Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Síða 16
16 SPORT 28. júní 2019
Maxið aldrei verið betra
Pepsi Max-deild karla er að ná fyrri styrk eftir
mögur ár í efstu deild karla, er varðar gæði innan
vallar og mætingu, er deildin aftur í sókn. Hvassari
umræða í gegnum hlaðvarpsþætti hefur aukið áhuga
fólks á leiknum fagra, aukning er í mætingu á völlinn.
Margt hefur vakið athygli nú þegar Pepsi Max-deild
karla er að verða hálfnuð. Margar ástæður eru fyrir því
að deildin hefur sjaldan verið meira spennandi fyrir
áhugafólk um knattspyrnu. Hér eru helstu atriðin.
Hlaðvarpsþættir hafa verið að gera það gott, sérstaklega í
knattspyrnuheiminum á Íslandi. Þættir sem við erum með, Dr. Foot-
ball, Steve dagskrá og Fótbolti.net standa fyrir sínu og vekja mikla
athygli. Með þessum þáttum hefur umræðan breyst, hún er hvassari
en áður. Stundum er það ekki gott fyrir félögin og leikmenn sem hef-
ur verið farið silkihönskum í mörg ár, þetta hefur hins vegar aukið
áhugann á deildinni. Umfjöllun um Pepsi Max-deild karla var mikil
fyrir en hefur aukist mikið með þessum hlaðvarpsþáttum, áhuginn á
deildinni hefur ekki verið svona mikill í mörg ár.
Það hefur gustað um Hlíðarenda, mótið byrj-
aði illa og Gary Martin var sparkað í burtu. Lætin
sem fylgdu enska framherjanum var eitthvað sem
Valsarar þoldu illa. Gary Martin fékk væna summu
í sinn vasa, bara svo hann væri nú ekki að mæta á
æfingar. Mótið hélt áfram að ganga illa og Ólafur
Jóhannesson bannaði spurningar um enska fram-
herjann, Stöð2 Sport tók allt saman upp og birti.
Það hélt svo áfram að gusta á Hlíðarenda þegar
Hannes Þór Halldórsson meiddist og fór í brúð-
kaup til Ítalíu. Vandræði Valsmanna og lætin utan
vallar hafa aukið umtal um deildina. Gott fyrir alla
nema Valsmenn.
Veðurfarið hefur leikið við landann síðustu vikur, þetta er ástæða
þess að fleiri mæta á völlinn en í fyrra. Í fyrra rigndi nánast alla daga
og Heimsmeistaramótið í Rússlandi truflaði einnig. Þá hafa leik-
dagarnir í Pepsi Max-deildinni verið skemmtilegri en áður, leikir í
miðri viku, leikir á laugardögum. Þetta hefur sett skemmtilegan svip
á deildina og eitthvað smá þróast áfram.
Það hefur ekki verið jafn gaman að fara á völlinn í mörg ár, óvænt
úrslit úti um allt. Stórlið í veseni, nýliðar að berjast við toppinn. Lið
eins og Víkingur sér til þess að fólk vill mæta á völlinn, Arnar Gunn-
laugsson og félagar vilja spila sóknarbolta, úr verða alltaf skemmti-
legir leikir. Mörk og læti í hverjum einasta leik. Ótrúlegar endurkom-
ur hafa sést og þegar fólk mætir á völlinn er erfitt að lesa í úrslitin
áður en flautað er til leiks. Þetta gefur mótinu mikið. Þá hefur um-
gjörð liða batnað mikið, þeir sem vilja fá sér öl á vellinum geta það á
flestum stöðum og meira er í gangi fyrir börnin.
Það er að hjálpa Pepsi Max-deild karla mikið hversu
stór nöfn spila nú í deildinni, þrír algjörir lykilmenn
í íslenska landsliðinu síðustu ár eru með. Hannnes
Þór Halldórsson gekk í raðir Vals fyrir tímabilið, fyr-
ir var Birkir Már Sævarsson á Hlíðarenda. Þá er Kári
Árnason mættur heim í Víking. Fleiri leikmennn hafa
snúið heim úr atvinnumennsku og sjá til þess að
deildin fær meiri athygli. Þá eru þjálfarar eins og Rún-
ar Kristinsson og fleiri góð auglýsing fyrir deildina.
1. Hlaðvörp
2. Læti á Hlíðarenda
3. Stór nöfn í deildinni
4. Gott veður
5. Frábærir leikir