Fréttablaðið - 29.08.2019, Page 48
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Sigurgeirs Jónssonar
framhaldsskólakennara.
Guðrún S. Óskarsdóttir
Óskar Sigurgeirsson Ragnheiður Þorkelsdóttir
Arnar Jón Sigurgeirsson Helena Árnadóttir
Harpa, Emma og Orri
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Guðmundsdóttir
frá Skálum á Langanesi,
lést fimmtudaginn 15. ágúst sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð
og vinarhug. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Nausts á Þórshöfn, fyrir
einstaka umhyggju og hlýju. Guð blessi ykkur öll.
Elísabet M. Jóhannsdóttir Páll Brynjarsson
Sumarrós Kristín Jóhannsdóttir
Guðmundur Jóhannsson Sigurrós Jónasdóttir
Gunnar Hólm Jóhannsson Sigurborg Hulda
Sigurðardóttir Söring
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir,
Erna Finnsdóttir
lést í hjúkrunarheimilinu Sóltúni
23. ágúst. Útförin fer fram frá Áskirkju,
fimmtudaginn 29. ágúst kl. 15.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
minningar- og styrktarsjóð Sóltúns.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hallgrímur Geirsson Aðalbjörg Jakobsdóttir
Kristín Geirsdóttir Freyr Þórarinsson
Finnur Geirsson Steinunn Kristín Þorvaldsdóttir
Áslaug Geirsdóttir
Ástkær stjúpsonur okkar,
bróðir og stjúpbróðir,
Eymundur Snatak
Matthíasson Kjeld
er látinn.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni kl. 15
þriðjudaginn 3. september.
Þórir Matthíasson Kjeld
Halldór Blöndal Marcella Iñiguez
Pétur Blöndal Matthías Kjeld
Ragnhildur Blöndal Alfred Jens Kjeld
Stella Blöndal Alexandra Kjeld
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gylfi Þór Ólafsson
Kirkjuvegi 1, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 22. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
þriðjudaginn 3. september kl. 13.
Kristín Gestsdóttir
Dóra Magda Gylfadóttir Steindór Einarsson
Ólafur Þór Gylfason Guðmunda Sigurðardóttir
Gestur Arnar Gylfason Siv Mari Sunde
Svandís Gylfadóttir Friðrik P. Ragnarsson
Guðjón Helgi Gylfason Anna Hulda Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Lilja Guðmundsdóttir
Furugrund 38,
lést í faðmi fjölskyldunnar 23. ágúst á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju þann
3. september klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknar- og vinafélagið Bergmál.
Eggert Guðmundsson
Kolbrún Dögg Eggertsdóttir Carmine Impagliazzo
Sólrún Tinna Eggertsdóttir Mathias Warnecke
Guðmundur Eggertsson Elín Mjöll Lárusdóttir
Þuríður Elva Eggertsdóttir Michael Popovic
og barnabörn.
Stjúpmóðir okkar og frænka,
Maj-Lis Tómasson
María Karlsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
Víðimel 42, Reykjavík,
lést föstudaginn 16. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu
föstudaginn 6. september klukkan 15.
Ragnhildur Benediktsdóttir
Þorgerður Benediktsdóttir
Leena Täubler
Elskulegur eiginmaður minn og vinur,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Ómar Kristvinsson,
kjötiðnaðarmaður,
Frostafold 141, Reykjavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
föstudaginn 23. ágúst.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju, mánudaginn
2. september klukkan 13.
Emma Þórunn Blomsterberg
Þórdís María Blomsterberg Þorgeir Eyberg
Heiðar Örn Ómarsson Sólveig S. Ólafsdóttir
Anna Ósk Ómarsdóttir Gunnar Þór Birgisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna Gestsdóttir
ljósmóðir,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans 25. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju 2. september kl. 15.00.
Marín Magnúsdóttir Knud Degn Karstensen
Þorbjörg Magnúsdóttir Kristján Jónatansson
Elín Magnúsdóttir Pálmi Guðmundsson
Trausti Magnússon Guðný Anna Vilhelmsdóttir
og allir yngri afkomendur, stórir og smáir.
Elskulegur eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ásgeir Guðnason
rafeindavirkjameistari, Sléttuvegi 23,
lést að heimili sínu miðvikudaginn
21. ágúst. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Sveinfríður Ragnarsdóttir
Líba Ásgeirsdóttir
Guðmundur Ásgeirsson
Embla Dís Ásgeirsdóttir
Kristín Guðjónsdóttir
Hildur Guðjónsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Haukur á einum af gæðingunum, þessi heitir Dökkvi.
Það er svo ungleg rödd sem svarar í símann á Röðli að ég efast í fyrstu um að um réttan Hauk sé að ræða en þetta reynist vera bóndinn Haukur Pálsson sem er
níræður í dag. „Ég á nokkra afkomendur
sem heita Haukur líka en ég er orginal-
inn,“ segir hann hlæjandi. Hann kveðst
yfirleitt hafa verið hraustur um dagana
og því vel settur.
Haukur er ekkjumaður og býr einn
en kveðst heimsækja dæturnar í bænum.
„Þær eru tvær, ég á ekki f leiri börn,
hvorki framtalin né óframtalin,“ tekur
hann fram. Spurður hvort hann sjái um
sig sjálfur svarar hann: „Já, svona gróft
séð. Ég er kannski ekki nógu nákvæm-
ur með gluggatjöldin en þá hlaupa
afkomendur undir bagga!“
Spurður út í búskapinn kemur í ljós
að Haukur á nokkrar kindur og rúm-
lega hundrað hross. „Ég er í blóðtök-
unni, tek blóð úr fylfullum hryssum sem
fyrirtækið Ísteka framleiðir frjósemislyf
úr fyrir svína- og nautgriparækt. Svolítil
folaldasala er til útlanda líka, mest til
Þýskalands.“
Bærinn Röðull er skammt frá Blöndu-
ósi og Haukur kveðst eiga tvær aðrar
jarðir í nágrenninu, svo hann hafi hross-
in í heimahögum. „Ég nota ekkert afrétt-
inn en ég rak þangað meðan ég var með
mörg hross. Þegar mest var voru þau um
þrjú hundruð.“ Hann kveðst dunda við
að temja tryppi. „Ég á nú enga reiðhöll
en það er gott pláss í fjárhúsunum til að
bandvenja.“ Þegar hann var yngri kveðst
hann hafa verið girðingaverktaki og
líka ökukennari. Nú er hann nýkominn
heim úr kaupstaðarferð til Sauðárkróks
á bílnum sínum, Ford 350, með langan
vagn aftan í.
Inntur eftir þátttöku í félagslífinu
upplýsir Haukur að hann sé í tveimur
veiðifélögum, Laxár á Ásum og Blöndu.
„Svo fer ég í hestaferðir með dóttursyni
mínum, Hauki Garðarssyni í Hvammi í
Vatnsdal, hann rekur ferðaskrifstofuna
Íslandshesta. Ég fór í sumar með honum
suður Kjöl og til Þingvalla með trúss á
rútubíl.“ Sjónin er fín, að sögn Hauks.
„Ég á engin gleraugu ennþá, fæ mér þau
þegar ég verð gamall. Les símaskrána
gleraugnalaus en hún fer nú að fara úr
gildi og það kemur engin ný!“
Haukur syngur ef hann fær tækifæri
til þess að eigin sögn og það tækifæri
ætti að skapast í dag, því eflaust verður
fjör í afmælinu. „Það eru allir velkomnir
hingað að Röðli frá hádegi og fram á
næsta morgun. Dætur mínar og aðrir
afkomendur sjá um þetta,“ segir Hauk-
ur. „Ég geri ekki neitt, þó ég sé drjúgur
með mig.“ gun@frettabladid.is
Á engin gleraugu ennþá
Aldurinn fer vel með Hún-
vetninginn Hauk Pálsson,
bónda á Röðli, sem heldur
upp á níræðisafmælið í dag.
1910 Matthías Einarsson læknir framkvæmir fyrsta
keisaraskurð á Íslandi, þar sem bæði móðir og barn lifa.
1943 Sundhöll Hafnarfjarðar er opnuð.
1944 Í Ísafjarðardjúpi veiðist 300 kílógramma túnfiskur.
1948 Baldur Möller verður skákmeistari Norðurlanda,
fyrstur Íslendinga.
1971 Kirkjan á Breiðabólstað á Skógarströnd brennur
til grunna vegna gastækja og á sama tíma kviknar í bíl
sóknarprestsins.
1992 Kvikmyndin Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu
Jóhannesdóttur er frumsýnd. Hún fjallar um strand
franska rannsóknarskipsins Pourquoi pas?
Merkisatburðir
2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
9
-8
7
7
4
2
3
A
9
-8
6
3
8
2
3
A
9
-8
4
F
C
2
3
A
9
-8
3
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K