðar
sé oft notast við svokallaða rand-
byggð. „Það hafa verið skipulögð
mörg ný svæði þar sem byggt er
alveg við lóðamörk og ekkert skilið
eftir nema bara götustæði. Það eru
oft skemmtilegir garðar í miðjunni
en þeir eru einkagarðar. Það tekur
ákveðna upplifun úr hverfinu, garð-
TILVERAN
2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-B
8
D
4
2
3
A
9
-B
7
9
8
2
3
A
9
-B
6
5
C
2
3
A
9
-B
5
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K