Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 34
Við erum með nokkrar gerðir af tilbúnum bökkum. Vinsælastir eru snittu-
bakkarnir, samlokubakkarnir og
spjótbakkarnir en sætu bakkarnir
og grænmetisbakkarnir hafa ekki
síður slegið í gegn. Við getum einn-
ig komið með hugmyndir að ann-
ars konar bökkum ef óskað er eftir
því. Það er bara um að gera að leita
til okkar og við getum aðstoðað
með ýmsum hætti,“ segir Jói Fel.
Jói Fel býður upp á meira en
veislubakka en veisluterturnar
hans eru oftar en ekki mið-
punkturinn á glæsilegu veislu-
borði. „Veisluterturnar hjá okkur
er hægt að fá í nokkrum útfærslum
sem hægt er að skoða inni á
vefnum hjá okkur. Vinsælasta
tertan okkar er Englatertan. Hún
er ekta súkkulaðiterta sem er sígilt
hnossgæti. Einnig er vinsælt að
velja girnilegar kökur á staðnum
úr kökuborðinu okkar. Síðan má
ekki gleyma steinbökuðu veislu-
brauðunum okkar, þau eru frábær
með alls konar ostum, pylsum og
skinkum.“
Margir vilja bjóða upp á góða
súpu eða salat sem þeir útbúa
sjálfir. Jói segir að þá séu steinbök-
uðu ítölsku brauðin hans punktur-
inn yfir i-ið. „Þau eru matarmikil
með stökkri skorpu og gleðja unga
sem aldna.“
Einfaldar lífið
Af nýjungum sem veisluþjónusta
Jóa Fel býður upp á má nefna
vegan snittur. „Það er alltaf að
verða meiri og meiri eftirspurn
eftir bökkum sem höfða til græn-
keranna og í því samhengi má
heldur ekki gleyma grænmetis-
bakkanum okkar, hann er einstak-
lega litríkur, ferskur og hollur,“
segir Jói.
„Síðan erum við nýkomin með
tvær stærðir af makkarónubökk-
um, en makkarónur eru mjög
fallegar og skrautlegar á veislu-
borðinu.“
Jói segir að hægt sé að einfalda
líf sitt mikið með því að bjóða
upp á tilbúna veislubakka. „Það er
minna stress, minni tími í innkaup
og snúninga og þá verður einnig
meiri tími til að njóta og slaka á,“
segir hann.
Það þarf ekki að panta veislu-
bakka með miklum fyrirvara.
„Fyrir minni veislur eða fyrir
fundarkaffið þá er gott að panta
með dagsfyrirvara, en fyrir stærri
veislur þá er best að hafa samband
sem fyrst við okkur svo við getum
aðstoðað við undirbúninginn. Það
er ágætt að miða við 3 daga áður en
veislan er haldin,“ segir Jói.
Veisluþjónusta Jóa Fel leggur
fyrst og fremst áherslu á að veita
góða þjónustu og bjóða upp
á góðar veitingar sem höfða
til breiðs hóps viðskiptavina.
„Veisluþjónustan hefur verið stór
og mikilvægur hluti af rekstri
fyrirtækisins frá upphafi. Það eru
alltaf nýir straumar og stefnur í
gangi sem gerir vinnuna í kringum
veisluþjónustuna svo skemmti-
lega og áhugaverða. Síðan má segja
að viðskipavinirnir eru alltaf að
verða meira meðvitaðir um gæði
á matvælum og því skiptir miklu
máli að vera með fjölbreytileika í
vöruframboði. Við leggjum mikla
áherslu á faglega þjónustu og
mikil gæði sem skilar sér vonandi í
ógleymanlegri veislu,“ segir Jói.
Gómsætir
veislubakkar og
girnilegar kökur
Veisluþjónusta Jóa Fel býður upp á mikið úrval af
veislubökkum sem henta fyrir ýmis tækifæri, allt frá
litlu og huggulegu saumaklúbbskvöldi yfir í fjölmennar
stórveislur eða bara til að brjóta upp hversdaginn með
óvæntri og skemmtilegri veislu fyrir sig og sína.
Jói Fel býður upp á fjölbreytta veislubakka. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Girnilegur vegan Bakki frá Jóa Fel.
Jói Fel er með
nokkrar tegundir
af pinnamat.
Glæsilegur snittu-
bakki sem hentar
ýmsum tilefnum.
Veisluþjónustan
hefur verið stór og
mikilvægur hluti af
rekstri fyrirtækisins frá
upphafi. Það eru alltaf
nýir straumar og stefnur
í gangi sem gerir
vinnuna skemmtilega.
8 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RRÁÐSTEFNUR OG VEISLUÞJÓNUSTA
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
9
-8
C
6
4
2
3
A
9
-8
B
2
8
2
3
A
9
-8
9
E
C
2
3
A
9
-8
8
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K