Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 38
VEISLA Í VÆNDUM?
TILVALIÐ FYRIR VEISLUNA, ÁRSHÁTÍÐINA,
RÁÐSTEFNUR OG FLEIRA
GLÆSILEGIR SALIR, FRÁBÆR AÐSTAÐA
OG FJÖLBREYTTIR MATSEÐLAR
www.keahotels.is
Hótel Kea | Hafnarstræti 87 - 89 | Sími 460 2000 | kea@keahotels.is
Hér eru nokkur góð ráð fyrir þá sem eru að fara á vinnuráðstefnu.
l Ákveddu hvað þú vilt fá út úr
ráðstefnunni, hvort sem það er
að hitta fólk, skapa tengsl eða
læra. Það hjálpar þér að for
gangsraða.
l Reyndu að komast að því hverjir
verða á ráðstefnunni með því
að skoða dagskrána og ræða við
aðra gesti. Ef þú veist hverja þú
getur hitt getur það hjálpað þér
við undirbúning, sem getur bæði
hjálpað þér að vekja athygli og
auðveldað samræður.
l Tengstu öðrum ráðstefnugestum
í gegnum samfélagsmiðla, til
dæmis með því að nota myllu
merki ráðstefnunnar. Það getur
auðveldað þér að komast inn í
umræður, sjá hverjir koma og
leitt til þess að þú kynnist ein
hverjum.
l Sofðu nóg. Það er sérstaklega
mikilvægt á ráðstefnum, því
svefninn fer oft forgörðum,
einkum ef þú ert að ferðast. Ekki
vanmeta góðan nætursvefn. Þú
fylgist betur með, lærir betur og
það verður auðveldara að hitta
nýtt fólk.
l Passaðu mataræðið. Það er
auðvelt að klúðra mataræðinu á
ráðstefnu, ekki síst ef maður þarf
að ferðast, en svefn, hreyfing
og mataræði hefur mikil áhrif
á orkustig og skap, svo það þarf
að passa vel upp á þessa þætti og
jafnvel hafa með sér nesti.
Góð ráð fyrir
ráðstefnur
Það er hægt að undirbúa sig fyrir
ráðstefnur á ýmsan hátt.
NORDICPHOTOS/GETTY
Eitt af því sem einkennir ráðstefnur, og raunar öll mannamót, er kaffineysla. Því er
alltaf þörf á kaffibollum en ein
nota kaffibollar geta verið allt að
þrjátíu ár að brotna niður í nátt
úrunni. Það er því mikilvægt að
kaffibollarnir séu úr umhverfis
vænu efni eða, sem er enn betra,
úr endurnýtanlegum umbúðum.
Sama á við um vatn.
Leiddu hugann að kolefnisfót
sporinu sem fylgir ráðstefnunni.
Þá er til dæmis hægt að hafa í
huga atriði eins og hvort gestirnir
eða starfsfólk þurfi að ferðast
langar vegalengdir til að komast á
staðinn.
Ein áhrifaríkasta leiðin til
þess að leggja sitt af mörkum til
umhverfisins er að draga úr neyslu
dýraafurða. Það er því gott að hafa
í huga þegar veitingar eru skipu
lagðar að dýraafurðir þurfa ekki
alltaf að vera þungamiðjan, enda
mikið af öðrum spennandi val
möguleikum í boði.
Þrjú ráð fyrir
umhverfisvænni
ráðstefnur
Það er mikilvægt að kaffibollarnir
séu úr umhverfisvænu efni.
Sælla er að gefa en þiggja. Það ber vott um virðingu og hlýhug að koma færandi hendi
með óvæntan glaðning á fundinn
eða í veisluna. Það gerir þeim sem
þiggur gjöfina ljóst að hann skiptir
máli og hvetur hann jafnvel til
dáða. Gjafir uppskera falslaust
bros og bros eru uppspretta orku
og vináttu.
Gjöf er líka merki um vináttu og
ósk um áframhaldandi samfylgd.
Hún gæti til dæmis innihaldið
konfekt, vínflösku, leikhúsmiða,
Gjafir sem gleðja
Það kætast allir yfir óvæntum glaðningi.
geit eða brunn í Afríku í þínu
nafni, lottómiða eða hvaðeina
skemmtilegt.
Handskrifaður þakkarvottur
er líka mikils virði eða jafnvel
óvæntur bónus á góðri stundu og
gefur þiggjandanum til kynna að
hann sé mikils virði. Í þakkar
votti er hægt að skrifa hvers virði
þiggjandinn er þeim sem gefur og
hvað gerir hann sérstakan. Þá er
ekki annað eftir en að réttu honum
bréfið og þakka fyrir komuna og
samveruna.
12 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RRÁÐSTEFNUR OG VEISLUÞJÓNUSTA
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
9
-B
3
E
4
2
3
A
9
-B
2
A
8
2
3
A
9
-B
1
6
C
2
3
A
9
-B
0
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K