Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 54

Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 54
VIÐ FÆÐUMST OG HVERFUM, ALLT FJARAR ÚT, EYÐIST OG VERÐUR AÐ ENGU, ALVEG EINS OG MUNSTRIÐ. EN HVER HLEKKUR ER MIKILVÆGUR.Það má segja að starf listamannsins sé eins og mantra því hann þarf alltaf að koma til-finningum og skynj-unum í eitthvert efni,“ segir Margrét þar sem hún er stödd í Grafíksalnum. Á sýningunni For- kostulegt og fagurt er hún með blöndu af nýjum og eldri verkum. „Ég byrjaði að vinna út frá frönsku veggfóðri í upphafi þessarar aldar þegar ég var á árs starfslaunum og dvaldi aðallega á vinnustofum Cité des Arts í París. Það þema fór að ásækja mig þegar mér var sagt frá formóður minni í hreinan kven- legg og undirstrikar hvað DNA er sterkt í kvenleggnum þrátt fyrir marga ættliði. Svo var líka annað. Ég sá lítið af málverkum á þessum tíma en fannst hönnun og tækni orðin áberandi í listinni á kostnað frumaflsins. Listiðnaðarmaðurinn var alltaf að fá hugmyndir frá lista- manninum svo ég ákvað að snúa því við og taka hugmyndir mínar frá listiðnaðinum.“ Margir kringlóttir f letir mynda eitt verkið á sýningunni í Grafík- salnum. Það er úr endurunnum pappír. „Tilveran virðist gerð í ein- hvers konar kerfi. Þegar ég var að setja þetta verk upp þá reyndi ég að gera það án hugsunar en var í veru- legum erfiðleikum því það mynd- aðist alltaf munstur,“ lýsir Margrét. Hún kveðst farin að nota vatnsliti á pappír í meira mæli en áður. „Slík verk eru auðveldari viðfangs en olía á striga. Ég þarf ekki vinnustofu til að gera þau, heldur get ég verið með þau á borði eða gólfi og stundum á vegg.“ Það listaverk sem myndar þunga- miðju sýningarinnar er frá árunum 2008 og 9, málað með eggtemperu sem Margrét bjó til. „Þá dvaldi ég í Kjarvalsstofu í París, ég var þar þegar hrunið varð, það var hræði- legur tími, krónan einskis metin og ekkert hægt að nota Visa eða milli- færa,“ lýsir hún. Á öðrum vegg er mynd, unnin með sömu aðferð, að verða hrörnuninni að bráð, máln- ingin er tekin að f lagna og agnir að sáldrast niður á gólf. „Þetta á að hrynja,“ segir Margrét og útskýrir nánar. „Það er forgengileikinn sem ég vinn með. Við fæðumst og hverf- um, allt fjarar út, eyðist og verður að engu, alveg eins og munstrið. En hver hlekkur er mikilvægur, líka saga og líf hvers einstaklings og slíkt á ekki að lítilsvirða í krafti valds og peninga.“ Forkostulegt og fagurt er önnur einkasýning Margrétar á þessu ári Vinnur með forgengileikann Forkostulegt og fagurt nefnist myndlistar- sýning Margrétar Jónsdóttur listmálara í Grafíksalnum við Tryggvagötu 17. „Þegar ég var að setja þetta verk upp þá reyndi ég að gera það án hugsunar en lenti í verulegum erfiðleikum,“ segir Margrét. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hér notar Margrét eggtemperu að fornum sið sem hún gerði sjálf. Vatnslitir á pappír. Eitthvað sem létt er að vinna með, að sögn listakon- unnar. og hún stendur bara út þessa viku. Auk þess tekur hún þátt í hinni stóru samsýningu Umhverfing á Snæfellsnesi. Á fimmta tug einkasýninga á Margrét að baki, enda hefur hún starfað sem myndlistarmaður í tæp 50 ár og stundað kennslu í 27 ár, bæði við framhaldsskóla, grunn- skóla og myndlistarskóla. Einnig unnið við grafíska hönnun, rekið auglýsingastofu og gallerí. Verk eftir hana eru í eigu helstu lista- safna landsins. Hvað? Hvenær? Hvar? Fimmtudagur hvar@frettabladid.is 29. ÁGÚST 2019 Tónlist Hvað? Þekktar aríur og íslensk ljóð Hvenær? 12.00-12.30 Hvar? Fríkirkjan við Tjörnina Flytjendur eru Marta Kristín Friðriksdóttir sópran og Antonía Hevesi píanóleikari. Aðgangseyrir er 1.500 og ekki tekið við kortum. Hvað? Sumarjazz Hvenær? 17.00 Hvar? Salurinn, Kópavogi Hot Eskimos flytur útsetningar á íslenskri popp-, rokk- og paunk- tónlist, auk erlendra laga og frum- samins efnis. Karl Olgeirsson píanóleikari, Jón Rafnsson kontra- bassaleikari og Kristinn Snær Agnarsson trommuleikari skipa sveitina. Aðgangur er ókeypis og opið á barnum. Hvað? Systkinatónleikar Hvenær? 20.30 Hvar? Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar, Laugarnestanga Guðfinnur og Kristín Sveinsbörn syngja saman sönglög Árna Thor- steinssonar, þýsk söngljóð eftir Loewe og Schubert og brot úr óperum eftir Mozart og Bizet. Með þeim leikur Elena Postumi á píanó. Gestasöngvari er Marta Kristín Friðriksdóttir, sópran. Útgáfa Hvað? Útgáfuhóf, upplestur og spjall Hvenær? 18.00 Hvar? Tjarnarbarinn, Tjarnarbíói Leikritið Bardagarassar eftir spænsku leikskáldin Patrícia Pardo og Guadalupe Sáez kemur út á íslensku í dag, þýtt af Elíasi Knerri og Guðrúnu H. Tulinius. Fræðsla og göngur Hvað? Dýfum okkur til Denver Hvenær? 18.00-20.00 Hvar? Hönnunarsafn Íslands, Garða- torgi, Garðabæ Tristan Elizabeth Gribbin býður gestum í dýfu til Denver. Einnig fá þeir að prófa hugleiðslu í sýndar- veruleika frumkvöðlafyrirtækisins Flow og fá leiðsögn um sýninguna Borgarlandslag með Paolo Gian- francesco. Hvað? Listaverkin kringum Tjörnina Hvenær? 20.00 Hvar? Grófin, milli Tryggvagötu 15 og 17 Markús Þór Andrésson listfræð- ingur leiðir göngu um listaverkin við Tjörnina og í Hljómskálagarð- inum. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Hvað? Söguganga um miðbæ Hafnarfjarðar Hvenær? 20.00 Hvar? Pakkhús Byggðasafns Hafnar- fjarðar, Vesturgötu 8 Björn Pétursson bæjarminjavörður leiðir sögugöngu frá Pakkhúsinu um gamla bæinn. Hún tekur um klukkustund, þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 9 -A A 0 4 2 3 A 9 -A 8 C 8 2 3 A 9 -A 7 8 C 2 3 A 9 -A 6 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.